Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995
Sviðsljós
Fyrirsæturnar Claudia Schiffer, Naomi Campbell og Elle Macpherson við
opnun Fashion Café eða Tískukaffis í New York.
Claudia SchifTer og vinkonur opna kafdhús í New York:
Beðið eftir
brúókaupi
Claudiu og
Davids
Fyrirsæturnar Naomi Campbell,
Elle Macpherson og Claudia Schiffer
hafa opnað kaffihús í New York. Það
virðist í tísku meðal ríkra fyrirsætna
og kvikmyndastjama að slá sér sam-
an um opnun veitingastaða en Syl-
vester Stallone, Arnold Schwarzen-
egger og Bruce Willis hafa þegar opn-
að marga veitingastaði undir nafn-
inu Planet Hollywood.
Þótt Claudia og „systúr" hennar
úr fyrirsætubransanum opni veit-
ingastað er fólk samt uppteknara af
langþráðri frétt af því hvenær Clau-
dia og unnusti hennar, töframaður-
inn David Copperfield, ætli að ganga
í það heilaga. Heilir átján mánuðir
eru síðan Claudia og David opinber-
uðu trúlofun sína og þykir því löngu
tímabært að þau gefi út yfirlýsingu
um að þau æth að ganga saman upp
að altarinu. Brúðkaupstiðindi láta
ekki á sér kræla. Það hefur komið
af stað sögusögnum um aö trúlofunin
hafi verið bragð af beggja hálfu tii
að vekja athygli á sér. Claudia og
David segja að ekkert liggi á og vísa
þessum vangaveltum á bug. Sam-
band þeirra hafi verið mjög náið áður
en þau trúlofuðu sig.
Þú færó
verðlaunin hjá okkur
Síðumúla 17
sími 588 3244
Spielberg hjálpar
George Michael
- laus frá Sony
Kvikmyndaleikstjórinn Steven
Spielberg hefur komið söngvaranum
George Michael til bjargar og keypt
hann undan samningum yið hljóm-
plötufyrirtæki Sony. Mun Michael
skrifa undir 3,5 milljarða króna
samning við nýtt útgáfufyrirtæki í
eigu Spielbergs og fleiri.
George Michael hefur eytt 300
milljónum króna í málarekstur í til-
raim til að losna undan samningum
við Sony. Hann komst upp á kant við
fyrirtækið þegar hann vildi draga úr
kynferðislegri ímynd sinni, sem selt
hefur jafn vel og röddin. Þegar sala
tveggja síðustu platna Michaels olli
vonbrigðum kenndi hann markaðs-
setningu þeirra hjá Sony um. Hann
hkti samningi sínum við Sony, sem
ghti th ársins 2003, við þrælahald.
Michael hafði hótað að fara með mál
sitt fyrir Mannréttindadómstól Evr-
ópu. Heimildir herma að Sony-menn
hafi þá séð fram á að þeir gætu tapað
málinu og voru því fegnir þegar Spi-
elberg keypti Michael undan samn- George Michael er nú laus undan samningum við Sony og hefur skrifað
ingi við þá. undir samning við útgáfufyrirtæki Stevens Spielbergs og fleiri.
ST Ó\ ftl
ROTTU R
99-1750
Verö kr. 39,90 mínútan
Taktu þátt í skemmtilegum leik meö
Sparihefti helmilanna og þú getur
átt von á aö vinna glæsilega
vinninga. Vinningarnir eru ferö til
Parisar fyrir tvo á vegum
Heimsferða, hljómfiutníngstæki aö
verömæti 74.900 frá Takti, 10
hádegisveröir í Lóninu, Hótel
Loftleiöum, og 100 Spariheftisbolir.
Tii þess aö taka þátt þarft þú aö
hafa viö höndina plakatiö sem fylgdi
Sparlheftl helmilanna. Þú hringir I
síma 99-1750 og færö uppgefnar
spurningarnar viö svörunum sem eru
á plakatinu. Þú svarar spurningunum
10 og sendir til Spariheftis
helmllanna ásamt 3 „Kalla krónu“
límmiöum sem þú færö í hvert skipti
sem þú notar Sparihefti helmilanna.
Skilafrestur er til 28. apríl nk.
Utanáskriftln er: Spariheftl
helmilanna, Skelfunnl lla, 108
Reykjavík.
Winona Ryder réttir úr kútnum:
Var djúpt sokkin í
drykkju og pilluát
Winona Ryder, sem vakti athygli
fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni
Little Women, segir að það sé leik-
konunni Michehe Pfeiffer að þakka
að hún sé ekki lengur föst í vítahring
piUuáts og brennivínsdrykkju.
Winona skUdi við leUtarann Johnny
Depp fyrir þremur árum og í kjölfar-
ið dóu tveir nánir vinir hennar í bU-
slysi. Hún segir að þessir atburðir
hafi fengið mjög á sig. Hún hafi þó
ekki borið tilfinningar sínar á torg,
aUtaf þóst vera glöð og ánægð. Undir
niðrikraumaði þó angist og kvíði og
hún hætti að geta sofið. Þá leitaði
hún á náðir svefnpUla og varð háð
þeim. í vöku tók áfengið síðan við.
En vinátta og stuðningur MicheUe
Pfeiffer hjálpaði Winonu á réttan kjöl
og í dag er hún tUtölulega sátt við
Winona Ryder er á réttri leið eftir
óreglu.
lífið með unnustanum, söngvaranum
David Pimer. „Það er auðvelt að faUa
í þunglyndi, blekkingar og vanlíðan
en erfitt að vera hamingjusamur. En
það síðamefnda er miklu betra,“ seg-
ir leikkonan.
Uma sem
Dietrich
Uma Thurman, sem gerði það
gott í kvikmyndinni Pulp Fiction,
þarf ekki að kvíða aðgerðaleysi.
Hún hefur þekkst tUboð um að
leika í kvikmynd um söngkonuna
Marlene Dietrich, sem heUlaði
menn upp úr skónum hér áður
fyrr, bæði með sérstakri rödd
sinni og forkunnarfógrum fót-
leggjum. Sagan segir aö spákona
hafi séö í kúiu sinni fyrir hálfu
ári að hún fengi þetta hlutverk.
Gæti misst
hárið
Læknar hafa beðið Kevin
Costner um að hætta að hta hárið
á sér ljóst. Efni í hárlitnum fara
iUa með hársvörð Kostners og svo
gæti iarið aö hann yrði fyrir
verulegu hárlosi. Ekki þykja
áhyggjur vegna skilnaöar við eig-
inkonuna, Cindy, bæta hár-
vandamáUn. Hún krefst 4 millj-
aröa af Costner sem þykir meira
en nóg tU aö missa hárið.
Örlátirvið
fatafellur
Samkvæmt nýlegri bók þar sem
rætt er við hundruð bandarískra
fatafelina er leikarinn CarUe
Sheen sagður í sérstöku uppá-
haldi. Hann þykir nefnUega
manna örlátastur þegar stinga á
doUaraseðlum undir nærbuxna-
strengjnn eða sokkabeltið. Sean
Penn, fyrrym eiginmaður Ma-
donnu, er annar á vinsældahsta
fatafellnanna og breski rokkar-
inn BUly Idol sá þriðji.
Hoffmanner
herra Erfiður
Ðustin Hoffmann, sem slegið
hefur í gegn með kvikmyndinni
Outbreak, þykir erfiður viður-
eignar og sérvitur við kvik-
myndatökur. Hefur hann fengið
viðurneftúð „Mr. Difiicult" eða
herra Erfiður. Hofimann segir að
hann sé ekki erfiðari en margir
aðrir leikarar en nafhgiftin muni
engu aö síður fylgja honum i gröf-
ina. Við þvi sé ekkert að gera.
Þannig megi Jack Nicholson
sætta sig við að vera orðaður við
eiturlyf þótt hann hafi ekki neytt
meira af þeim en aðrir leikarar.