Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1999, Blaðsíða 28
V I K I N G A
Ltn«|
Éfey ^ð.uinna^ □
Mppi ' * --v. 4 S
'.jyrirkL lOfáai
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
Dvalarsamn-
ingum leik-
skólabarna rift
Dvalarsamningum sex þúsund
reykvískra leikskólabarna verður rift
^eg foreldrum þeirra boðnir nýir
samningar sem gera borgaryfirvöld-
um fært að senda börnin heim fyrir-
vararlaust vegna manneklu, að því er
Kristín Blöndal, formaður Leikskóla-
ráðs Reykjavíkur, sagði á fundi í gær-
kvöld með foreldrum barna á leikskól-
anum Jörfa.
Kristín sagði nú unnið að neyðará-
ætlun fyrir leikskólana og sagði m.a.
tvær leiðir vera til skoðunar sem ekki
væri hægt að greina frá að svo stöddu
þar sem þær snertu aðra starfsmenn
borgarinnar.
Að sögn Kristínar hefur verið rætt
i leikskólaráði að fá útlendinga til
starfa í skólanum og einnig hefur ver-
ið til umræðu að fá foreldra til að
,^skiptast á að vera með börnunum úti
við. Einn fundarmanna spurði hvort
til greina kæmi að breyta leikskólun-
um í sjálfseignarstofnanir og sagði
Kristín R-listann tilbúinn til við-
ræðna um slíkt ef foreldrar óskuðu.
Á fundinum í gærkvöld samþykkti
foreldrafélagið að beina tilmælum til
foreldra barna á öðrum leikskólum
borgarinnar til að mæta ekki með
börnin í skólann einn dag á næstunni
heldur eyða deginum með þeim í Ráð-
húsi Reykjavíkur. -GAR
*Áhugi erlend-
is á Lands-
símanum
„Það eru nokkur erlend fyrirtæki
sem hafa komið þvi á framfæri að
þau hefðu áhuga á að eignast hlut í
Landssímanum," segir Þórarinn V.
Þórarinsson, forstjóri Landssímans.
í kjölfar sam-
runa norsku og
sænsku símafyr-
irtækjanna Tel-
enor og Telia
vakna nokkrar
spurningar um
stöðu Landssím-
ans. Þórarinn V.
Þórarinsson seg-
ir að þetta sé al-
geng þróun og
engin ástæða til
að ætla að Landssíminn verði ekki
fyrir áhrifum af henni. Guðmundur
Ólason í einkavæðingamefnd hefur
lýst því yfir að hafinn sé undirbún-
ingur að sölu Landssímans.
Hafa þessi erlendu fyrirtæki ver-
ið að tala um að eignast ráðandi
hlut?
“Nei, það hefur ekki komið fram
með þeim hætti. Það er mjög mikið
í þessum fjarskiptaheimi núna að
fyrirtæki eru að kaupa kannski
• Ct*{ú~20%.“
-hdm
Þórarinn V. Þór-
arinsson.
Árni Þór Vigfússon, framkvæmdastjóri ísienska sjónvarpsfélagsins hf., Sigursteinn Másson fréttastjóri, Kristján Ra. Kristjánsson fjármálastjóri og Dóra
Takefusa dagskrárgerðarkona giöð í bragði kvöldið fyrir fyrstu útsendingu nýs Skjás 1 sem hefur útsendingar í kvöld klukkan átta.
_________________________________________ DV-mynd E.ÓI.
Steingrímur J. Sigfússon um aö kjarnavopn hafi verið geymd á íslandi:
Leynimakk og lygar
„Á vissan hátt er ég sleginn yfir
þessum fréttum þvi mér finnst þetta
óhugnanlegt. En þá er að því að
hyggja að þetta leynimakk og lygar
hafa fylgt þessum vígbúnaði og er-
lendri hersetu frá fyrstu tíð og munu
sjálfsagt alltaf gera. Þar af leiðandi
átti þetta kannski ekki að koma
manni svo mjög á óvart,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður VG.
Bandaríska stórblaðið Washington
Post greinir frá því í dag að kjarn-
orkuvopn hafi verið geymd í herstöð
bandaríska varnarliðsins á Miðnes-
heiði á árunum 1956-1959 án vitundar
íslenskra sfjórnvalda. í frétt Was-
hington Post er vitnað í grein í tíma-
ritinu Bulletin for Atomic Sciences
þar sem því er haldið fram að kjarn-
orkuvopn hafi á þessum árum verið
geymd í 48 löndum utan Bandaríkj-
anna. í 15 þeirra hafi kjarnorkuvopn-
in verið geymd án vitundar stjóm-
valda í viðkomandi landi.
„Áður hafði komið fram t.d. í Dan-
mörku hvemig ekki bara Bandaríkja-
menn heldur einnig ráðamenn
dönsku þjóðarinnar lugu blygðunar-
laust að henni áratugum saman. Það
er nauðsynlegt að fara i gegnum þessi
Steingrímur J. Sig- Björn Bjarnason.
fússon.
samskipti hér til þess að athuga hvort
það sama hafi átt sér stað hér. Stjóm-
völd ættu að krefjast allra gagna um
þessi mál og hafna því að þar yrði bor-
ið við einhverri leynd af hálfu Banda-
ríkjamanna. Einnig þarf að fá á hreint
hvernig staða þessara mála hefur ver-
ið fram að líðandi stundu. Úr því að
hægt var að svívirða svona okkar full-
veldi og okkar meintu stefnu um að
ekki væru hér kjamorkuvopn á þess-
um tíma vakna þær spurningar hvort
það hafi ekki verið gert áfram. Núver-
andi utanríkisráðherra hefur lagst
hart gegn því að kjarnorkufriðlýsa
landið, talið það ekki samrýmast
stefnu Nató,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon.
Össur Skarp- Siv Friðleifsdóttir.
héðinsson.
„Fyrir mér era þetta nýjar upplýs-
ingar," sagði Siv Friðleifsdóttir.
„Þetta era fréttir sem hafa reglu-
lega komið upp í gegnum tíðina og
þetta efni er margrætt. En svo þegar
málin hafa verið skoðuð hefur ekki
allt reynst sem sýndist. Ég veit ekki í
hvaða gögn er visað og get því ekki
sagt hvað er nýtt í þessu máli. Það sat
vinstristjóm á því tímabili sem vísað
er til í frétt Washington Post og þá var
mótuð sú stefna í kjamorkumálum
sem íslendingar hafa fylgt. En það er
sjálfsagt að kynna sér gögnin sem
þessar fréttir byggja á,“ sagði Bjöm
Bjamason menntamálaráðherra.
„Þetta em mjög alvarleg tíðindi.
Staðsetning þessara vopna hér á landi
á hátindi kalda stríðsins hefði getað
gert ísland að skotmarki hefði stríð
brotist út. Það hefur ítrekað verið
spurt út í geymslu kjamavopna hér
en alltaf borist neikvætt svar. Það
þarf að fá skýringar á því,“ sagði Öss-
ur Skarphéðinsson, Samfylkingunni.
-JSS/hlh
Þáttur tannlæknisins upplýstur
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu í morgun er Egill Guðjohnsen
sem látinn var laus í gær úr 8 daga
gæsluvarðhaldi í raun ekki talinn í
teljandi hlutverki í fikniefnamálinu
stóra - þó hann teljist á vissan hátt
tengjast því. Þannig segir lögreglan
hann hafa játað ákveðinn þátt sem
snúi að meintu efnahagsbroti - ekki
fikniefnabroti.
Hlutur tannlæknisins er talinn al-
gjörlega upplýstur.
Veðrið á morgun:
Víða bjart
veður
Á morgun verður austan og
suðaustan 3-8 m/s en 10-15 með
suðurströndinni. Dálítil rigning á
Suðausturlandi og Austfjörðum
en víða bjart veður norðan- og
vestanlands.
Hiti 5 til 10 stig að deginum.
Veðrið í dag er á bls. 45.
TerHSgamerkÍvBjnT
bfother pt-i2qq_
fslenskir stafir
5 leturstærðir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar í tvær línur
Verð kr. 6.603
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443