Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1993, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 1993 POIAR RAFGEYMAR 618401 DEMPARAR Bílavörubú6in FJÖÐRIN Skeifan 2 • Simi 812944 'KÆ HARSNYRTI- VÖRURNAR o 13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG mfimizF Bíldshöfða 14 - slmi 672900 KOMI HÖGGDEYFAR Ef þú vilt hafa besta hugsan- lega veggrip á malbiki sem og utan vegar ...þá velur þú KONI! Nettasti og léttasti U þráólausi handfarsimi, , B NMT450, sem völ er á. EEEEEEY Þyngd 530 g. Mál 62x184x39 mm. Rafhlaða 800 mAh. eða 1200 mAh. Hröð endurhleðsla, 1 klst. í5S5hí» 1 IS AT ii j| 91-607820 | (90%). Hleðslutæki 12 V eða 220 V. Tekur númeraboð. Úrval aukahluta. (§;(/ • •j (j ):o c& * C. ÁMUNDASON HF. Bildshölða 18 - simi 687820 kVWWVWVWVWWW SMAAUGLYSINGADEILD OPIÐ: Virka daga frá kl. 9-22, laugardaga frákl. 9-16, sunnudaga frákl. 18-22. ATH.! Smáauglýsing í helgar- blað DV verður að berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag. Þverholti 11 — 105 Reykjavík Sími 91-632700 Bréfasími 91 -632727 Græni síminn: 99-6272 Útlönd Breskir hermenn úr liði Sameinuðu þjóðanna virða fyrir sér lik manns í þorpinu Bandol i Bosníu. Simamynd Reuter Serbar herða sókn sína á Gorazde: Fimmtíu fórust í sjúkrahúsárás Flugskeyti Serba grönduðu fimm- tíu og tveimur sjúklingum og hjúkr- unarliði í sjúkrahúsi í Gorazde í aust- urhluta Bosníu á sunnudag. Að sögn útvarpsins í Sarajevo lifði enginn sem í húsinu var af árásina. Fleiri hafa ekki látist í einni árás í fjórtán mánaða borgarastríðinu í Bosníu. Lík lágu eins og hráviði á götum Gorazde í gær og árásarmenn Serba hertu enn tök sín á borginni sem er undir stjóm íslamstrúarmanna. Stjómvöld Bosníu sögðu að Serbar hefðu hert árásir sínar á svæðið sem Sameinuðu þjóðimar hafa lýst griða- stað fyrr íslamstrúarmenn. Vamarsveitir múslíma í Gorazde hafa misst 59 menn fallna og rúmlega eitt hundraö hafa særst í fótgöngu- liðsárásum Serba. Bosníustjórn segir að Serbar fremji hræðilega glæp gegn íbúum Gorazde þar sem talið er að sextíu þúsund manns séu innikróaðir. Yfirmaður heraíla stjómarinnar í Bosníu hefur fyrirskipaö sveitum sínum, sem berjast viö sveitir Króata í miöhluta landsins, að virða vopna- hlé sem stjórnmálamenn náðu sam- komulagi um í Genf. Útvarpið í Sarajevo hafði það eftir Rasim Delc hershöfðingja að bosn- íski herinn ætlaðist til að vamar- sveitir Króata gerðu slíkt hið sama. Samkomulag um vopnahléið náðist innan forsætisráðs Bosníu í gær en þar eiga fulltrúa íslamstrúarmenn, Serbar og Króatar. Heimildarmenn sem standa nærri alþjóðlegu sátta- semjurunum sem höfðu milligöngu um vopnahléssamkomulagið, vom þó ekki bjartsýnir á aö það yrði virt. Reuter Dómur í Jan Mayen-deilunni: Mikilvægur fyrir Færeyjar Lausn deilunnar um hvar draga eigi línu í hafinu milli Færeyja og Bretlands getur ráðist af dómnum sem kveðinn verður upp í dag í Haag um miðlínuna milli Jan Mayens og Grænlands. Frá því aö Englendingar tilkynntu um verðmætan olíufund aðeins 13,5 sjómílur frá flskveiðilögsögu Fær- eyja hefur þótt mikilvægt að ákvarða hvar draga eigi miölínu milli land- anna tveggja. Færeyingum liggur á aö fá málið útkljáð þar sem í gangi er undirbúningur fyrir olíuleit í fær- eyskri lögsögu. í október hittast fulltrúar Færeyja og Bretar á ný til viðræðna um mál- iö. Hvorugur aðilinn er sagður hafa áhuga á því að málið komi til Al- þjóðadómstólsins í Haag. Ritzau Mannréttindaráðstefnan í Vín: Deilt um nærveru Dalai Lama Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbet, kveðst (ús til að tala á mannréttindaráð- stefnunni í Vín valdi það ekki oþægindum. Símamynd Reuter Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tí- bets, kvaðst í gær vera leiður yfir því að nærvera hans á mannréttindaráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna í Vín skyldi hafa leitt til deilna. Samein- uðu þjóðirnar létu undan þrýstingi kínverskra yflrvalda og strikuðu Dalai Lama út af lista yfir mikilvæga aðila sem boðið hafði verið til opnun- arhátíðarinnar. Yfirvöld í Austurríki, sem eru gest- gjafar ráðstefnunnar, hafa mótr ælt yfirgangi Kínverja. Vera kam að utanríkisráðherraAusturríkis íois Mock, sem búist er við að verði kjör- inn forseti ráðstefnunnar í dag, virði að vettugi óskir kínverskra yfirvalda og bjóði Dalai Lama að tala á ráð- stefnunni. Það gæti hins vegar leitt til þess að kínverska sendinefndin gengi út. „Ef mér verður boðið að tala og það veldur ekki miklum óþægindum þá mun ég auðvitað þiggja boðið,“ sagði Dalai Lama í gær. Dalai Lama lagði á þaö áherslu að Kínverjar og Tíbetar þyrftu sjálfir að leysa deilur sínar en kvaðst jafnframt þakklátur fyrir at- hygli Vesturlanda á því sem væri aö gerastíheimalandihans. Reuter Konaforsætis- ráðherra Kanada Kim Camp- bell, varnar- í— málaráðherra jf . 1 Kanada, var í gær kjörinn nýr leiðtogi ihaldsmanna 1 staö Brians Mulronev, sem lætur af emhætti eftir níu ára setu. Hlaut Campbell 53,5 prósent atkvæða. Búist er við aö Camp- bell, sem er lögfræðingur frá Vancouver, taki við eftir eina eða tvær vikur og skipi þá nýja stjóm áður en hún hefur baráttu fyrir kosningarnar síðar á þessu ári. Nýrvitnisburður í Palme-málinu Ikigreglan í Stokkhólmi kannar nú vitnishurð tveggja kvenna i sambandi við morðið á Olof Palme fyrir sjö árum. Segjast konumar hafa rétt fyrir morðið hitt á morðstaðnum mann sem önnur þeirra kannaðist við. Kon- urnar voru aö koma úr bíói og gengu fram hjá manninum, sem er vaxtarræktarmaður, og spurðu hann hvað klukkan væri. Hann svaraði þeim hins vegar ekki. Aö sögn kvennanna, sem ekki þoröu fyrr en í vetur að snúa sér til lögreglunnar, virtist maðurinn vera með labbrabbtæki hman á sér. Ýmis önnur vitni hafa sagst séö aðila með labbrabbtæki ná- lægt morðstaðnum. Lögreglan segir ýmislegt benda til aö morð- kvöldið hafi hópur veriö að und- irbúa rán nálægt moröstaðnum. Bæði konumar og maðurinn sem þær sáu em frá Finnlandi. Eftirgrennslan lögreglunnar þar hefurenganárangurborið. tt Engir hvalir hafaveiðst Hingað til hefur áhöfn fyrsta norska hvalbátsins, sem' fór á veiöar í síðustu viku, ekki séö hval en veðrið hefur verið slæmt. í gær voru nokkrir hvalbátar til viöbótar komnir á miðin eða voru á leiðinni. Búist er við fleirum i dag. A morgun hefiast hvalveiðar i vísindaskyni og leggja þeir bátar sem þátt taka í þeim úr höfn í dag. Reuter, TT, NTB Stuttar fréttir kom nýlega fram opinberlega í fyrsta sínn eftir sjö vikna veikindi, aö sögn Xinhua fréttastoftmnar. Konaíformannssæti Tansu Ciller, fyrrum hagfræði- prófessor, veröur væntanlega fyrsta konan tl að gegna embætti forsætisráðherra Tyrklands eftir að hún var kosin formaður stærsta flokks landsins. Rafsanjani sigraði Akbar Hasemi Rafsanjani var endurkjörinn forseti írans í kosn- ingum sem fóru fram í gær. Fylgi hans var minna en áður og bend- ir til dvínandi vinsældá byltingar Khomeinis erkiklerks. Rabinmeðefasemdir . Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, lét í Ijós efasemdir um ár- angur af næstu umferð friðarvið- ræönanna um Miðausturlönd sem hefjast í Washington í vikunni, Námumenn í verkfalii Verkfall námumanna í Úkra- ínu, sem lamar um 90 prósent kolaiðnaðarins í landinu, gæti stefnt pólitísku og efnahagslegu jafhvægi landsins í voða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.