Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Vinna storknun- arefni úr blóði Vekur nýjar vonir fyrir drey rasýkisjúklinga Kvíða of mikilli umferð Breskir og bandarískir vísindamenn hafa fundiö leið til þess aö framleiöa efniö sem kemur blóöi til þess aö storkna. Vænta menn góös af því fyrir dreyrasýkisjúklinga sem háöir eru blóögjöfum. Breska vísindaritið „Nature” greinir frá því í dag að vísindamenn við Royal Free Hospital, The Genentech Company i San Francisco og Genetics Institute i Boston hafi náö að einangra storkunarefniö ,,factor8”. Frances Rotblat, einn þessara vísindamanna, segir aö af þessari uppgötun muni leiða aö unnt verði aö framleiða birgöir af „factor 8” og þaö vonandi innan fimm ára. Dreyrasýkisjúkiingar, sem eiga á hættu að þeim blæöi út, ef þeir fá svo mikiö sem smárispu vegna þess að þá vantar storknunarefni í eigiö blóö, eygja þarna nýja von, sem getur gert þá óháða blóögjöf. Síðan AIDS, ónæmissjúkdómurinn illræmdi, komst á kreik hefur veriö smávandræöum bundiö að þiggja blóð úr blóðbönkum vegna smithættu. AIDS hefur aðallega borist milli kynvillinga og meö blóði, sem fíkniefnasjúklingar hafa selt blóð- bönkum. Til þessa hefur „factor 8” verið' unniö úr blóöi þúsunda blóðgjafa, en nú hafa vísindamenn fundiö leið til þess aö vinna „factor 8” -prótein úr blóð- vatni. TAMÍLAR ÓTTAST HEFNDIR á flug- völlum Alþjóöasamtök flugfélaga, IATA, hafa áhyggjur af því aö mikill erill sem fyrirsjáanlegur er á næsta sumri á flugvöllum Evrópu muni leiða til meiriháttar vandræða. Búast samtökin viö 5—10% aukn- ingu í flugi á leiðum Vestur-Evrópu sumariö 1985 (miöaö viö síðasta sumar). Þeir segja að margir flug- vellir ráði hreint ekki við slíka aukningu því aö afkastageta þeirra séþegarfullnýtt. Ottast er aö sinhalar á Sri Lanka snúist í dag gegn tamílska minnihlut- anum eftir blóðbaðið í gær. Stjórnin setti útgöngubann um alla eyjuna og lokaði skólum til aö forðast hefndarað- geröir. Um 250 tamílskir skæruliðar, þar á meöal 60 skólastrákar, réöust í gær á lögreglustöö í Jaffna héraöi eyjunnar. Að minnsta kosti 29 manns fórust í árásinni. Skæruliðar rústuöu aigerlega lögreglustööina með bílsprengju og stöðugri skothríð. Einnig hefur frést af ógnarverkum hér og þar um eyjuna. Tamílar segja aö alls haf i um 130 verið drepnir. Tamílar á Sri Lanka eru aö berjast fyrir sjálfstæöi. Skæruliðar hafa aðal- MARCOS FORSETI EKKIDAUÐVEIK- UR, HELDUR MEÐ FLENSU Læknir Ferdinands Marcosar, for- seta Filippseyja, segir aö Marcos sé með flensu og að hans ráöi forðist fjöl- menni eöa heimsóknir. — Marcos hef- ur ekki sést opinberlega í rúma viku og hefur þaö vakið upp kvitt um aö hann lægi alvarlega veikur. Eiginkona hans, Imelda, segir aö Marcos hafi fengið kvef og tekiö sér hvíld sem hann njóti um borð í lysti- snekkju þeirra. — Vísar hún öllu um- tali um alvarleg veikindi forsetans á bug semfjarstæöu. Kvittur hefur veriö á kreiki um aö Marcos forseti lægi fyrir dauöanum eftir hjarta- eöa nýrnaaögerö. Læknir forsetans segir aö Marcos hafi fengiö flensu meö hósta, nef- rennsli og lágum hita og aö hann hafi fyrirskipað forsetanum aö vera í ein- angrun. I útvarpsviðtali í gær sagöi forseta- frúin aö Marcos mundi kominn á kreik eftir þrjá eöa fjóra daga. Sjónvarpiö á Filippseyjum sýndi i gær ljósmynd af forsetanum aö fletta blööum meö fréttum um þessa meintu banalegu hans. Þulurinn sagði í frétt um málið aö forsetinn heföi hlegið af fjarstæöuskrifum þessum. Læknirinn segir að hann hafi fyrir- skipaö venjulegar flensuráðstafanir vegna krankleika forsetans. Skæruliðar segja 130 fallna stöðvar sínar á Indlandi, en strendur landi. Talið er að með árásunum vilji Indlands eru aöeins nokkra kílómetra skæruliðar skapa andrúmsloft sem frá noröurodda Sri Lanka. Mikill f jöldi geri stuðningsmönnum þeirra auðveld- tamila býr í Tamil Nadu fylkinu á Ind- ara aö ná kosningu á Indlandsþing. Kosningar á Indlandi fara fram eftir rúman mánuö. A Sri Lanka búa 15 milljónir manna en tamílar þar eru 2,5 milljónir. PYSKUR KOSTAGRIPUR FRÁ VOLKSWAGEN BÍLL SEM HÆHR ÖLLUM FRAMHJÓLADRIFINN ® SPARNEYTINN RÚMGÓÐUR ® PÆGILEGUR LJPUR OG SNAR ® ENDINGARGÓÐUR Verö frá kr. 339.000.- 6 ÁRA RYÐVARNARÁBYRGÐ IhIhekla Laugavegj 170-172 Sír HF Sími 21240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.