Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 17
16
FÖSTUÐAGUR 28. APRÍL 1995
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995
Iþróttir
_ 'O.
V É 'f'
Þjódíþjálfun
- heilsuef ling
• Það deyja u.þ.b. 300 fslend-
ingar á ári úr reykingum eða 6
stykki 50 manna rútur. Reyking-
ar valda hrukkum, getuleysi og
tannlosi. Það er misskilningur að
fólk verði sexí, grannt og smart
af því að reykja, líttu bara í kring-
um þig.
• Til að styrkja hjartavöðva-
ann þarf að reyna á hann reglu-
bundið og hæfilega mikið. Nýj-
ustu rannsóknir gefa til kynna
aö lágmarksálagið þurfi ekki að
vera nema um 50% af hámarks-
hjartsláttarhraða til að hjartað
þjálfist. TO að finqa hámarks-
hjartsláttarhraða er þumalfing-
ursreglan að draga lífaldur frá
200.
• Við áreynslu, sem nemur
50-60% af hámarkspúlsi, brennir
líkaminn frekar fitu en kolvetni
og slíkt álag í langan tíma (60
mín.) hentar því betur til aö
grennast en mikið álag í stuttan
tíma.
• Heppilegasta hreyfingin og
sú einfaldasta er rösk ganga,
skokk eða hjólreiðar, hvort sem
það er á reiðhjóli eða þrekhjóli.
Sund er einnig afbragðsgóð
hreyfing. Öll hreyfing í daglegu
lífi gerir okkur gott. Stigarnir
styrkja okkur en lyftan letur.
Spörum bílinn, göngum meira.
• Þegar einstaklingurinn eyk-
ur reglubundna hreyfingu styrk-
ist oft geta hans til að bæta enn
frekar eigin lífsstíl. Áhugi á aö
borða hollan mat eykst og tóbaks-
löngun getur minnkað. Streita
minnkar og við það batna oft
samskipti við sína nánustu á
vinnustað. Likamsrækt er gott
svefnmeðal.
• Hugarfar skiptir máli. Þegar
við erum neikvæð, öfundum
aðra, erum þrasgjörn, segjum
ósatt og beinum athyglinni ein-
göngu að vandamálum missum
við orku. Til að hlaöa sig orku
þarf aö hugsa eins og vinnendur
gera. Landshðsstrákamir okkar
í handknattleik gera þaö. Þeir
læra af mistökum, gefast ekki
upp og halda jákvæðir áfram í átt
að settu markmiöi, staðráðnir í
að gera sitt besta. Hvað meö þig?
• Slökun dregur úr streituein-
kennum eins og höfuðverk,
vöðvaspennu og svefnerfiöleik-
um. Slökun, íhugun og jóga eru
góðar aðferðir til að vinna gegn
streitu. Kynntu þér þessar að-
ferðir og geföu þér ákveðinn tíma
dags til að iðka slökun.
• Þið sem eruð í prófum, takiö
ykkur af og til hlé frá lestrinum,
farið út aö ganga eða skokka eða
í sund og teygið vel á. Þaö skerp-
ir athyglina. Nartið í ávexti milli
mála. Þjálfun heimsmeistaranna
í bridge og skák fer ekki eingöngu
fram við skák- eða spilaborðið.
• Á heilsugæslustöövum getur
þú fengið ráð hjá fagfólki hvernig
best er fyrir þig að stunda eða
hefja líkamsrækt. Þar er hægt að
fá ýmsar mælingar og athuganir
sem skipta máli fyrir kyrrsetu-
fólk sem vill hefja líkams- og
heilsurækt. Heilsugæslustöðvar
vinna að forvömum. Þú átt rétt
á þeirri þjónustu.
Gunnar Einarsson
þjálfari.
IÞROTTIR FVRIR RLLR
Kvennalandsliöið 1 knattspymu:
ísland í 4. sæli
- á nýjum styrkleikalista UEFA
Ingibjörg Hmriksdóttir skriíar:
íslenska landsliðið í kvenna-
knattspymu er í fjórða sæti sam-
kvæmt nýjum styrkleikalista
sem UEFA hefur gefið út. Listinn
er gefinn út samkvæmt nýjum
reglum sem kvennanefnd UEFA
hefur sett og var samþykktur í
stjórn UEFA í síðasta mánuði.
Þar er keppninni skipt upp í tvo
styrkleikaflokka og verður
keppnin tvískipt, þar sem sterk-
ari hðin leika í fjórum riölunum
í fyrsta styrkleikaflokki, en liðin
í 17.-34. sæti listans leika í öðrum
styrkleikaflokki sem jafnframt er
landfræðhega raðaður.
Sigurvegarar í riðlunum í
fyrsta styrkleikaflokki komast
beint í fjórðungsúrslit en liðin í
öðru og þriðja sæti hvers riðils
leika tvo leiki milli riðla til að
ákvarða hvaða fjögur lið til við-
bótar leika í fjórðungsúrslitum.
Neðstu lið hvers riðils leika gegn
sigurvegurnum í riðlum annars
styrkleikaflokks til að skera úr
um hvort lið falla um flokk eða
ekki.
Röðunin í fyrsta styrkleika-
flokki lítur þannig út: Þýskaland,
Svíþjóð, Danmörk, ísland, Noreg-
ur, England, Rússland, ítaha,
Frakkland, Spánn, Rúmenía,
Finnland, Króatía, Hohand,
Portúgal og Slóvakía.
Þegar hefur verið dregið í riðla
í öðrum styrkleikaflokki en drátt-
ur í fyrsta styrkleikaflokki fer
fram í Belgíu 6. maí næstkom-
andi.
Noröurlandamót í badminton:
Margiraf þeim
bestu í heiminum
- veröa með á mótinu sem haldiö
veröur hér á landi um helgina
Broddi Kristjánsson, besti badmintonmaður okkar í áraraðir, verður í eldlin-
unni í TBR húsunum um helgina.
Margir bestu badmintonleikmenn
heims hafa tilkynnt komu sína á
Norðurlandamótið sem verður í
Reykjavík um helgina. Þetta verður
i fjórða sinn sem mótið er haldið hér
á landi og nú sem áður er um stórvið-
burð að ræða í badmintonlífinu. Eins
og áður skipa Svíar og Danir sér á
fremsta bekk í þessari íþrótt og má
því segja að mótið sé eitt það sterk-
asta sem haldið er í Evrópu.
Margir frábærir leikmenn hafa
boðað komu sína á mótið. Má þar
fremstan nefna Thomas Stuer Lau-
ritsen frá Danmörku en hann er af
mörgum talinn arftaki Mortens
Frosts sem nú er þjálfari danska
landsliðsins.
Lauritsen hefur verið allra fremsti
badmintonleikari heims undanfarin
ár. Hann hefur sigrað á flestum stór-
mótum heims og vann til bronsverð-
launa á síöustu ólympíuleikum. í
hópi Dana má einnig nefna Camilu
Martin, sem er í fjórða sæti á alþjóða
Grand Prix listanum. Hún fær þó lík-
lega harða keppni frá „kínverska"
Svíanum Lim Xiao Qing, sem nú er
í þriöja sæti á heimslistanum. Lim
þessi dvaldi hér á landi við þjálfun
og keppni hjá TBR 1991.
Besti tvenndarleiksspilari heims,
Thomas Lund frá Danmörku, kemur
einnig en hann hefur slegið í gegn á
öllum stórmótum síðustu fjögur ár.
Hann leikur með unnustu sinni,
Marlene Thomsen, en þau hafa ekki
tapað leik á síðustu tíu Grand Prix
mótum.
Norðurlandamótið verður í húsum
Tennis- og badmintonfélags Reykja-
víkur á laugardag og sunnudag.
Handboltaþjálfarar óskast
Handknattleiksdeild Gróttu óskar eftir þjálfurum fyrir
yngri flokka deildarinnar fyrir næsta vetur. Iþrótta-
menntun eða reynsla af þjálfun æskileg.
Upplýsingar veitir Gísli í s. 611133, íþróttamiðstöð-
inni á skrifstofutíma, og Hafliði í s. 628853.
DV
Sigur með
súru bragði
- aðeins tveggja marka sigur á Pólverjum og ísland 13ja sæti á Bikuben
Víðir Sigurðsson, DV, Danmörku:
Að vera 7 mörkum yfir rúmum 20
mínútum fyrir leikslok og vinna síðan
nauman sigur, 21-23, telst engan veginn
nógu gott gegn Pólverjum, sem voru
búnir að tapa með samtals 28 mörkum
gegn Dönum og Svíum á Bikuben-mót-
inu. Niðurstaða mótsins er því að ís-
lenska liðið spilaði einn heilsteyptan
leik, gegn Dönum, og hvað sem hver
segir þá er það ekki nægilega uppör-
vandi á lokasprettinum fyrir HM.
Þegar staðan var 17-10 snemma í síð-
ari hálfleik í Valby-höllinni í Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi benti ekkert til
annars en að ísland myndi valta yfir
Pólverjana eins og hin liðin gerðu. En
eftir það fór hver sóknin á fætur ann-
arri forgörðum, flestar vegna línu eða
ruðnings, auk þess sem tvö vítaköst fóru
í súginn á þessum kafla, og Pólverjar
minnkuðu muninn þrívegis í eitt mark.
Síðast 21-22 þegar mínúta var eftir og
þeir manni fleiri, en Sigurður Sveinsson
bjargaði andliti íslands, hann krækti í
vítakast hálfri mínútu fyrir leikslok og
úr því skoraði Valdimar Grímsson.
Það var ýmislegt jákvætt viö leik ís-
lenska liðsins framan af. Sérstaklega
frammistaöa Gústafs Bjarnasonar sem
skoraði úr fimm fyrstu skotum sínum
og ætti að vera öruggur með aö spiia í
vinstra horninu á HM. Valdimar var líka
mjög ógnandi í hægra horninu og Dagur
Sigurðsson og Sigurður Sveinsson
drjúgir fyrir utan. En slaki punkturinn
var skyttustaðan vinstra megin, Patrek-
ur náði sér ekki á strik og hvorki Júlíus
né Jón náðu að bæta um betur. Óvenju-
litið fór fyrir Geir á línunni lengst af.
Ólafur Stefánsson leysti Valdimar af í
hægra horninu síðasta korterið en gerði
lítið og Einar Gunnar lék aðeins í vörn-
inni. Guömundur Hrafnkelsson var í
markinu aUan leikinn en náði sér ekki
vel á strik, enda fékk hann mikið af
dauðafærum til að glíma við.
Boltinn tapaðist allt of oft í sókninni,
ekki bara í seinni hálfleiknum heldur
líka á meðan ísland var vel yfir, og Pól-
veijar skoruöu 10 mörk úr hraða-
upphlaupum. í eðhlegri uppstillingu var
íslenska vörnin ekki í teljandi erfiðleik-
um og því blóðugt að fá á sig mörkin í
gegnum bakdyrnar.
Sem sagt, sigur, en með frekar súru
bragði og enn sem fyrr er það stóra
spurningin sem blasir við í lok undir-
búningsins fyrir HM: Getur íslenska lið-
ið skilað jöfnum og heilsteyptum leikjum
þegar í alvöruna kemur þegar það geng-
ur svona brösuglega fram aö henni?
Danir unnu Svía
Víðir Sigujðsson, DV, Danmörku:
Danir gerðu sér lítið fyrir og
unnu Svía á sannfærandi hátt,
31-27, í lokaleik Bikuben-mótsins
í gærkvöldi. Þeir voru yfir í hálf-
leik, 18-11, og þurftu einmitt að
vinna með sjö marka mun til að
vinna mótið. Staðan var 29-22
skömmu fyrir leikslok, en Svíar
minnkuöu muninn í lokin og
tryggðu sér með því efsta sætið.
Danirnirgóðir
Þaö var allt annað að sjá til
danska liðsins en í leiknum gegn
íslendingura. Það er nánast eins-
dæmi aö Svíar fái á sig 18 mörk
í einum hálfleik og það er ljóst
aö danska liöið getur hæglega
gert það gott á HM Claus Jacob
Jensen skoraöi 9 mörk fyrir Ðani
og Nikolaj Jacobsen 8 en Magnus
Andersson skoraði 8 mörk fyrir
Svia og Erik Hajas 6.
Lokastaðan
Lokastaðan á Bikuben-mótinu:
Sviþjóð....3 2 0 1 86-67 4
Danmörk....3 2 0 1 85-72 4
ísland.....3 2 0 1 64-66 4
Pólland....3 0 0 3 61-91 0
Svenssonveikur
Thomas Svensson, hinn snjalli
markvörður Svía, missti alveg af
Bikuben-mótinu. Hann lá veikur
á hótelinu allan timann.
Tværbreytingar
Tvær breytingar voru gerðar á
íslenska liðinu frá leiknum við
Dani. Valdimar og Júlíus komu
inn í staðinn fyrir Bjarka og
Gunnar. Konráð, Sigmar Þröstur
og Róbert hvíldu áfram og Róbert
spilaði því ekkert á mótinu.
Kaplakriki í kvöld
íslenska liöið er væntanlegt
heim nú eftir hádegið og hvíldin
verður ekki mikil því það mætir
Austurríki 1 landsleik í Kapla-
krika í kvöld klukkan 20 og síðan
aftur í Höllinni kl. 16 á morgun.
Annriki hjá Valda
Valdimar Grímsson á annríkt
um þessar mundir. Hann er ekki
bara aö bua sig undir HM með
landsliöinu, heldur er hann að
undirbúa opnun kaffihúss við
Ráðhústorgiö á Akureyri.
„Við erum mjög bjartsýnir“
Víöir Sigurösson, DV, Danmörku:
„Þetta var allt í lagi fram að stöðunni
17-10 og viö vorum að skapa okkur færi
allan tímann. Eftir það var dæmd þrisvar
sinnum lína á Gústa, tvisvar á Valda og
dæmdur þrisvar sinnum ruöningur. Síðan
veröa aðrir að meta hvort það voru réttir
dómar eða ekki, en þetta var aðalástæðan
fyrir því að við misstum niður þetta for-
skot,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson við
DV eftir leikinn við Pólverja í gær.
„Þetta er einu sinni þannig að það var
búið aö rótbursta þetta pólska hð í hinum
leikjunum og það er alltaf erfitt að „mótí-
vera“ sig við slíkar aðstæður til að keyra
þetta á fullu.
„Ég held samt að það þurfi ekki aö
kryfja þennan leik mikið til mergjar, þetta
er ekkert sem truflar okkur. I mótinu
hafa komið mikið skýrari línur í leik hðs-
ins, við skorum rúm 20 mörk í leik sem á
að vera nóg. Við sjáum líka að ef við viljum
spila góðan handbolta þá getum við það,“
sagði Þorbergur.
Það greip um sig
eitthvert kæruleysi
„Við náðum stöðunni 17-10 og þá leit þetta
vel út, og ég er mjög sáttur við leikinn
fram að því, en eftir það tóku dómararnir
þetta í sínar hendur. Það greip líka um
sig eitthvert kæruleysi hjá okkur, en end-
anleg niðurstaða í leiknum er ahs ekki
nógu góð,“ sagði Valdimar Grímsson.
„Síðustu 20 minúturnar voru hroðaleg-
ar, það hefur oft verið séríslenskt fyrir-
bæri að sleppa síðustu sendingunni og
ætla að gera hlutina bara sjálfur, og þá
er okkur refsað. Við höfum verið að vinna
markvisst að því að losna við þetta kæru-
leysi og það hefur tekist nokkuð vel. En
ég er klár á því að þetta hverfur, þegar
menn koma út í alvöruna á HM.
Við erum mjög sáttir við þessa ferð. Við
spiluðum vel fjóra hálfleiki af sex en fyrri
hálfleikurinn gegn Svíum og sá seinni í
kvöld voru slakir. Á móti Austurríki um
helgina ætlum við að sýna okkar bestu
hliðar, það er hð sem við eigum að vinna
en verður samt ekki auðunniö. Við þurf-
um að klára þá leiki á einbeitingunm.
Við erum mjög bjartsýnir. Leikmenn eru
passlega þreyttir, við höfum farið í gegn-
um erfitt prógramm en leikgleðin er samt
til staðar. Nú er aðalatriðið að fá upp rétta
stemningu og mér finnst hugarfar allra
vera til staðar til þess. Ég hvet síðan alla
íslendinga til að fylgjast meö og styðja
okkur á þessari löngu leið sem fram undan
er,“ sagði Valdimar Grímsson.
Pólland - ísland (10-14) 21-23
0-1, 2-1, 3-2, 3-6, 5-7, 5-9, 8-11, 9-14, (10-14) 10-17, 13-17, 16-18, 19-20, 20-21, 20-22,
21-22, 21-23.
Mörk Póllands: Robert Lis 5, Piotr Badowski 5/1, Marek Stopczynski 4, Roman
Judycki 3, Jacek Olejnik 2, Krzysztof Wroblewski 1, Grzegorz Gowin 1.
Varin skot: Arkadiusz Dudaref 3, Artur Goral 9/3.
Mörk íslands: Gústaf Bjarnason 6, Sigurður Sveinsson 5/1, Valdimar Grímsson
5/1, Dagur Sigurðsson 4, Geir Sveinsson 2, Patrekur Jóhannesson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 9.
Brottvlsanir: Pólland 8 mín., ísland 6 mín.
Dómarar: Kjeld Lövqvist og Per Elbrönd, Danmörku, dæmdu mikiö af sóknarbrot-
um og Unu, sem bitnaði frekar á íslenska liðinu.
Áhorfendur: Um 300 í byrjun en fjölgaði jafnt og þétt, enda Danir og Svíar að spila
á eftir.
Maður leiksins: Artur Goral, Póllandi.
Langsk. Gegnumbr. Horn
Pólland (íoi 21
ísland (14) 23
Hraöaupphl.
25
Iþróttir
Islandsmót í skvassi
• Grant Long, til hægri, skoraði 18 stig fyrir Atlanta í nótt gegn Indiana.
Simamynd Reuter
NBA-úrslitin 1 nótt:
Utah vann Houston
Skvassnefnd ÍSÍ og Skvassfélag
Reykjavíkur halda íslandsmót í
skvassi í Veggsporti, Stórhöfða
17, um helgina og hefst mótið kl.
átta í kvöld. Keppendur á mótinu
verða um 70 talsins og verður
keppt í átta flokkum. Keppni í
meistaraflokkum karla og
kvenna lýkur á laugardag á milli
kl. 16 og 17. Keppni í unglinga-
flokkum fer fram á sunnudag og
hefst kl. 11.
Strákamirtöpuðu
Austurríkismenn lögðu u-21 árs
landslið íslendinga í vináttuleik í
handknattleik í gær. Lokatölur
urðu 19-25 en staðan var jöfn í
hálíleik, 9-9. Davíð Ólafsson var
markahæstur íslensku strák-
anna með 5 mörk og Gunnleifur
Gunnleifsson skoraði 3.
Íslandsglíman
Stórmót ghmumanna, íslands-
glíman, verður haldið í Laugar-
dalshöllinni á morgun og hefst
klukkan 12.30. Níu ghmukappar
keppa um Grettisbeltið, elsta og
virðulegasta verðlaunagrip ís-
lenskra íþrótta. Það stefnir í
óhemjuspennandi keppni og
verður fróðlegt að sjá hvort Orri
Björnsson, KR, nær að verja titil-
inn.
ÓvæntursigurVals
Valur sigraði KR, 4-1, í fyrri
leik Reykjavíkurmóts kvenna í
knattspyrnu í gær. Staðan í hálf-
leik var 2-0. Ólöf Helgadóttir
skoraði þrjú mörk fyrir Val en
eitt marka þeirra var sjálfsmark
KR-stúlkna. Olga Færseth, sem
er nýgengin til liðs við KR frá
Breiðabliki, skoraði mark KR.
ÖruggursigurBlika
Breiðablik sigraði Reyni S, 6-0,
í Litlu bikarkeppnninni í knatt-
spyrnu í Kópavogi í gær. Staðan
í hálfleik var 2-0. Gunnlaugur
Einarsson skoraði tvö mörk og
þeir Rastislav Lazorik, Grétar
Sveinsson, Júlíus Kristinsson og
Guðmundur Guðmundsson sitt
markið hver.
HM
9
dagar
til stefnu
30 erlendar stöðvar
Nú hafa 30 erlendar sjónvarps-
stöðvar fengiö rétt til sýninga frá
HM, Síðasti samningurinn um
útsendingarréttindi var undirrit-
aður á milh svissneska fyrirtæk-
ísins CWL Telesport og TVE, rík-
issjónvarpsins á Spáni. Þar með
er lokið öllum samningum í þessa
veru.
40 Ijósvakafyrirtæki
10 utvarpsstöövar hafa öðlast
rétt til þess að lýsa leikjum
keppninnar. Samtals er hér um
að ræða 40 ljósvakafyrirtæki, en
upphaflega var áætlað að þau
yrðu ekki fleiri en 30 þannig að
áhuginn á keppninní er mun
meiri hjá slíkum fyrirtækum en
búist var við fyrirfram.
Lýsingabúnaður
í vikunni var haflst handa við
að sefja upp lýsingarbúnað fyrir
íþróttafréttamenn undir yfirum-
sjón norsks tæknimanns sem er
hér á landi gagngert í þessum til-
gangi. Þessum búnaði er safnað
saman á öllum Norðurlöndum og
hefur Sjónvarpið gertleigusamn-
inga um 40 slíkar einingar.
John Stockton tryggði Utah Jazz
sigur gegn meisturum Houston í nótt
með körfu tveimur sekúndum fyrir
leikslok en þá hófst úrslitakeppnin í
NBA-deildinni.
Utah vann Houston á heimavelli
sínum, 102-100, þrátt fyrir 45 stig frá
Hakeem Olajuwon fyrir Houston.
Stockton skoraði 28 stig fyrir Utah
Jazz og Karl Malone 25.
• Shawn Kemp skoraði 21 stig fyr-
ir Seattle sem burstaði LA Lakers
96-71. Detlef Schrempf skoraði 20 stig
fyrir Seattle og Kendall Gill 17. Hjá
Lakers var Nick Van Exel stigahæst-
ur með 29 stig. Þetta var lægsta skor
Lakers í deildinni síðan 1972.
• New York Knicks burstaði
Cleveland á heimavelli sinum,
103-79. Patrick Weing skoraði 21 stig
fyrir Knicks, Charles Oakley 19 og
Derek Harper 16. Danny Ferry var
með 20 stig fyrir Cleveland.
• Indiana sigraði Atlanta, 90-82.
Reggie Miller var með 24 stig fyrir
Indiana og Grant Long skoraði 18
stig fyrir Atlanta.
Cantona verður áfram
Nær öruggt er tahö að Frakkinn
Eric Cantona tilkynni á blaöa-
mannafundi í dag að hann verði
áfram hjá Man. Utd til ársins
1999. Cantona er í banni til 30.
september en þá getur þessi stór-
snjalli leikmaður byijað að leika
aftur.
„Yrðum himinlif andi“
Inter Milan bíöur enn og vonar
að Cantona semji ekki við United.
Ef marka má orð Fergusons,
stjóra United, í gær er öruggt að
Cantona veröur áfrara á Old Traf-
ford: „Við yrðum himinlifandi ef
Cantona yrði áfram hjá okkur,“
sagði Ferguson.
ChrísWaddle neitar
Enski knattspymumaðurínn
Chris Waddle ncitaði því í gær
að hann væri á fórum frá Sheffi-
eld Wednesday til franska 1.
deildar hðsins Martigues. Waddle
var á ferð á dögunum í Suður-
Frakklandi og eftir þá ferð komst
kjaftasaga á kreik.
OpiðmóthjáKeili
Fyrsta opna golfmót ársins hjá
Keili 1 Hafharfirði fer fram um
helgina en um er að ræöa afmæl-
ismót klúbbsins.
Keppt verður á laugardag og
verður ræst út frá kl. 09.00.
Keppnisfyrirkomulag verður 7/8
Stableford punktakeppni og
skráning er í síma 653360.
LíkaopíðíGrindavík
Opið golfmót verður einnig á
Húsatóftarvelh í Grindavík um
helgina.
Leikið veröur á sunnudag.
Glæsileg verðlaun veröa i boöi.
Skráning er í síma 92-68720 frá
kl. 13.00 á fóstudag til kl. 19.00 á
laugardag. Fiskimjöl og Lýsi er
styrktaraðili mótsins.
SlegiðáHellu
Golfklúbbur Hellu byijar sitt
árlega mótshald á mánudaginn,
1. mai.
Þá fer fram opna vormótið á
Strandarvelli. Leikinn verður 18
holu höggleikur með og án for-
gjafar. Mótiö hefst kl. 08.00 og
pöntunarsími rástíma er 98-78208.
Almenningshlaup
Almenningshlaup Námsflokka
Reykjavíkur verður á laugardag
kl. 11 árdegis. Hlaupið er 10 km
langt, 3ja manna sveitakeppni er
í öllum flokkum kvenna og karla
og allir fá vegleg verðlaun. Pasta-
veisla verður að hlaupi loknu en
búningsaðstaða og skráning er
við Miðbæjarbarnaskólann.
Liverpool klúbburínn
Forsvarsmenn aödáendaklúbbs
Liverpool í ensku knattspyrn-
unni hvetja aha sanna aðdáendur
Liverpool til að mæta í Ölver kL
14 á laugardag og horfa þar á leik
Liverpool og Norwich í beinni
útsendingu hjá RÚV.
1. mai kaffi Framara
Framarar verða meö árlegt af-
mæliskaffi sitt í Safamýri þann
1. maí. Þar selja Framkonur kaffi
og vöfilur gegn vægu verði frá
kl, 14.00 til 17.00.
Þrirsundmeimíbann
Þrír austurrískir sundmenn
hafa verið dæmdir í tveggja ára
keppnisbann.
Þremenningarnir neituðu að
gangast undir lyfiapróf og er það
fréttist til aðalstöðva sundsam-
bandsins í Austurríki dæmdi þaö
sundmennina samstundis í
keppnisbannið.
Tveir Svíar nef brotnir
„Ég er auðvitað ánægður með sigurinn á Svíum en ég hefði heldur viljað
vinna leikinn gegn íslendingum. Við erum með betra lið en íslendingar en
höfum ekki fengið tækifæri til að sýna það,“ sagöi Ulf Schefert, þjálfari
danska landsliðsins, eftir sigurinn á Svíum í gærkvöldi.
Tveir sænsku leikmannanna nefbrotnuðu í leiknum, þeir Ola Lindgren og
Thomas Sievertson.
Litli Iþróttaskólinn
Laugarvatni
Stórkostlegt tækifæri fyrir 9 tii 13 ára stelpur og stráka
fyrir aðeins 16,100,- krónur
ATH. sérstakur vina- og systkinaafsláttur!
1. námskeið 18.-25. júní
2. námskeið 26.júní-1. júlí
3. námskeið 2.-8. júlí
4. námskeið 9.-15. júlí
Upplýsingar og skráning í síma:
98-61151 fax: 98-61255