Þjóðviljinn - 22.01.1955, Blaðsíða 12
þlÖÐVIUINN
Laugardagur 22. janúar 1955 — 20. árgangur — 17. tölubla5
Þessi mynd af asparlundinum — lýðveldis stofnunarlundinum í garði Skógrœktarinn-
ar í Múlakoti var tekin á s.l. vori. Trén voru gróðursett um það leyti sem lýðveldis-
kosningin fór fram 1944 og á s.l. vori höfðutrén náð 7 til 8 metra hæð.
Takmark Skógræktar ríkisins:
Tvær milljónir trjóplcmtna á óri
/ dag bœtist Skógrœktinni nýr tekjustofn:
20 aurar af pakka vissra vindlingategunda
Gróðursetning trjáplantna má ekki vera undir 2 millj.
plantna árlega ef skógrækt hér á landi á að miða áfram \
svo viðunandi sé. Árið 1950 var sett það mark aö gróður-
setja a.m.k. 2 millj. plantna á ári, en það var fyrst á ár-
inu sem leið að talan komst upp í 1 millj.
Nú hefur Landgræðslusjóði bœtzt nýr tekjustofn svo
vonir standa til að markið náist á þessu eða nœsta ári.
Kosningu í Sjómannafélagi Rvíkur
lýkur klukkan 12 á hádegi
Halldór Sigurgeirsson lögfræðingur Itjá SÍS,
Eyþór Sigurgeirsson skrifstofumaður,
Bogi Guðmundsson varaverkstjóri,
Guðmundur Sig. Bjarnason múrari,
Páll Björnsson skiprtjóri
kusu nýlega í Sjómannafélagi Reykja'víkur. Fell-
ið stjóm hreppstjóra, forstjóra, sútara, skífulagn-
ingameistara, o. fl. — Kjósið lista starfandi sjó-
manna B-listann. — Kosið er í dag'kl. 10 til 12.
X B-lisíi.
Hellisheiðin að lokast í gær
Holtavörðuheiði ófær — Aðrir vegir þungir
Holtavörðuheiði er nú aftur orðin ófær bifreiðum og
Hellisheiðin var að þyngjast síðdegis í gær og allt útlit
fyrir að hún myndi lokast ef áfram héldi að snjóa.
E£r;
Stjórn Landgræðslusjóðs
ræddi við blaðamenn í gær um
liorfurnar í skógræktarmálum.
Hákon Bjarnason skógræktar-
stjóri kvað markið: 2 millj.
plantna árlega hafa verið sett
að vel athuguðu máli árið 1950
Framhald á 3. síðu.
|>gé3leskhúsinu gefin mynd of
DavíS Sfefónssyni skáldi
í gær, á afmælisdegi Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi, komu nokkrir vinir og aðdáendur hans saman í
Þjóðleikhúsinu og færðu því að gjöf brjóstmynd af skáld-
inu.
Jón Sigurðsson frá Kaldaðar-
nesi hafði orð fyrir gefendum og
afhenti Þjóðleikhússtjóra gjafa-
bréf en í því segir svo:
Vér undirritaðir vinir og að-
dáendur Davíðs skálds Stefáns-
sonar frá Fagraskógi leyfum oss
að færa Þjóðleikhúsinu að gjöf
málmstyttu af skáldinu. Mynd
þessa gerði danskur myndhöggv-
ari, A. Severin Jacobsen.
Oss er hugleikið, að styttu
þessari sé ætlaður virðulegur
staður í kristalsal hússins meðal
mynda, sem þar eru fyrir af öðr-
um mikilhæfustu leikskáldum
íslenzkum.
Vér vitum, að leikhúsgestum
mun vera það kært, að mynd
Davíðs Stefánssonar bætist í
skáldahópinn þar og minni á
hann um ókomin ár.
Reykjavík, 21. janúar 1955.
Árni Kristjánsson
Einar B. Guðmundsson
Jón Sigurðsson frá
Kaldaðarnesi,
Ragnar Jónsson,
Valtýr Stefánsson
Árni Pálsson
Haukur Thors
Kristinn Guðmundsson
Páll ísólfsson
Ólafur Thors
Guðlaugur Rósinkranz, þjóð-
leikhússtjóri, þakkaði þessa
glæsilegu gjöf og formaður Þjóð-
leikhúsráðs, Vilhjálmur Þ. Gísla-
son flutti einnig stutt þakkará-
varp.
'LANDGRÆÐSLU
Hellisheiðin var mjög tekin að
þyngjast í gær og þurfti að ryðja
veginn allvíða alla leið niður
undir Elliðaár.
Holtavörðuheiðin er orðin al-
ófær og strandaði áætlunarbíll-
inn á henni aðfaranótt fimmtu-
dagsins. Varð að flytja farþeg-
ana í snjóbíl niður að Forna-
hvammi og komu þeir þangað um
kl. 3 í fyrrinótt. Áætlunarbíln-
um var náð af heiðinni í fyrra-
dag, og biðu í gær almargir bil-
ar í Fornahvammi á leið norður.
Áætlunarbíllinn úr Dölunum.
tepptist einnig þar til Vegagerð-
in sendi ýtur til að hjálpa hon--
um suður yfir fjallið.
Hvalfjarðarleiðin var orðin
erfið í gær, einkanlega á Hval--
f j arðarströndinni.
í gær var versta veður á
Hellisheiðinni, látlaus skafbylur -
og mun hún því hafa lokazt í:
gærkvöldi eða nótt.
Trjáfræ frá Síberíu og Kolorado
Skógræktin notar nú árlega hálít tonn af
ýmiskonar trjáfræi
Skógrækt ríkisins hefur nú fengiö trjáfræ'^bæði frá
Sovétríkjunum og Bandaríkjunum. Árlega notar skóg--
læktin hálft tonn af fræi og fer fræþörfin vaxandi.
Þannig merktar Camel og Chest-
erfield-sígarettur komu með
Tröllafossi í nótt og mun sala
þeirra hefjast í dag. — Bjarkar-
laufin er merki Skógræktarinn-
ar, og fær skógræktin 20 aura
Skógræktarstjóri skýrði blaða-
mönnum frá þessu í gær og
sýndi þeim fræpakka — þótt
; flestum gengi raunar báglega
að lesa áletramirnar á rúss-
nesku pökkunum.
Rússneska trjáfræið er lerki-
fræ frá Arkangelsk, en rúss-
neskt lerki hefur reynzt hér
mjög vel. Þá er og einnig birki-
fræ frá Kamtsjaka, en það
birki er beinvaxið í heimalandi .
sínu. Fræ þetta útvegaði Sig-
urður Blöndal er hann var á
ferð um Sovétríkin.
Bandaríska fræið er af blá--
greni og furu. Er það fengið
úr háfjöllum í Kólorado-fylki.
Ýmsar trjátegundir frá Am-
eríku hafa reynzt hér vel, og
er nærtækast að benda á Al-
askaöspina (sjá my.nd á öðrum
stað í blaðinu).
Frá Aíidspyrnuhreyfingunni
Aðalfundur Andspyrnuhreyfingarinnar verður á
morgun, sunnudaginn 23. janúar, í fundarsalnum í Þing-
holtsstræti 27 II. hæð. Hefsi; hann kl. 4 síðd. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa verður skýrt frá undirskrifta-
söfnuninni gegn hernámi landsins og rætt um starfið á
þessu ári. Félagar og fulltrúar eru hvattir til að fjöl-
menna.
Mesfa verkfall í Þýzkalandi
síðan Hitler kom til valda
Nœr milljón námuverkamenn i Ruhr hófu
sólarbrings verkfall I nótt sem leiS
Á miðnætti í nótt hófst verkfall rúmlega 900.000 námu-
verkamanna og stáliðnaöarmanna í Ruhrhéraöi í Vest-
ur-Þýzkalandi.
Verkfallið, sem á að standa
sólarhring, er háð í mótmæla-
skyni við niðrandi ummæli eins
af leiðtogum vinnuveitanda í
Ruhr um verkalýðshreyfinguna.
Hann lét þau orð falla fyrir
nokkrum dögum, að verkalýðs-
hreyfingin í Vestur-Þýzkalandi
hefði beitt ofbeldi og þvingun-
araðgerðum til að knýja fram
vinnulöggjöfina, sem sett var
eftir stríðið og veitir verkalýðs-
hreyfingunni nokkur ítök í stjórn
iðnaðarins.
Leiðtogar verkalýðsfélaganna í
Ruhr kröfðust þess að vinnuveit-
andi þessi tæki orð sín aftur og
bæðist afsökunar á þeim, en það
hefur hann ekki viljað gera. Var
þá boðað til mótmælaverkfallsins
og komu sáttatilraunir stjórnar-
valdanna fyrir ekki. Ríkisstjórn-
in í Bonn sat á stöðugum fund-
um í gær út af verkfallsboðun-
inni.
Þetta verkfall er það víðtæk-
asta sem orðið hefur í Þýzka-
landi, siðan árið 1933, þegar
nazistar tóku völd í landinu og
ber vitni um vaxandi stéttarvit-
und verkafólks í Vestur-Þýzka-
landi.