Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995
11
►v____________________________________________Fréttir
Framkvæmdir við Vesturlandsveg umskipti til hins betra, segir vegamálastjóri:
Þrjár brýr við Ártúns-
brekku á næsta ári
- framkvæmdir hafnar og brú við Höfðabakkagatnamót opnuð í ár
„Viö vonumst til aö breikkunin verði
algjör umskipti til hins betra. Þá er
átt viö Ártúnsbrekku og ekki síður á
öllum nýja kaflanum viö gatnamót
Höföabakka," sagöi Helgi Hallgríms-
son vegamálastjóri í samtali viö DV
um fyrirhugaöar framkvæmdir við
byggingu nýrra brúa yfir Elliðaár og
Reykjanesbraut. Brýrnar munu gjör-
breyta hinum hættulega og umferð-
arþunga kafla um Ártúnsbrekku og
leiðinni að nýju tengingunni við Suð-
urlandsveg.
Helgi sagði að framkvæmdirnar frá
Höfðabakkabrú að kafla rétt vestan
brúarinnar yfir Reykjanesbraut og
Elliðaár myndu kosta um 1.300 millj-
ónir króna.
Undirbúningur er þegar hafinn að
breikkun Elliðaárbrúar. Á síðasta
ári var Suðurlandsvegur opnaður frá
Rauðavatni niður á Vesturlandsveg.
Þá hófust jafnframt framkvæmdir að
breikkun Vesturlandsvegar með að-
skildum akreinum að gatnamótun-
um við Höfðabakka. Síðastliðinn vet-
ur hófust svo framkvæmdir við
Höfðabakkagatnamótin. Þeim á að
ljúka á yfirstandandi ári.
Framhaldið verður að breikka veg-
inn áfram í bæinn vestur Ártúns-
brekku með tveimur aðskildum ak-
Undirbúningur er hafinn að breikkun Elliðaárbrúar. Framkvæmdir við bygg-
ingu hennar hefjast á næsta ári og eru áfangi i framhaldi af breikkun Vest-
urlandsvegar, sem hófst á siðasta ári, og byggingu brúar og fleiri fram-
kvæmdum við gatnamót Höfðabakka. Á næsta ári verður einnig hafist handa
við tvöföldun brúar við Breiðhöfða, brúarinnar sem liggur undir veginn á
móts við bensínstöð Esso efst i Ártúnsbrekku. DV-mynd S
reinum. Þannig verður byggð önnur
brú yfir Breiðhöfða, þar sem nú er
ekið undir veginn við bensínstöð
Esso, efst í Ártúnsbrekkunni. Síðan
verður framkvæmdum haldið áfram
niður að Elliðaánum og önnur brú
verður byggð þar og einnig við
Reykjanesbrautina eða leiðina upp í
Breiðholt. Með þessu móti verður
einn hættulegasti kaflinn í vegakerfi
íslands úr sögunni með tvöfoldun
brúarinnar. -Ótt
.
; .
:
.
just do it
■
Air Rover hlaupaskórinn hefur allt til þess ad koma þér á rétta braut og á leiðarenda.
Spurðu um Air Rover í næstu verslun með skó eða íþróttavörur.
REYKVÍKINGAR!
NÚ ER KOMINN TfMI FYRIR SUMARDEKKIN
NAGLADEKKIN AF SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI