Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1984, Blaðsíða 30
30 DV. FIMMTUDAGUR 22. NOVEMBER1984. Myndbönd Myndbönd Myndbandaæði um allan heim: Fjöldaframleiðsla og samkeppni gera myndbönd auökeypt Myndbandabyltingin svokallaöa sem hófst skömmu fyrir síöustu ára- tugaskipti nær nú um allan heim. Hér á Islandi er erfitt aö fá haldgóöar tölur um f jölda myndbandatækja en varlega áætlaö er þriöjungur heimila meö myndbandstæki eöa hefur tök á aö horfa á myndbandaspólur í gegnum kapalkerfi. Svipaða sögu er aö segja frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Jap- an. I Ástralíu hafa sprottið upp myndbanda-„barir” og myndbanda- leigur í flugvélum eru algengar þar. Á einangruöum stööum á Indlandi ganga farandsölumenn á milli þorpa og selja tæki og nýjustu vestrænu myndböndin og svo mætti lengi telja. Fjöldaframleiðsla og hörö sam- keppni á myndbandatækjamarkaðn- um hefur gert tækin auðkeypt fyrir stóran hluta mannkyns og einhvern tímann í náinni framtíö er áætlaö ai hvert heimili, sem á annað borð hefui sjónvarp, hafi einnig myndband enda veitir myndbandið neytendum oft á tíö- um velkonina tilbreytingu frá leiö- inlegri sjónvarpsdagskrá. Myndbandabyltingin hefur haft viss vandamál í för með sér, eitt þeirra er 'að mikiö hefur dregið úr aðsókn í kvik- myndahús en annað og verra sem veld- ur kennurum og foreldrum áhyggjum er aö auöveldur aögangur aö mynd- böndum dragi úr lestri ungs fólks og haldi því aö einhverju leyti frá námi. Auk þess eru kennarar og foreldrar ekki ánægöir meö þaö sem börn horfa á. Engin könnun hefur verið fram- kvæmd hérlendis á þvi hvaöa mynd- bandaefni er vinsælast hjá bömum en í Bretlandi eru ofbeldismyndir og klám- myndir mjög vinsælar, kallaðar „Video-nasties” þar og í Vestur- Þýskalandi er taiiö að allt aö helming- ur keyptra eöa leigöra myndbanda sé meö þessu efni. I sumum þeirra er lítið skafiö af hlutunum. Á vinsælu mynd- bandi í Þýskalandi sést ung stúlka í minipilsi keyra ísöxi í háls manni og bútar hún hann svo í hluta. Sum atriöin eru verri en í nýlegri könnun í Þýska- landi kom í ljós að tveir þriðjuhlutar skólabama á aldrinum 12—13 ára höföu séð a .m.k. eina s vona my nd. Vmis lönd eru þegar farin að bregð- ast viö þessu vandamáli meö lagasetn- ingum. I Þýskalandi hefur stjórnin óskaö eftir herferð gegn ósómanum, í Ástralíu er bannað að leigja eöa selja svona efni og í breska þinginu liggja fyrir lög sem kveöa á um að stjórnin geti takmarkað sölu og dreifingu á nýj- um myndböndum. Eins og fram hefur komiö í fréttum hér er mikiö af ólöglegu efni á mynd- bandamarkaönum og er rannsókn á þeim málum tiltölulega nýhafin í kjöl- far nýrra laga um höfundarrétt. I Vestur-Þýskalandi var velta 5000 myndbandaleiga á síöasta ári í kring- um 13,6 milljaröar kr. en talið er að um helmingur myndbandanna hafi verið „stolinn”. Olöglegt efni er taliö vera um þriðjungur af breska markaönum og um 40% af þeim ítalska, svo dæmi séu tekin. Olögleg myndbönd eru oft á tíðum komin á markaðinn áöur en viö- komandi mynd hefur veriö sýnd í kvik- myndahúsum eins og mörg dæmi eru um hérlendis. 1. BLUE THUNDER 2. THE EMPIRE STRIKES BACK 3. ABSENCE OF MALICE 4. CALIFORNIA SUITE 5. MIDNIGHT EXPRESS 6. DYNASTY 7. VICESQUAD 8. THETOY 9. GANDHI 10. ENGLAR REIÐINNAR Vinsældalisti DV er unninn í samvinnu viö 10 stærstu mynd- bandaleigumar innan SIM auk Video-sport (3 leigur) og Mynd- bandaleigu kvikmyndahúsanna( 6 leigur). FALLNA FYRIRSÆTAN (LIPSTICK) Leikstjóri: Lamont Johnson. Aöalleikendur: Margaux Hemingway, Anne Bancroft, Chris Sarandon og Mariel Heming- way. Lipstick tekur á þörfu máli, sem sagt nauðgun, og hversu auöveldlega nauögarinn getur komist undan refs- ingu. En þaö er ekki nóg aö hafa góöa hugmynd, vinnslan veröur helst að vera í samræmi viö hugmyndina, en því miður er þar nokkru ábóta vant. Margaux Hemingway leikur þekkta fyrirsætu sem verður fyrir því að vera nauðgaö af hálfbrjáluöum tónlistar- kennara. Hún tekur þá áhættu aö ákæra, þótt lögfræöingur hennar vari hana við að málaferli gætu farið verr með hana en nauðgarann. Það reynist rétt vera. Nauðgarinn telur að samfar- ir hafi farið fram meö vilja hennar og kviðdómurinn trúir honum. Hann er sýknaöur og hún er dregin niöur í svaö- iö af blöðunum. En nauðgarinn lætur ekki staöar numiö og er endirinn nokk- uöóvæntur. Lipstick er nokkuö spennandi kvik- mynd. Það er helst leikur Margaux Hemingway sem fer í taugamar á mér. Henni er greinilega eitthvaö ann- að tO lista lagt en leikur. En yngri syst- ir hennar, Mariel, sem þama er barn aðaldri, erafturámótimjöggóö. THE NORSEMAN Aóalhlutvork Lee Majors. LoikstjórcSamuel Z. Arkoff. Ég er ekki viss um hvort ætlunin hafi veriö aö Lee Majors léki Leif heppna eöa Þorfinn karlsefni. Þaö er allavega á hreinu aö þeir sem sömdu handrit þessarar myndar hafa ekki haft hugmynd um tilvist Is- lendingasagnanna en kannski var ekki við ööm að búast. Þaö sem meira fer í taugamar er aö allir víkingarnir í myndinni em klæddir í rómverska búninga eöa þannig. Lee Majors leikur víkingaprinsinn Þorvald sem kemur til Ameríku í leit aö föður sínum, víkingakóngi sem horfið hefur á þessum slóöum. Þor- valdur og menn hans lenda í miklum bardögum viö skrælingja en dúndur eitt úr þeim hópi veröur ástfangiö af Þorvaldi og hjálpar honum viö að hafa uppi á fööur hans. Þetta er söguþráðurinn í stuttu máli. Lee Majors er vonlaus Hollywood- útgáfa af víkingi og því fellur þessi B-mynd um sjálfa sig. Eg er ekki viss um aö þeir Leif ur heppni og Þor- finnur hafi haft tíma til aö raka sig á hverjum degi og fá permanent í hár- ið einu sinni í viku er þeir voru aö þvælast á þessum slóðum í „den tid”. -FRI THELADY VAHISHES AðalhlutverkiE/liott Gouid, Cybill Shepherd. LoikstjóriiAnthony Poge. Þessi endurgerö einnar af þekktari myndum meistarans Alfred Hitch- cock er í meöallagi traust skemmt- un, einkum vegna leiks og látbragöa þeirra félaga Arthur Lowe og Ian Carmichael sem leika tvo breska herramenn sem lifa og hrærast i þeirri gegnensku íþrótt krikket. Shepherd leikur ríka bandaríska stelpu á ferðalagi um Bæjaraland skömmu fyrir seinni heimsstyrjöld- ina. Hún hittir enska fóstru sem síö- an hverfur úr lestinni og gerir sú bandaríska allt hvaö hún getur til aö hafa upp á henni. Til liðs við sig fær hún ljósmyndara frá Life (Gould) og saman komast þau aö þvi aö þau eru flækt í flókið njósnanet þar sem skuggalegir nasistar, léttgeggjaöur geðlæknir og fyrrum hóra meö hjarta úr gulli koma við sögu. Mörg skondin atriði er að finna í þessari mynd þótt ekki sé hún jafn- pottþétt og fyrirrennari hennar. -FRI HEATANDDUST Leikstjóri: James Ivory. Aðalleikendur: JuUe Christie, Sashi Kapoor, Christopher Cazenova og Greta Scacchi. James Ivory er bandarískur leik- stjóri sem aö mestu hefur starfaö í Ind- landi til að leita upplýsinga um ömmu- systur sína, en hún haföi yfirgefiö mann sinn, enskan liðsforingja, fyrir háttsettan Indverja. Hún hefur í fórum sínum bréf sem hún haföi sent ættingj- um sínum. Julie Christie er fljót aö að- lagast indverskum venjum og verður ófrísk eftir indverskan mann. Kvik- myndin segir til skiptis frá samskipt- um þessara tveggja kvenna við inn- fædda sem Evrópubúa. Báðar taka þær dökka indverska menn fram yfir hvíta menn. Heat And Dust er nokkuö athyglis- verö kvikmynd. James Ivory er greini- lega mikill Indlandsvinur. Myndin er aftur á móti nokkuö langdregin og virkar ekki nógu heilsteypt. Leikur í myndinni er allur til fyrirmyndar. HK. A mysterious drama of love and murtíer Starring: Alain Delon, Mireille Darc and Claude Brasseur SOMEONE IS BLEEDING (LES SEINS DE GLACE) Leikstjóri: Georges Lautner. Aðalleikendur: Alain Delon, Mireille Darc og Claude Brasseur. Les seins de glace er frönsk saka- málamynd og segir frá rithöfundi ein- um, sem leikinn er af Claude Brasseur, sem dag einn hittir unga stúlku niöri viö ströndina. Hann hrífst af henni og eftir nokkurt þóf kynnist hann henni það vel að hún býður honum heim. Rit- höfundurinn tekur fljótt eftir því að þar erekki allt eins og á að vera. Stúlk- unnar er gætt vandlega af gæslumanni sem lítur rithöfundinn óhýru auga. Lögfræöingur hennar, sem Alain Delon leikur, virðist stjórna öllu lífi hennar og hann segir rithöfundinum að hún sé nýkomin af hæli. Áöur en rithöfundur- inn veit af er hann orðinn flæktur í morðmálogfleira. Les seins de glace er frekar róleg í allri uppbyggingu en spennan eykst þegar líður á myndina. Alain Delon er í sínu vanalega hlutverki, sem einstakl- ingur sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Helsti galli myndarinn- ar er að það hefur verið sett enskt tal inn á hana sem oft á tíöum virkar óeðli- lega. HK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.