Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1989, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1989.
25
á Hlíðarenda í gær. Þarna sækja þeir Kristján Jónsson og Þorsteinn Þorsteinsson
DV-mynd GS
n vlð hlið FH á toppnum:
aktar hjá
líðarenda
eldan sigur á Valsmönnum, 0-2
framhjá Bjarna, 0-2.
Auk þessa fengu Framarar ágæt
færi til að skora fleiri mörk. Eina
umtalsverða færi Vals átti Halldór
Áskelsson á 62. mínútu. Þá fékk hann
boltann óvaldaður við vítapunkt en
sendi hann hátt yfir markið.
Framliðið lék mjög vel sem ein
heiid og allir stóðu fyllilega fyrir
sínu. Þó er á engan hallað þótt getið
sé sérstaklega um Ómar Torfason og
Þorstein Þorsteinsson. Ómar batt lið-
ið saman, var sívinnandi í vörn og
sókn og lék sinn besta leik í langan
tíma. Þorsteinn var firnasterkur í
vörninni og fundu sóknarmenn Vals
engar smugur framhjá honum.
Valsliðið verður um miðja deiid
með þessu áframhaldi og blandar sér
varla í meistaraslaginn úr þessu.
Skástir voru Sævar Jónsson og Einar
Páll Tómasson en aðrir voru undir
getu.
„Ég held að þetta hafi verið okkar
besti leikur í sumar. Við náðum að
leika góða knattspyrnu og erum
komnir á rétt ról. Eg tel að við þurf-
um að vinna þrjá leiki af þeim fjórum
sem eftir eru til að verða meistar-
ar,“ sagði Ómar Torfason í samtali
við DV eftir leikinn.
Áhorfendur voru um 1500.
Dómari: Guðmundur Haraldss. fær
tvær stjörnur af þremur mögulegum.
Maður leiksins: Ómar Torfason,
Fram.
-VS
Evrópumótið í sundi:
Helga Sigurðardóttir
enn í sviðsljósinu
- setti íslandsmet í 400 m skriðsundi
Síslenskir sundmenn voru aftur í sviðsljósinu á Evrópumeistaramót-
inu í sundi í gærkvöldi. Evrópumótið stendur sem kunnugt er yfir
í Bonn í Vestur-Þýskalandi.
Helga Sigurðardóttir keppti öðru sinni á tveimur dögum og setti
í gærkvöldi íslandsmet í 400 metra skriðsundi. Helga synti á 4:34,98 mínútum
og bætti íslandsmet Hugrúnar Ólafsdóttur. Gamla metið var 4:36,85 mínút-
ur. íslandsmetið dugði Helgu þó skammt því hún náði aðeins 18. sætinu sem
er þó góður árangur hjá þessari efnilegu sundkonu. Hún er nú að keppa á
sínu fyrsta erlenda stórmóti.
Magnús Már Ólafsson keppti í 100 metra skriðsundi og hafnaði í 24. sæti.
Hann synti á 52,49 sekúndum og var nokkuð frá sínu besta í gærmorgun.
íþróttir
Frjálsar íþróttir:
FH-ingar kæra
framkvæmd
bikarkeppni FRÍ
- gera athugasemdir við flölda greina
Frjálsíþróttadeild FH
hefur kært fram-
kvæmdina á nokkr-
" um greinum í 1. deild
bikarkeppni FRÍ, sem fram fór
í Reykjavík um síðustu helgi,
og krefst þess að stigagjöf móts-
ins verði reiknuð upp á nýtt.
FH-ingar gera athugasemdir
við framkvæmdina á 4x100
metra boðhlaupi karla og 1000
metra boðhlaupi karla og
keppni í kringlukasti en þar
telja þeir að ekki hafi verið lög-
lega staðið aö málum.
Þá telja FH-ingar að einn
keppandi ÍR-inga, Kristján
Skúh Ásgeirsson, hafi neytt
ólöglegs astmalyfs og verið
heimilað það af formanni laga-
nefndar FRÍ. Þeir vilja að það
mál sé athugað og þá að þær
greinar sem hann keppti í verði
strikaðar út en Kristján Skúh
sigraði í 5000 metra hlaupi og
varð þriðji í 1500 metra hlaupi.
-VS
Sigurður Jónsson er metinn á 475
þúsund pund.
FH...........14 7 5 2 20-11 26
Fram.........14 8 2 4 19-11 26
KR...........14 6 5 3 22-17 23
KA...........13 5 6 2 18-12 21
Valur........14 6 3 5 15-11 21
Akranes.....13 6 2 5 14-15 20
Víkingur....14 4 5 5 21-19 17
Þór.........14 2 6 6 14-23 12
Keflavík.....14 2 5 7 15-24 11
Fylkir.......14 3 1 10 12-27 10
Markahæstir:
Hörður Magnússon, FH...........9
Kjartan Einarsson, IBK.........9
Guðmundur Steinsson, Fram.....8
Pétur Pétursson, KR............7
Goran Micic, Víkingi..........6
• KA og ÍA leika á Akureyri í
kvöld kl. 19.
KS á blussi
KS er nánast öruggt með sæti í
2. deildinni í knattspymu eftir 7-0
sigur á botnliði Austra á Siglu-
firði í gær. Baldur Benónýsson,
Óh Agnarsson og Hafþór Kol-
beinsson geröu tvö mörk hver og
eitt var sjálfsmark.
Siglfirðingar þurfa í raun að-
eins eitt stig enn til að endur-
heimta 2. deildar sætið.
Siggi fer á
43 milUónir
- dómstóll mat hann á 475.000 pund
George Graham, framkvæmda-
stjóri Arsenal, má reiða fram 475
þúsund sterlingspund, eða um 43
milljónir íslenskra króna, fyrir Sig-
urð Jónsson, landshðsmanninn ís-
lenska.
í fréttaskeyti frá Reuter-stofunni
segir að þessi fjárhæð sé nærri því
tíu sinnum hærri en sú sem forkólfar
Arsenal buðu en mikið bar á mihi
hjá aðilunum tveimur.
Forvígismenn Arsenal ætluðu Sig-
urð falan fyrir 50 þúsund sterhngs-
pund en Sheffield Wednesday krafði
Arsenal hins vegar um 800 þúsund
pund.
Sérstakur dómstóh enska knatt-
spyrnusambandsins skar úr í deilu
hðanna um kaupverðið.
Máhð í heild var annars þannig
vaxið að Sigurður gat sjálfur kosið
sér lið í kjölfar þess sem samningur
hans var úti við Sheffield.
Þegar málum er þannig háttað er
kaupverð jafnan ákvarðað af áður-
nefndum dómstól knattspyrnusam-
bandsins þar sem seljandi og kaup-
andi eru sjaldnast á einu máh um
verðið.
-JÖG
Þrjár breytingar
á landsliðshópnum
Þrjár breytingar hafa verið gerðar gær er þannig skipað:
á íslenska landsliðshópnum í knatt- Markverðir:
spyrnu, sem leikur gegn Austurrík- Bjarni Sigurðsson, Val...........29
ismönnum í Salzburg á miðvikudag- Guðmundur Hreiðarsson, Víkingi. 2
inn, frá fyrri leik þjóðanna á Laugar- Aðrir leikmenn:
dalsvellinum í júní. - Atli Eðvaldsson, Val............59
Ásgeir Sigurvinsson getur ekki ÁgústMár Jónsson, Hácken........21
leikið í Salzburg þar sem Stuttgart GuðmundurTorfason,St.Mirren...22
er að spila í vestur-þýsku úrvals- Guðni Bergsson, Tottenham...27
deildinni á sama tíma og þeir Þor- Gunnar Gíslason, Hácken.....42
valdur Örlygsson, KA, ,og Halldór ÓlafurÞórðarson,Brann.......31
Áskelsson, Val, voru ekki valdir að Pétur Arnþórsson, Fram......24
þessu sinni. Ragnar Margeirsson, Fram.......37
í þeirra stað koma Framararnir Rúnar Kristinsson, KR............8
Ómar Torfason og Ragnar Margeirs- Sigurður Grétarsson, Luzern.....25
son og Ágúst Már Jónsson frá Hác- Sigurður Jónsson, Arsenal.......18
ken í Svíþjóð en þeir þrír áttu allir Sævar Jónsson, Val..........50
við meiðsli að stríða þegar fyrri leik- Viðar Þorkelsson, Fram......24
ur þjóðanna fór fram. -VS
Liðið sem Sigfried Held tilkynnti í
íþróttasalur
til leigu
Nokkrir lausir tímar fáaniegir á kvöldin og
um hetgar í íþróttasal skólans. Uppl. fást á
skrifstofu skólans í síma 688400.
Verzlunarskóli Islands