Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 4
4 DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. Gildismat íslendinga —hamingjusöm þjóð í tímabundnum erfiðleikum I gær kynnti Hagvangur hf. niðurstöður könnunar á gildismatí Islendinga og mannlegum viðhorfum þeirra. Er þar um að ræða lið í alþjóðlegri könnun sem hrundið var af stað 1978. Forkönnun fór fram 1980 í Frakklandi, V-Þýskalandi og Spáni og var eftir hana gengið frá endanlegum spurningalfsta sem hefur siðan verið þýddur og staðfsrður i þelm löndum sem könnunin hefur farið fram í. Með þessari könnun f æst samanburður á gildismati íslendinga við mat u.þ.b. 25 annarra þjóða. 28 stofnanir og fyrirtæki lögðu fram fé til þess að gera mætti könnunina og sagði Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, formaður yfirstjórnar könnunarinn- ar, að hér væru kynntar frumniðurstöður úr henni, en frekari vinnsla væri mikil ef tir. Benti hann þó á að af könnuninni mætti draga þá ályktun að Islend- ingar væru hamingjusöm þjóð sem ættí við tímabundna erflðleika að etja. Af- henti Jóhannes síðan Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra frumgögn könnunarinnar, en hann mun afhenda Háskólanum þau til umsjónar. Hjónabandið í fullu gildi Frá blaðamannafundi tíl kynningar á könnuninni. Steingrímur Her- mannsson forsætísráöherra ræðir við Stefán Hiimarsson bankastjóra, herra Pótur Sigurgeirsson biskup og Jónas Haraiz bankastjóra. DV-mynd KAB. Islendingar skera sig úr að því leyti aö þeim finnst langflestum í lagi aö konur eignist böm þó þær óski ekki að bindast karlmanni varanleg- um böndum. Hvaö varðar f jölskyldu- líf almennt telja Islendingar gott kynlíf mikilvægara en hinar þjóðim- ar sem könnunin nær tii. Þá telja Is- lendingar, frekar en aörar þjóðir, að ófulinægjandi kynlíf sé næg skiln- aöarástæða. Hvergi eru fleiri en á Islandi sem afneita þeirri skoðun að hjónabandið sé úrelt stofnun. Islendingar telja mikilvægt fyrir farsæld í hjónabandi aö hjónin virði og meti hvort annað. Þar á eftir telja þeir mikilvægt að hjónin séu hvort öðm trú og sýni skilning og umburðarlyndi og í fjórða sæti forsenda fyrir góðu hjónabandi telja þeir gott kynlíf. Þá nefnir engin þjóö böm jafnoft í þessu sambandi og Islendingar en h'ta svo á að sameiginlegar stjórnmála- skoðanir skipti htlu máli í hjóna- bandi. Meöal skilnaðarástæðna, sem Is- lendingar nefna, eru ofbeldi, ítrekað framhjáhald og að annaö hjónanna séhættað elskahitt. Góð laun og metnaður — aðalatriði við vinnu Þrír af hverjum f jórum Islending- um sem taka þátt í könnuninni starfa utan heimihs. 81% karla telur sig fyr- irvinnu heimihs en aðeins 52% kvenna. Rúmlega helmingur Islend- inga telur æskilegt að konur vinni ut- anheimilis. Þegar spurt er um hvaöa atriöi séu mikilvæg varðandi störf kemur í ljós að örugg ráðning er ekki tahn með mikilvægustu atriöum á Islandi en er það í flestum öðrum löndum. Islend- ingar leggja meiri áherslu á góð laun en aðrir Norðurlandabúar en minni áherslu þó en Bandaríkjamenn eöa S-Evrópubúar. Þá teljast Islending- ar leggja meiri metnað í vinnu sína en aðrir Norðurlandabúar. Þegar spurningar um áhrif ýmissa hagsmunaaðila voru lagðar fram kom í ljós að 48% Islendinga telja áhrif samtaka vinnuveitenda hæfileg en 49% telja áhrif launþegasamtaka of htil. Stuðningur við ríkiseign fyrir- tæk ja er nánast enginn meðal Islend- inga. Hamingjusöm- ust þjóða Islenska þjóðin er hamingjusöm- ust ahra Evrópuþjóða, að eigin mati, og aðeins Danir telja sig ánægðari með hfið. Þá hafa Islendingar meiri trú á framtíðinni en aörar þjóðir. Þegar spurt er hversu ánægðir menn búist við að verða með lifið eftir fimm ár lenda Islendingar í efsta sæti. Islendingar trúa þvi allra þjóða mest aö þeir ráði örlögum sínum sjálfir og telja sig einnig hafa meira frelsi til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir en aðrar þjóðir gera. I öUum þessum atriðum svipar öðrum Norðurlandaþjóðum tU Islendinga. Islendingar skera sig hins vegar úr hópi Norðurlandaþjóðanna þegar spurt er um fjárhagslega afkomu. Norðurlandaþjóðir lenda þar í hópi ánægöustu þjóða nema Islendingar sem teljast tU hinna óánægðustu og eru í hópi meö Itölum, Frökkum og Spánverjum. Stoltiraf þjóð sinni — ogfúsirtilað verja landið Fáar þjóðir segjast stoltari af þjóð- erni sínu en Islendingar og skera þeir sig úr hópi Noröurlandaþjóð- anna aö þessu leyti. Þá telja fleiri Is- lendingar sig bundna þjóð sinni sterkari böndum en byggðarlagi. Islendingar eru vel reiðubúnir til þess að berjast fyrir land sitt en telja Utlar líkur á stórstyrjöld sem landið myndi dragast inn í. Islendingar greinast í tvo jafn- stóra hópa þegar þeir eru beönir um að gera upp á miUi frelsis og jafn- réttis en aðrar Norðurlandaþjóðir velja frekar frelsið. Og Islendingar bera meira traust tU kirkjunnar en aðrar Evrópuþjóð- ir. Aðeins Norðmenn og Finnar treysta löggjafarþingum sínum bet- ur en Islendingar Alþingi. Og Islend- ingar bera minna traust til dagblaða en nokkur önnur þjóð í könnuninni. Trúhneigð- ust þjóða — en hverásinnhátt Islendingar segjast vera trú- hneigðari en flestar nágrannaþjóðir og svipar að því leyti mest tU S-Evr- ópuþjóða og Bandaríkjanna. En þeg- ar kemur að trúariðkunum er kirkju- sókn Islendinga lítil, eins og hirrna Norðurlandaþjóðanna. Innan við helmingur Islendinga segist biðjast fyrir, iðka hugleiðslu eða aðrar and- legar iðkanir. Almennt er trú Islendinga fjöl- breytileg og um margt á skjön við trúfræði kirkjunnar. Engin þjóð trúir í jafnUtlum mæh á persónulegan gluð og Islendingar, sem að meiri- hluta telja fullyrðingar um einhvers konar aUieimsanda eöa lífskraft komast næst trú sinni. Islendingar trúa öðrum þjóðum meira á líf eftir dauöann og á sálina. Þá trúa fáar þjóðir meira á tilvist himnaríkis en þó afneita Islendingar allra þjóða ákveðnast tUvist helvítis. j dag mælir Dagfari______________I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari Albert hefur níu líf Þegar mestu átökin áttu sér stað í verkfaUsstriði opinberra starfs- manna beindust ÖU spjót að Albert Guðmundssyni fjármálaráðherra og þótti jafnvel tvisýnt um pólitískt líf hans. Gefin voru út sérstök tíðindi á vegum BSRB, prentað og dreift í þrjátíu þúsund eintökum, sem að mestu voru helguð níði og óhróðri um Albert. Var honum fundið allt það til foráttu sem miður fór í kjarabarátt- unni og um tíma stóð maður í þelrri trú að Albert værí eina hindrunin á vegi opinberra starfsmanna tU bættra kjara og betra lífs. Honum var kennt um að hafa ekki greitt laun á meðan á verkfaUinu stóð. Albert var sakaður um óbilgirni í viðræðun- um og siðan kórónaði ráðhcrrann skammsýni sina með frægri ræðu um letingja og liðleskjur í kennarastétt. Sjálfur hafði Albert Guömundsson lýst því yfir í bak og fyrir að ekki kæmi til mála að semja um hærri launagreiðslur en f járlagafrumvarp- ið gerði ráð fyrir enda væri stjórnar- stefnan þar með sprungin og ekki annað að gera en efna til kosninga. Svo fór þó að lokum að bæði f járlaga- frumvarpið og stjórnarstefnan sprungu í loft upp með samningum sem Albert skrifaði sjálfur undir eft- ir að hafa verið myndaður í faðmlög- um með Kristjáni Thorlacius og Har- aldi Steinþórssyni. Var nú ekki lengur minnst á kosn- ingar en í herbúðum sjálfstæðis- manna voru brugguð launráð til höf- uðs f jármálaráðherranum, sem bæði hafði það til saka unnið að vera á móti samningum og skrifa undir samninga. Þótti ýmsum sem Aibert lægi vel við höggi þegar stjarna hans hafði hrapað svo skyndilega í darr- aðardansi verkfallsins. En það er eins með Aibert og kött- inn. Hann kemur jafnan standandi niður. Kemur það út á eitt þótt maðurinn móðgi heilar stéttir, tali í kross eða gleymi því sem hann ætiar að segja í miðri setningu. Ailtaf skal Albert Guðmundssynl takast að sigia sinni skútu í höfn við lúðraþyt og söng. Ekki hafði verkfaliinu fyrr slotað en hlustendur þeirrar einu rásar sem hlustandi er á hjá Rikisútvarpinu út- nefndu Albert sem mann mánaðar- ins. Hafði hann þó bæði lýst frati á Ríkisútvarpið og hent löggæslu- mönnum á dyr þegar þeir hugðust taka hús hjá frjálsu útvarpi. En vinsældir Alberts takmarkast sama dag og rikisstjórnin feildi ekki við hlustendur rásar tvö. Þann gengið og innsigiaðl sklpbrot stjórn- arstefnunnar komu Dagsbrúnar- menn saman til fundar til að hyiia fjármálaráðherra með langvinnu iófaklappi. Mun það sennilega eins- dæmi í veraldarsögunni að rikis- stjórn komist upp með það að svipta burtu langsóttum kjarabótum með einu pennastriki með þeim árangri að fjármálaráðherra þelrrar ríkis- stjórnar sé sérstaklega hylltur þann sama dag. Verður það ekki af Albert skafið að slik undur og stórmerki eiga sér engan samjöfnuð og gætu áreiðanlega hvergi gerst nema þar sem hann á í hlut. Eftir því sem fréttir herma munu Dagsbrúnarmenn hafa risið úr sæt- um sínum, þegar lófaklappið var hvað ákafast, til að undirstrika vel- þóknun sína á ástmegi sínum. Gott ef ekki féllu gleðitár. Það sannast hér sem áður að vegir stjórnmálanna eru órannsakanlegir. Fer nú að verða spurning hvort ekki sé rétt að ramma Albert inn, sem sérstakt sýnishorn af stjórnmála- manni sem ávinnur sér vinsældir og lýðhylll í öfugu hlutfalli við axar- sköftin. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.