Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 Fréttir Þórarinn Þórarinsson sem fann latneska áletrun á Spönginni á Þingvöllum: Ekki minna en dags- verk að gera þetta „Áletrunin er á sléttri klöpp, rétt þar sem gengið er.út á Spöngina þar sem hún er einna mjóst. Hraunyhr- borðið hefur verið sléttað og síðan er þessi áletrun ofan á. Þetta eru þijár línur og letrið er mjög máð. Það virðist enginn hafa tekið eftir þessu þó það sé beint undir fótum manna. Letrið var uppljómað að kvöldi dags þegar sólin var lágt á lofti. í þeirri birtu kom það vel fram,“ segir Þórar- inn Þórarinsson arkitekt sem fann latneska áletrun á Spönginni á Þing- völlum. Þórarinn álítur að áletrunin sé mjög gömul. Það séu skófir vaxnar yfir letrið og styðji það þá kenningu. „Ég veit náttúrlega ekki hversu hratt svpna klöpp máist.“ Áletrunin er greinilegust í kvöld- sólinni en Þórarinn fann hana ein- mitt við þær aðstæður og tók mynd af henni. Getgátur „Ég hef veriö að skoða landnám Ingólfs sem teygir sig alla leið til Þingvalla. Síðasta ár hef ég verið að skoða skipulag Þingvalla. Það vill svo til að ég var búinn að reikna út að það væru tengsl milli Spangarinn- ar og Lögbergs. Ef þetta letur er eitt- hvað tengt Lögréttunni gömlu þá er það á stað sem er mjög óaðgengilegur og hefur trúlega verið lokaður al- menningi," segir Þórarimi við DV. Hann bætir því við að þarna sé að mestu leyti um getgátur að ræða. Búið er að slétta u.þ.b. hálfan fer- metra af yfirborði klapparinnar og á því var letrið greipt í klöppina. „Það hefur verið mikil vinna og þurft mjög einbeittan vilja til þess að gera það. Ég giska á að þetta sé ekki minna en dagsverk að gera þetta. Sá sem geröi þetta hefur þurft að vera mjög ein- beittur og ákveðinn að klappa þama í klöppina. Mér finnst það eldd benda til þess aö einhver feröamaður hafi Selfoss: Ölvunum helgina Töluverö ðlvun var í miðbæ Selfoss aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglu á Selfossi var ölv- unin þó ekki meiri en gerist yfir sumartímann þegar íbúar og ferðafólk er að skemmta sér. Tveir voru teknir grunaöir um ölvun við akstur aðfaranótt sunnudags, annar á tjaldstæðinu á Þingvöllum og hinn í miðbæ Selfoss. Mitóð var af ferðafólki i Árnes- sýslu um þessa helgi enda stór sumarbústaðalönd höfuðborg- arbúa í sýslunni. Átta lögreglu- menn voru á vakt um nóttina en svæði lögreglunnar á Selfossi tekur yfir alla Ámessýslu. -JJ Bilvelta í Þor- steinshjalla Bílvelta varð á veginum í Þor- steinshjalla milli Patreksflarðar og Tálknaíjarðar i gærmorgun. Billinn valt eina veltu ofan við veginn. Lítils háttar meiösl urðu á fólki en bfllinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Að sögn lögreglu fór betur en ó horföist því hinum megin við veginn er mjög brött brekka niö- ur. Gmnur leikur á ölvun. -JJ Þessa mynd tók Þórarinn Þórarinsson, arkitekt, af latnesku áletruninni sem hann fann á Þingvöllium. Ekki ber öllum saman um hvað hún eigi að tákna. lagt svona mikið á sig,“ segir Þórar- inn. Frá miðöldum? „Ég get lítið sagt um áletrunina ennþá því mér hefur ektó tekist að ráða hana. Klöppin hefur sennilega verið sléttuð til þess að rista í hana þannig að þetta er ektó gert í neinni fljótfæmi. Það bendir ekkert til þess að fólk hafi verið að leika sér að því að rista þetta," segir Guðvarður Már Gunnlaugsson hjá Stofnun Áma Magnússonar við blaðamann DV, en hann hefur skoðað áletmnina. „Mér virtist hún vera mjög gömul. Ef áletrunin væri yngri, frá 18. eða 19. öld, þá hefði maður haldið aö hún væri mitóð skýrari. Sennilega hefði hennar einnig veriö getið í yngri heimildum. Svo er einnig sá mögu- leitó að hún sé það ný að seinni tíma menn hafi ekki séð neina ástæðu til að geta hennar í heimildum. Latneska áletrunin er orðin mjög máð enda hefur hún veðrast og þús- undir manna hafa gengið yfir hana,“ segir Guðvarður. -em Bjöm Th. Bjömsson telur áletrunlna ekki eldri en 100 ára: Ekkert annað en nöf n finnskra ferðamanna „Þessi fundur breytir ektó íslands- sögunni eða sögu Þingvalla. Þetta er ekkert annað en nöfn skandinav- ískra túrista sem hafa skihð þau eft- ir á klöppinni. Letrið er alls ekki eldra en hundrað ára gamalt. Skand- inavístór túristar vora ektó famir að koma neitt að ráði til Þingvalla fyrr en upp úr 1870. Nöfnin á klöpp- inni em Gulin og Blomkvist sem bendir til þess að þetta séu sænstór Finnar," segir Bjöm Th. Björnsson í samtali við DV en hann brá sér til Þingvalla til þess að skoöa letrið og reyna að lesa úr því. Bjöm segir að fólk hafi ritað nöfn sín út um allt land og að þetta breyti ekki íslandssögunni vitund. „Ég er náttúrlega ektó búinn að finna þessa menn og ektó er einu sinni víst að það sé hægt. Þetta er sennilega frá þeim tíma þegar Spöng- in var tahn Lögberg. Það var í kring- um 1870 sem menn fóm að færa Lög- bergið til. Það skrítna er að menn skuh ekki hafa fundið þetta fyrr,“ segirBjömTh.Björnsson. -em Skoðanakönnun um sorpeyðingarstöð á ísafirði: Meirihlutinn sat heima „Mér finnast þetta skýr skilaboö til bæjarstjórnar um að bæjarbúar em óánægðir með þá kosti sem þeir fengu að velja um. Það eru fleiri val- kostir í boði sem bæjarbúar fengu ektó að segja áht sitt á,“ sagði Kol- brún Hahdórsdóttir, bæjarfuhtrúi í minnihluta bæjarstjómar ísafiarðar, í gær eftir að ljóst var að einungis 13,4% atkvæðisbærra ísfirðinga tóku þátt í skoðanakönnun um hvort sorpeyðingarstöð ætti að vera á Suð- urtanga eða 1 Dagverðardal. Niöurstaða skoðanakönnunarinn- ar var á þá leið að 118 vom fylgjandi sorpeyðingarstöð í Dagverðardal en 68 á Suðurtanga. 126 atkvæðaseðlar vom auðir eða ógildir og samkvæmt heimildum DV vom á fjölda þeirra nefndir aörir staðir fyrir sorpeyðing- arstöðina en kosið var um. Úlfar S. Ágústsson, formaður yfir- kjörstjómar, sagði þaö mjög alvar- lega niðurstöðu þegar bæjarstjóm leitaði til bæjarbúa eftir skoðun þeirra og útkoman væri þessi. Kristinn Jón Jónsson, einn af full- trúum meirihlutans í bæjarstjóm, telur að niöurstaða könnunarinnar sé ektó marktæk þar sem svo fáir bæjarbúar mættu á kjörstað og telur það einungis gefa til kynna hlutleysi bæjarbúa. -pp Stuttarfréttir Tvær stofRbrautir Frarakvæmdir era hafnar við tvær stofiibrautir er tengja munu saman Suðurlandsveg og Vestur- landsvegannars vegar ogVcstur- landsveg og Breiðholtsbraut hins vegar. Össurihaffnað Össur Skarphéðinsson, verð- andi umhverfisráöherraj náði ekki kosningu í stjórn SÁÁ þegar 12 manns vora kosnir í 36 manna stjórn. Hlutu ahir aðrir sem framkvæmdastjórn gerði tihögu irm kosningu. Könnun . Sambands íslenskra lífeyrissjóða á lífeyrissjóöslánum sýnir að sjóðir tengdir hinu opin- bera era með ódýrastu lánin. Nefhd samgönguráðherra legg- ur til að stofnuð verði íslensk skipaskrá fyrir kaupskip, felldir möur eða lækkaðir skattar af far- mönnum tíl aö bæta samkeppnis- stöðu íslenskra sjómanna. Hertir refsidómar Meö nýlegri reglugerð um fullnustu refsidóma haía verið skertir vemlega möguleikar sí- brotamanna á að hljóta reynslu- lausn hvaö eftir annað. Eimskipbýðurbest Eímskip var með lægsta tilboð- ið, 230 milljónir, í flutninga fyrir varnarhðið á Keflavíkurflugvelh. Samskip var með flutningana áður. Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkurinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig og Alþýðubandalagið tapar en Kvennahsti eykur fylgi sitt mest. Minkur hækkar Verð á íslenskum minkaskinn- um hækkaöi um 6% á uppboði sem stendur yfir í Kaupmanna- höfn. Miðstjón Alþýðubandalagsins féllst ekki á það i gær að banna skuh framsal veiðikvóta ogvísaði tillögu þess efnis til þingflokks eftir harkalegar deilur. Konurviljasfjðma Kvennalistakonur telja brýnt að komast í neestu ritóssfjórn. Þetta kom fram á vorþingi sam- takanna nú um helgina. Um eitt hundaö ungmenni frá Reykjavík, á aldrinum 17 til 22 ára, eru í vinnu á Þingvöllum í sumar viö aö endurgera og bæta göngustíga Meiri veiði Ráðherra leggur samkvæmt frétt Stöövar tvö til meiri veiði á fiskistofnum en fiskifræðingar mæla með af fimm tegundum, þorstó, karfa, grálúða, ufsa og loðnu. 7000 færri störf Störfum á íslandi hefur fækkað um 7000 á sex árum. Atvinnuleysi veröur að mæta meö launalækk- unum, segja OECD-menn. Gömulbein Fomleifafræöingar grófu upp bein tveggja manna á Arnamesi viðDjúpumhelgina. Þau virðast mjög gömul, hugsanlega úr heiðnumsið. -Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.