Þjóðviljinn - 03.10.1971, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.10.1971, Blaðsíða 1
Sunnudagur 3. október 1971 — 36. árgangur — 224. tölublað. ÓVISSA f KOSNINGUNUM Á ÍSAFIRÐI f DAG Ég vil engu spá, en það kæmi mér mjög á óvart ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi þann meiri- hluta sem hann virðist stefna að í þessum kosn- íngum, sagði Aage Steinsson rafveitustjóri á ísa- firði, efsti maður G-listans í kosningum til bæjar- stjórnar hins nýja sameinaða sveitarfélags, ísa- f jarðar og Eyrarhrepps. — Hefur kosningabarátten ver- ið hörð? — Nei, það heíur hún ekki verið; kannski eru menn eflir sig eftir kosningaslaginn í vor. Það sem hefur einkennt þessa kosningabaráttu er aðallega tvennt: f fyrsta lagi það að vinstri flokkarnir allir leggja mikla áherzlu á nauðsyn sam- starfs sin á milli þó að þeim hafi ekki tekizt að koma fram lista. í öðru lagi einkennir það baráttuna mjög að Sjálfstæðis- flokkurinn þykist geta gert sér vonir um meirihluta. Það tel ég hins vegar af og frá. — Hvað eru margir á kjör- Hafízt handa viB byggingu 200íbúða f gaer átti Hannibal Valdim- arsson að taka fyrstu skóflu- stungu a* 5. áfanga Fram- kvaemdanefndar byggingaáætl- unar. Þessi áfangi cr sá næst siðasti í Brciðholti; í húsinu, sem verður 230 m á Iengd, verða 200 tveggja og þriggja herbergja íbúðir. Fyrstu íbúðir sem verða til- búnar í 4. áfanga verða afhent- ar nú fyrir jólin. Mótmæla forsetakosningum SAIGON 2/10 — Þrír banda- rískir kaþólskir prestar og bandarískur kennari í þjódfé- lagsfræði aif Gyðingaættum hlekkjuðu sig fasta við hurö bandaríska semdiráðsins í Sai- gon til að mótmæla forseta- kosningumum, sem frarn eiga að fara í Suður-Víetnam á morgun, sunnudag, og þátt- töku Bandaríkjanna í styrj- öldiinni. Fjórmenningarnir útbýttu dreifibréfum meðal vegfar- enda, þar sem þeir sögðust vera komnir til Víetnams til að mótmæla hininl hörmuiegu fóm mannslífa og eyðilegg- ingu menningar og náttúru- auðlinda í Indó-Kína. Þé>r kröfðust þess einnig að Blls- worth Bunker, sendiherra Bandaríkjanna í Saigon, segði aif sór og viðurkenndi þann- ig að hann hefði skipt sér af kosningumum í Suður-Víet- nam. Það tók dyraverði sendi- í'áðsims hálftíma að sagasund- ur hlekikina, sem fjónmenn- ingamir voru festír í, og á meðain reyndi lögreglan í Sai- gon að koma í veg fyrir að blaðaljósmyndarar næðu myndum af þeim. skrá núna og hversn margir voru á ísafirði áður? — Núna eru á kjörskrá um 1780 manns, en voru á ísa- firði einum í fyrra um 1550, þannig að aukningin á kjörskrá er 230 manns. í kosningunum í íyrra urðu úrslitin á ísafirði, sem hér seg- ir: Alþýðuflokkurinn hlaut 337 atkvæði og tvo menn kjörna. Framsóknarflokkurinn hjaut 276 atkvæði og tvo menn kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 526 atkvæði og 4 menn kjöma og Alþýðuibandaliagið hlaut 154 at- kvæði og einn mann kjörinn. í þessum kosningum urðu þær breytingar helztar frá fyrri kosningum að Alþýðuflokkurinn bætti við sig 14 atkvæðum. Framsókn bætti við sig 41 at- kvæði. Sjálfstæðisflokkjur bætti við sig 52 atkvæðum en Al- þýðubandalagið tapaði sex at- kvæðum. f kosningunum 1958 og 1962 buðu vinstri flokkamir þrír frarn sameiginlegan lista á ísafirði og höfðu meirihtuta í bæjarstjórn. f kosningunum til sveitar- stjómar á Hnífsdal í fyrra kom aðeins fram eitt framboð sem varð sjálfkjörið. en í kosning- unum 1966 fékk listi vinstri manna 59 atkvaéði og tvo menn í hreppsnefnd en sameiginlegur listi Sjálfstæðisflokksins og Al- þýðuflokksins hlaut 119 atkvæði Og fimm menn kjörna í hrepps- nefndina, Af kosningatölnnum frá fsa- firði í fyrra sést að Sjálfstæðis- flokkur á 9. og síðasta mann í hreppsnefnd, og var það 4 mað- ur íhaldsins. Framsókn á 8. mann í hreppsnefnd, en Alþýðu- bandalagið sjöunda mann. En erfitt er áð bera saman kosningatölur fyrri ána og draga ályktanir af þeim á Vestfjörð- um. Það sýna kosningaúrslitin- í Vestfjarðafcjördlæmi í vor og núna bjóða hannibalistar á ísa- firði fram sérstakan framboðs- lista. — sv. Vélbáturinn Konráð við bryggju í Flatey Við bryggjuna er frystihúsið. SÍÐASTA SKIP - HVERT? □ Nú eru íbúar Flateyjar á Breiðafirði að missa sitt eina skip. Vélbáturinn Konráð verð- ur böðinn upp í næstu viku vegna skulda, og þá missa Flateyingar sitt eina fiskiskip, og eina skipið fyrir utan Baldur, sem hefur verið í förum milli eyja og lands með póst og fólk. Við ræddum vig símstöðv- arstjórann, Kari Guðbrands- son og spurðum hvað það þýddi fyrir þá að missa bát- inn. — þetta er afar slæmt, því það hefur þurft að nota bann m.a í veikindatilfellum. Trill- umar okkar eru opnar og því ekki hægt að fara á þeim á milli í vondum veðrum en þetta er þó bátur yfir 20 tonn og hægt að fara á hón- um, þótt það séu stormar. Nú fer hann og þá versna skil- yrði fyrir siamgöngum. — Kemur enginn bátur í staðinn? — Nei, en Baldur kemur hingaö á laugardögum í vet- ur. Bændur ofan af landi eru héma í fjárflutningum og nota trillumar, sem eru 4-5 tonn, til þeirra hluta. — Er þá engin útgerð hjá ykkur á vetrarvertíð? — Nei, engin. Konráð, sem nú á að fara að sélja, var tvisvar sinnum dálítinn tíma á hörpudisksveiðum og lagði upp í Stykkishólmi, en á milli sinnti hann almennum ferð- um. — Hver á bátinn Konráð? — Hlutafélagið Norðri, sem hefur starfað hér mjög lengi. Þeir byrjuSu hér á opnum bát Með fólksfæðinni fjarar þetta smátt og smátt út. — Var ekkj margt ferða- manna í sumar? — Jú, en þó voru fleiri í fyrrasumar og þá stóð fólkið lengur við — margt var hér mánuð og lengur. og oft var hér yfir 100 manns í tjöldum og þessum gömlu húsum. — Þið komið kannski til með aS lifa á túristum í framtíðinni? — Ekki höfum við nú fitn- að af því enn sem komið er, blessaður vertu. — Átt.u ekki von á því að ferðamönnum fjölgi á næstu árum? — Jú, ef skilyrði eru fyrir hendi. Lárus heitinn Guð- mundsson skipstjóri á Baldri, var að koma hér í stand húsi fyrir fólk a'ð leita skjóls í, þegar veður væru vond og ætlaði að hafa þar um leið smávegis greiðasölu. Síðan hann dó hefur ekkert verið átt, við þetta, hvað semverður. Ég er að fara frá símstöð- inni, er að hætta eftir rúm- lega 6 ára starf. Ég held á- fram hjá Pósti og síma í Reykjavík — er orðinn upp- gefinn á einangruninni héma. Ég hef alltaf verið hér einn, og stundum sér maður ekki mann einn, tvo daga í senn; það er þreytandi til lengd- ar Við starfinu tekur senni- lega Guðmundur Guðmunds- son úr Skáleyjum og kona hans. •— Þú hlýtur að sakna ein- hvers... — Jú. scrstaklega mun ég sakna vorsins — þá er geysi- lega skemmtilegt að vera hér; oftast nær ágæt tíð. stillur og blíða og mikig líf í kringum fuglana þegar þeir koma. Hér er ágætt fólk. og oft skrambi mikið líf í tusk- unum á sumrin. Allt fólk, sem hingað hefur komið, má eiga það, að bað hefur komið hér fram með sérstakri prúð- mennsku, utan einu sinni en það tekur varla ag nefna það. — SJ. STÁLVÍK MUN SMÍÐA FYRSTA SKUTT0GARANN Einar situr fyrir svörum í Keflavík Alþýðubandalagið á Suð- umcsjum boðar til fundar í Aðalvcri miðvikudaginn 6. okt. (kl. 8.30. Fundarefni: Einar Ol- geirsson fyrrv. alþingis- maður, situr fyrir svörum. Félagar eru hvaítir til að fjölmenna og taka með sér gesti. . Stjórnin. Suniir hafa ánægju af gð líta lar, sem sitja á sanddælurörum á niálin frá dálítið óvcujulegu sjónarhorni inn við Sundahöfn, j sjávarfletinum. — þarna speglast máv- ^ Það verður skipasmíðastöðin Stálvík sem fær það verkefni að smíða fyrsta skuttogarann fyrir íslcndinga. ' Fyrirtækið Þormóður rammi h.f. á Siglu- firði, sem er eign Síldarverk- smiðja ríkisins (60" „) og Siglu- fjarðarkaupstaðar (40%) er ný- búið að undirrita samninga varðandi smíðina og á skut- togarinn, sem verður 46 nietra langur og 300 lestir, að kosta 102,6 miljónir króna. Skipið á að verða tilbúið í desember 1972. Reiknað er með að 15-16 manna áhöfn verði á skipinu. Skipið verður smíðað eftir teikningum frá Noregi og hafa þar verið smíðuð 10 skip af þessari gerð og eru 8 sams- konar i pöntun hjá stöðinni sem teiknaði þau. Skipið verður út- búið fullkomnustu tækjum sem völ er á í dag. I því verður m.a. 1750 Ha Wicmann aðalvél, segir í fréttatilkynningu frá Stálvík. Nokkrar nýjungar verða í þessu skipi miðað við systurskip þess sem verið er að smíða í Noregi má, þar einkum nefna öfluga rafmagnstogvindu sem er smíðuð hjá Bruellt í Belgíu og gefur 24 tonna togkraft miðað við. hálffull vírakefli og tog- hraða 192 m/mín. í gær afhenti Stálvík h.f. Ib- sen Angantýssyni o.fl. nýtt skip sem sjósett -var 26. sept. og hi'aat þá nafnið „Þytur“ og einkenn- isstafina KE 44. Frú Hulda Guðmundsdóttir, kona Ibsens, gaf skipinu nafn. Skipið er 16 metra langt, fram- byggt fiskiskip, smíðaS úr stáli og útbúið sérstaklega til rækju- veiðá, einnig línu- og togveiða. Skipið er knúið 230 hestafla Scania Vabis dieselvél. Ljósa- vél er af Petler gerð og þil- farsvindur frá Rapp a/s í Nor- egi. Ennfremur eru í skipinu full- komin fisfcileitartæki frá Sim- rad og Taiyo, sjálfvirk miðun- arstöð af nýrri gerð, sjálfstýr- ing, 6o w talsföð og 48 sjómílna Terma radar. Sú nýjung er í þessu skipi að hægt er að stjórna öllum vindum úr stýris- húsinu með yfirsýn yfir þil- farið og einnig má stjóma þeim frá þilfari. þá er hreyfanlegur toggálgi aftast á skipinu, sem má stilla í afstöðu með há- þrýstivökva. Skipið mun fara á rækjuveið- ar eftir helgina. Þetta er fyrsta skipið sem Stálvík h.f smíðar af þessari gerð og hefur yfirvefkfræðingur stöðvarinnar, Bolli Magnússon, hannað það frá grunni. Skipið reyndist prýðilega í reynsluferð og gengur um 10 mílur á klst. Tilboð um smíði á bát af þess- i gerð var sent frá íslandi til Ghana fyrir nokkru, og standa eða fleiri báta fyrir þá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.