Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 21. APRÍL 1995 11 Merming Ásmundur Sveinsson. Náttúrusýn Ásmundar og Kjarvals í Ásmundarsaf ni Páskaóratorían Hljómplötufyrirtækið Harmonia Mundi hefur ný- lega gefið út á geislaplötu Páskaóratoríu Bachs í flutn- ingi einsöngvaranna Barböru Schlick, Kai Wessel, James Taylor og Peter Kooy, auk Collegium Vocale- kórsins og hljómsveitarinnar undir stjóm Philippe Herreweghe. Kantatan „erfreut euch, ihr Herzen" (Megi yðar hjörtu gleðjast), BWV 66 er einnig á plöt- unni í flutningi sömu listamanna. Talið er víst, að Páskaóratoría Bachs hafi upphaflega verið samin sem kantata og flutt sem slík, snemma árs 1725. Bach er talinn hafa breytt verkinu a.m.k. tvisvar eftir þennan frumflutning og að síðustu í órat- oríu, með tilheyrandi trúarlegum texta. Verkið er í eÚéfu þáttum, þar sem tveir þeir fyrstu eru leiknir, sá þriðji og sá síðasti (nr. 11) eru sungnir af kómum, en lúnir skiptast í resitatíf og aríur til skipt- is og eru sungnir af einsöngvurunum með hljómsveit- arundirleik. Sá hópur söngvara og hljóðfæraleikara sem hér flytur verkið, hefur sérhæft sig í flutningi gamallar tónlistar. Leikið er á gömul hljóðfæri og eru söng- og leikhefðir átjándu aldar í heiðri hafðar við flutninginn. í stuttu máh má segja að hér sé valinn maður í hverju rúmi og betri flutning þessa verks man undirritaður ekki eftir að hafa heyrt. Upptökurnar eru Tónlist Áskell Másson og geysigóðar, með fallegum og lifandi hljóm og í góðu jafnvægi. Kantatan „Erfreut euch, ihr Herzen“, BWV 66, er einnig verk sem tengist páskahátíðinni og ætlað til flutnings á páskum. Verkið er í sex þáttum, eða atrið- um, sem byrja á kór og enda á kóral með einsöngsatrið- um í milli. Þessi fallega kantata er eins og Páskaórator- ían, frábærlega vel flutt. Nú hafa þessir ágætu lista- menn þegar gert upptökur af Mattheusar- og Jóhann- esar-passíum Bachs, auk annarra verka meistarans. Væri forvitnilegt að heyra þær í ljósi þessara geysi- góðu upptaka sem á þessari geislaplötu eru. í Ásmundarsafni hefur undanfarið staðið yfir sýning þar sem verkum tveggja helstu meistara íslenskrar myndlistar, þeirra Jóhannesar Kjarv- als og Ásmundar Sveinssonar, er teflt saman. Sýningin var áður í Lista- safni Akureyrar og er samstarfsverkefni þess og Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða og Ásmundarsafns. Sýningin mun auk þess hafa farið til Prag og Edinborgar og er því öðrum þræði hugsuö sem kynning á ís- lenskri hst erlendis. Undirritaður hefur áður fjallað um sýninguna í Lista- safni Akureyrar og verður hér að nokkru vísaö í þá umfjöllun og borið saman hve'rnig sýningin virkar í þessum tveimur söfnum. Náttúra - náttúra Titill sýningarinnar er Náttúra - náttúra og á að undirstrika að báðir hstamennimir vinna út frá náttúrunni og landinu í verkum sínum og tengdu hinni nýju módernísku sýn. Með eihtihi fyrirhöfn og stórum skammti af áræði hefði verið hægt að gera sýningu þessa að því sem henni virðist hafa verið ætlað; að sviðsetja sjónleik frá fjórða og fimmta áratugnum þar sem tröll Ásmundar fara hamförum í fjöllum Kjarvals. Þó bætt hafi verið við verkum frá því á Akureyri og hálfhringsvíðáttan Myndlist Ólafur J. Engilbertsson Hringiðan Kór Langholtskirkju flutti Jóhannesarpassiuna eftir Bach þrisvar sinnum um páskahátíðina með frekar nýstárlegum hætti. Efnið er páskasaga frelsarans sam- kvæmt frásögu Jóhannesar guðspjallamanns. Form verksins er óratoríuform en það form kemst næst því að vera ópera. Flutningurinn var mjög hátíðlegur og lifandi enda verkið mjög leikrænt. DV-mynd VSJ Það var fjör hjá hestamönnum í Kópavogi i síðustu viku þegar þeir vígðu nýja reiðhöll í tilefni af 30 ára afmæli Hestamannafélagsins Gusts. Margir góðir gest- ir komu til að votta hestafólkinu virðingu á þessum merku tímamótum og á meðai þeirra voru allir fyrver- andi formenn félagsins sem sjást hér saman. í Ásmundarsafni hjálpi mikið til við að gera sjóndehdarhring úr verkum Kjarvals, eru höggmyndir Ásmundar allar handan veggjar og samsph nánast ekkert á milh verka listamannanna. Val á verkum virðist að auki handahófskennt og helst sætir tíðindum sýning á steinum Ásmundar uppi undir hvolfþakinu, en ekkert er þar sem svo mikið sem minnir á Kjarval. Ólíkur stíll Það er helst í anddyrinu að verk listamannanna tveggja nái eitthvaö að kallast á. Þar svífur Skjaldbreiöur Kjarvals frá 1957-’62 frá veggnum á móts við afsteypur nokkurra verka Ásmundar, sem þó hafa ekki thskh- ið vægi sakir smæðar. Stih listamannanna er það ólíkur að hreint ekki er gefið mál aö samspil gangi upp. Þegar sýningar eru skipulagðar með það fyrir augum að gera slíka tilraun er frumskyldan að kanna grundvöll- inn. Sýningunni fylgir ítarleg og innbundin skrá með ritsmíð Kristínar G. Guðnadóttur um náttúrusýn Kjarvals og grein eftir Gunnar Kvaran sem áður birtist í bók um náttúruna í hst Ásmundar. Sameiginlegt viðfangsefni í listinni Sameiginleg niðurstaða þessara greina er í sem stystu máli sú að hér sé í báðum tilvikum um að ræða næma listamenn sem ólust upp í faðmi náttúrunnar og líta á hana sem eiginlegt viðfangsefni sitt í hstinni. Því sé útgangspunktur þeirra nánast sá sami þótt nálganir séu ólíkar. Fróð- legt hefði verið að hafa hér samanburðargrein á hst þessara tveggja meistara íslenskrar samtímahstar eða grein þar sem áþekkir fletir í list þeirra væru gaumgæfðir. En nálgunin er hér öll með hefðbundnum hætti líkt myndimar hefðu ekki komið fram í dagsljósið áður. Ósamræmið á mhli skrár og sýningar er meira fyrir þær sakir að í skránni er að finna gnægð verka sem ekki eru á sýningunni. Sýningin á verkum Kjarvals og Ásmundar í Ásmundarsafni stendur út apríl. Menningarvaka í Stykkishólmi I Stykkishólmi er félag - Emla - sem hefur það markmið að efla and- legan og félagslegan þroska og menn- ingarlega vitund félagskvenna sinna. Vorvaka Emlu var haldin 5. apríl í Stykkishólmskirkju. Dagskrá var íjölbreytt. Sigrún Eldjárn las úr óút- kominni bók sinni, Birna Pétursdótt- ir og Rakel Olsen fjöhuöu um Jens Hjaltalín á Setbergi og Hjörleifur Stefánsson flutti erindi um gömlu kirkjuna í Hólminum. í tengslum við vökuna var samsýning Ingu Elínar og Þóru Sigþórsdóttur í Norska hús- inu. Ingibjörg Marteinsdóttir söng við undirleik Láru Ragnarsdóttur á menningarvökunni. DV-mynd Arnheiður Ólafsdóttir, Stykkishólmi BJÓÐUM ÚRVALS ÚTSÆÐI Áburöur, kalk, yfirbreiöslur og öll verkfæri sem til þarf Ráðgjöf sérfræðinga um garð- og gróðurrækt GRÓÐURVÖRUR VERSIUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 3211 • Fax: 554 2100 <r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.