Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1995, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1995, Blaðsíða 22
34 FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995 Afmæli Þórður Jónsson Þórður Jónsson, forstöðumaður þjónustusviðs hjá Visa íslandi, til heimilis að Melbæ 21, Reykjavík, er fímmtugurídag. Starfsferill Þórður fæddist við Framnesveg- inn í Reykjavík og ólst upp í vestur- bænum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1965 og viðskiptafræðiprófi frá HÍ1970. Þórður starfaði hjá SÍS frá 1970 og var þar forstöðumaður tölvu- deildar 1976-83, skrifstofustjóri Amarflugs hf. 1983-90 og er for- stöðumaður þjónustusviðs hjá Visa íslandifrá 1990. Þórður æfði og keppti í knatt- spymu með KR frá unga aldri. Hann lék nær tvö hundmð leiki með meistaraflokki KR á árunum 1963-72, auk leikja með úrvalsliðum. Þórður sat í aðalstjóm KR1972-76, í stjóm knattspymudeildar KR 1976-80, í stjóm íþróttabandalags Reykjavíkur 1988-94 og í ritnefnd um sögu bandalagsins, íþróttir í Reykjavík, sem út kom 1994. Þá sat hann í stjóm Skýrslutæknifélags íslands 1975-79. Fjölskylda Þórður kvæntist 19.12.1970 Björgu Kofoed-Hansen, f. 18.7.1948, þjón- ustufulltrúa og framhaldsskóla- kennara. Hún er dóttir Agnars Kofoed-Hansen flugmálastjóra og Bjargar Kofoed-Hansen húsmóður. Dætur Þórðar og Bjargar eru Hild- ur, f. 2.12.1967, tískumarkaðsfræð- ingur, við störf í London; Björg Sig- ríöur Anna, f. 24.7.1972, við nám í sjúkraþjálfun í Danmörku; Bergljót, f. 8.1.1975, verslunarskólanemi. Systir Þórðar er Áslaug, f. 16.4. 1938, skrifstofustjóri á Seltjamar- nesi. Foreldrar Þórðar: Jón Oddsson, f. 23.12.1908, d. 21.5.1988, verkstjóri við Vélsmiðjuna Héðin hf., og Berg- ljót Bjömsdóttir, f. 28.3.1911, hús- móðir. Ætt Jón var sonur Odds, hafnarfógeta í Reykjavík, Jónssonar og Guðríöar Þóröardóttur, hafnsögumanns í Ráðagerði við Reykjavík, bróður Jóns í Hlíðarhúsum, Péturs, fóður Þórðar í Oddgeirsbæ, og bróður Guðmundar, bæjarfulltrúa á Hóln- um í Reykjavík, fóður Helga Steff- ensens, læknis á Siglufirði, og Sig- þrúðar, móður Valdimars, læknis á Akureyri, föður dr. Jóns Steffensens læknaprófessors og helsta hvata- manns að Læknasafninu í Nesi við Seltjörn. Þóröur var sonur Þórðar, lóös í Borgarabænum í Reykjavík, Guðmundssonar, útgerðarmanns og verslunarmanns í Marteinsbæ, syðst á Glasgow-lóðinni í Reykjavík, Bjamasonar. Móðir Þórðar í Ráða- gerði var Vilborg Jónsdóttir frá Amarhólskoti. Bergljót er dóttir Björns, b. á Hna- usum í Þingi, Magnússonar, hrepp- stjóra á Hnausum, Steindórssonar, b. í Þórormstungu, Snæbjömsson- ar, b. á Gilsstöðum í Vatnsdal, Snæ- bjömssonar, prests í Grímstungu, Halldórssonar. Móðir Bergljótar var Ólafía Láms- dóttir, prests í Selárdal og kennara í Reykjavik, Benediktssonar, prests í Selárdal, Þórðarsonar, ættföður Kjamaættarinnar, Pálssonar. Móð- ir Ólafíu var Ólafía Sigríður Ólafs- dóttir, dómkirkjuprests í Reykjavík ogkonungskjörins alþm., Pálsson- ar, prests í Ásum, Ólafssonar, b. þar, Pálssonar. Móðir Páls var Helga Jónsdóttir eldprests Stein- grímssonar. Móðir Olafs dóm- kirkjuprests var Kristín, systir Þur- íðar, langömmu Vigdísar forseta. Sveinn Kristinsson Sveinn Kristinsson, fyrrv. ritstjóri og blaðamaður, Þórufelli 16, Reykja- vík, ersjötugurídag. Starfsferill Sveinn fæddist á Hjaltastöðum í Skagafirði og ólst upp í Skagafiröin- um við almenn sveitastörf og síðan öll almenn störf. Hann flutti tvítug- ur til Reykjavíkur, lauk stúdents- prófi frá MR1951 og lagði um skeið stund á íslensk fræði og lögfræði við HÍ. Þá hefur hann unnið að sagn- fræðirannsóknum í seinni tíð, m.a. viðHÍ. Sveinn var annar útgefanda og ritstjóri Skákritsins 1950-53, ásamt Þóri Ólafssyni hagfæðingi. Hann var skrifstofumaður á Keflavíkur- flugvelli 1953-55 og hjá SÍS í Reykja- vík 1956-63 en hefur síðan stundað blaðamennsku, kennslu, ritstörfog þýðingar. Sveinn skrifaði skákþætti í Morg- unblaðið og Þjóðviljann, var fast- ráðinn blaðamaður við Morgun- blaðið um skeið og flutti íjölda fyrir- lestra í Ríkisútvarpið, einkum á ár- unum 1960-77. Þá var hann bóka- vörður á Landsbókasafninu 1987-88. Sveinn var í hópi snjöllustu skák- manna hér á landi á sjötta áratugn- mn. Hann varð skákmeistari Taflfé- lags Reykjavíkur árin 1951 og 1957, tefldi með skáklandsliöinu 1953 og fyrir íslands hönd á stúdentaskák- mótinu í Lyon 1955. Eftir hann hafa birst smásögur, kvæði og ýmsar greinar í blöðum og tímaritum. Fjölskylda Sveinn kvæntist 29.8.1964 Jó- hönnu Jónsdóttur, f. 6.9.1934, skrif- stofumanni. Hún er dóttir Sturlu Jóns Þórarinssonar, sjómanns og skólaumsjónarmanns í Bolungarvík og síðar í Hafnarfirði, og k.h., Alf- heiðar Einarsdóttur húsmóður. Dóttir Sveins og Jóhönnu var Álf- heiður Þorbjörg, f. 1964, d. sama ár. Systkini Sveins sem upp komust voru Eiríkur, f. 1916, d. 1994, nor- rænufræðingur og kennari; Hjör- leifur, f. 1918, d. 1992, bóndi; Þor- bjöm, f. 1921, kennari, Jökull, f. 1935, vistmaður á Sólborgu á Akureyri. Foreldrar Sveins vom hjónin Kristinn Jóhannsson, f. 2.12.1886, d. 4.2.1941, bóndi og verkamaður, síðast á Sauðárkróki, og Aldís Sveinsdóttir, f. 13.10.1890, d. 1.11. 197.7, húsmóðir. Ætt Kristinn var sonur Jóhanns bónda Jónassonar, b. í Miðsitju, Jónsson- ar, prests á Miklabæ, Jónssonar, bróður Bjargar, ömmu Stefáns Stef- ánssonar, langafa Sigurðar Bjarna- sonar, fyrrv. alþm. og sendiherra. Móðir Jóhanns var Hólmfríöur, systir Jóhannesar sýslumanns, langafa Matthíasar Johannessens, skálds og ritstjóra. Hólmfríður var dóttir Guðmundar, b. á Miklahóli, bróður Halls, langafa Páls Péturs- sonar þingflokksformanns. Guð- mundur var sonur Jóns, hrepp- stjóra á Bjamastöðum, Jónssonar, fjórðungslæknis Péturssonar. Móðir Kristins var Margrét Jóns- dóttir Skúlasonar, skálds á Ög- mundarstöðum, og Guðrúnar Guð- mundsdóttur úr Hörgárdal. Aldís var dóttir Sveins, kennara frá Skatastöðum, Eiríkssonar af ætt Sveins Pálssonar landlæknis. Móðir Aldísar var Þorbjörg, systir Þóreyj- Þórður Jónsson. Kristín var dóttir Þorvalds, prests og skálds í Holti, Bövarssonar, prests í Holtaþingum, Presta- Högnasonar, prests á Breiðabólstað, Sigurðssonar. Móðir Ólafar Sigríðar var Guðrún Ólafsdóttir Stephen- sens, sekretéra í Viðey, Magnússon- ar, konferensráðs í Viðey, Olafsson- ar, stiftamtmanns og ættföður Stephensenættarinnar, Stefánsson- ar. Þóröur og Björg taka á móti gest- um í KR-heimilinu við Frostaskjól í dag milli kl. 17.30 og 20.00. Sveinn Kristinsson. ar, móður Elínborgar Lámsdóttur skáldkonu. Þorbjörg var dóttir Bjarna Hannessonar, prests á Ríp, Bjamasonar, bróður Eiríks á Staðí- arbakka, langafa Jóns Þorlákssonar forsætisráðherra og Bjargar, móður SigurðarNordals. Sveinn og Jóhanna verða með heitt á könnunni á heimili sínu, eft- irkl. 20.00 ídag. 80 ára Biraa Lárusdóttir, Fróðasundi 10A, Akureyri. Jónas Aðalsteinsson, BrúarJandi I, Svalbaröshrcppi. Jórann Jónsdóttir, Hringbraut 45, Reykjavík. Hverfisgötu 22B, Hafnarfirði. Númi Friðriksson, Heiöarlundi 7F, Akureyri. Ásta Krlstin Kristjónsdóttir, Túngötu8, Reykjavik. Aagot Emilsdóttir, Faxatúni 16, Garöabæ. Sigríður Sigurðardóttir, Háaleitisbraut 28, Reykjavík. Gigja Karelsdóttir, Kveldúlfsgötu 24, Borgarnesi. 40ára 70 ára Stefania Þ. Áraadóttir, Ægisíðu46, Reykjavík. Guðmundur Erasmusson, Syðri-Fljótum, Skaftárhreppi. 60 ára Sjöfn Geirdal, Suöurgötu 109, Akranesi. Hafdis Ingvarsdóttir, Austur8trönd2, Selíjamamesi. 50 ára Jóna Bj örk Stefánsdóttir, Barmahlíð 26, Reykjavík. Svanur Líndal Hauksson, Vesturgötu 69, Akranesi. Sigurjón Ingi Haraldsson, Klausturhvammi 32, Hafnarfirði. Sigurður Nikulás Einarsson, Laugavegi 49, Reykjavík. Hannes Rikarðsson, Kjarrvegi 1, Reykjavík. Árni Jónsson Sigurðsson, Ofanleiti 27, Reykjavík. Þóra Björk Jónsdóttir, Garðhúsi, Seylúhreppi. SSgurður R. Guðmundsson, Rúnar Pálsson, Fagrabergi58, Hafnarfirði. FteynirPálsson, Karólina Kristin Jósepsdóttir, Lækjargötu 34C, HafnarfiröL Andlát____________________ Óli Magnús í saksson Óli Magnús Isaksson, fyrrv. for- stjóri, Dyngjuvegi 4, Reykjavík, lést í Reykjavík 21.2. sl. Útför hans fór fram frá Áskirkju í gær. Starfsferill Óli fæddist á Eyrarbakka 26.1.1878 og var þar til sex ára aldurs en fór þá til móðurbróður síns, Sigurðar Ólafssonar, b. á Nesi við Nestjöm á Seltjamamesi, og ólst þar upp til sextánáraaldurs. Óli gekk í VÍ og útskrifaðist þaðan 1914 en starfaði síðan hjá Garðari Gíslasyni í hálft annað ár. Áratuga- afskipti hans af bílainnflutningi hóf- ust er hann kom til starfa hjá frænda sínum, Jónatan Þorsteins- syni, á Laugavegi 31, en Jónatan var annar fyrsti bílainnflytjandi hér á landi og flutti þá inn bíla af gerðinni Willys Overland. Óli var síðan forstjóri hjá Sveini Egilssyni þar sem hann starfaði til 1946. Hann keypti Bílaverkstæðið Þrótt ásamt Sigfúsi Bjamasyni og nefndu þeir fyrirtækiö Stefni hf. en þar var Óli forstjóri til 1952. Óli seldi svo Sigfusi sinn hlut en starfaði hjá bifreiðadeild Heklu eftir það til 1991 er hann lét af störfum, níutíu og þriggjaára. Fjölskylda Kona Óla var Unnur Ólafsdóttír, f. 1897, d. 1983, listakona, dóttir Ól- afs Ásbjamarsonar frá Ytri-Njarð- vík, kaupmanns í Reykjavik, og k.h., Vigdísar Ketilsdóttur úr Höfnum. Alsystkini Óla: Ingibjörg, f. 3.9. 1893, d. 7.7.1979, húsfreyja á Melstað í Miðfirði, var gift séra Jóhanni Kr. Briem og áttu þau fjögur böm; Nils, f. 3.3.1893, d. 16.2.1991, lengi versl- unarstjóri fyrir Garðar Gíslason í Ólafsvík og síðar starfsmaður hjá Síldarútflutningsnefnd á Siglufirði, síðast búsettur í Garðabæ, var kvæntur Steinunni Stefánsdóttur úr Fljótum og em börn þeirra fjög- ur; Júlia Guðrún, f. 4.11.1895, d. 1919; Ólöf, f. 21.9.1900, d. 1.5.1987, var gift Einar Kristjánssyni á Siglu- firði, Akureyri og loks í Reykjavík en böm þeirra eru þijú; Bogi, f. 8.2. 1905, d. 11.12.1951, búsettur á Siglu- firði, Akureyri og í Reykjavík. Foreldrar Óla vom Isak Jakob Jónsson frá Vindási í Holtum, f. 7.11. 1852, d. 9.6.1912, verslunarmaður hjá Lefpli-verslun á Eyrarhakka, og s.k.h., Ólöf Ólafsdóttir frá Árgils- stöðum í Hvolhreppi, f. 11.11.1859, d. 5.5.1945, húsmóðir. Ætt Föðurforeldrar Óla vom Jón, b. á Vindási í Landsveit, Þorsteinsson, b. þar Pálssonar, og Karen, dóttir ísaks Bonnesen, sýslumanns á Velli Óli Magnús ísaksson. í Hvolhreppi, og konu hans, Önnu Kristínar Ohlmann. Móðursystir Óla var Sesselja, móðir Ólafar, móður Hallgríms Helgasonar tónskálds, Ástríðar, ekkju Hans G. Andersen, og Sigurð- ar, fyrrv. stjómarformanns Flug- leiða hf. Móðurbróðir Óla var Berg- steinn, faðir Gizurar, fv. hrl., föður Bergsteins brunamálavarðar og Sig- urðar sýslumanns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.