Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 11
11
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002______________________________________________________________________________________________
DV Útlönd
Cheney gagnrýnir kröfur demókrata um viðbrögð við skýrslu CIA um flugrán:
Varaforsetinn varar viö
alvarlegri hryöjuverkum
Nokkrir framámenn á Banda-
ríkjaþingi kröföust þess í gær að fá
að vita hvort bandarísk stjómvöld
hefðu búið yfir nægilegum upplýs-
ingum til að koma í veg fyrir
hryðjuverkaárásimar 11. september
síðastliðinn. Dick Cheney varafor-
seti sagði hins vegar að gagnrýni
demókrata væri óábyrg á sama tima
og enn alvarlegri hryðjuverk kynnu
að vera í undirbúningi.
Embættismenn Hvíta hússins
sögðu að upplýsingar frá leyniþjón-
ustunni sem George W. Bush for-
seta voru afhentar i ágúst hefðu ver-
ið of almennar til að hægt hefði ver-
ið að grípa til aðgerða.
„Ég tel ekki að nokkur maður
hefði getað spáð því fyrir fram að
þessir menn myndu taka flugvél
traustataki og fljúga henni á World
Trade Center, taka svo aðra vél og
fljúga henni á Pentagon,“ sagði
Condoleezza Rice, þjóðaröryggisráð-
gjafi Bush forseta.
Bush sagði á lokuðum fundi með
repúblikönum á þingi að það væri
pólitísk lykt af árásum demókrata á
hann vegna þessa máls, að sögn
heimildarmanna.
Hvíta húsið viðurkenndi að Bush
hefði verið varaður við því fyrir 11.
september að stuðningsmenn
Osama bin Ladens hefðu uppi áform
um að ræna flugvél, en þó ekki fyrr
en eftir að CBS-sjónvarpsstöðin
skýrði fyrst frá málinu.
Cheney varaforseti sagði að það
væri „fullkomið ábyrgðarleysi og
ekki sæmandi þjóðaleiðtogum á
stríðstímum" að láta að því liggja,
eins og demókratar hefðu gert, að
hægt hefði verið að koma í veg fyr-
ir hryðjuverkaárásirnar.
Þingmenn eru famir að þrýsta á
með vaxandi þunga að óháðri rann-
sóknarnefnd verði falið að rannsaka
hvað stjómvöld vissu fyrir 11. sept-
ember og hvort rétt hefði verið
brugðist við.
REUTERSMYND
Til varnar forseta sínum
Condoleezza Rice, þjóöaröryggisráögjafi Bush Bandaríkjaforseta, vergjöröir
forsetans í kjölfar viövarana um hugsanleg flugrán fylgismanna bin Ladens.
Jan Peter Balkenende, væntanlega nýr forsætisráöherra Hollands
Talið er nokkuö öruggt aö Beatrix Hollandsdrottning muni veita Jan Peter Balkenende, leiötoga Kristilega demókrataflokksins,
formlegt stjórnarmyndunarumboð strax eftir helgi, en flokkur hans fékk langmest fylgi í þingkosningunum á mibvikudaginn.
Hér á myndinni fagnar Balkenende sigrinum ásamt eiginkonu sinni Biöncu Balkenende.
Þreifingar hafnar í Hollandi
Daniel Pearl
llla farnar líkamsleifar sem taldar
eru vera af bandaríska blaðamann-
inum Daniel Pearl, fundust í ná-
grenni Karachi í gær.
Líkamsleifar
Daniels Pearl
líklega fundnar
Sérfræðingar yfirvalda í Pakistan
rannsaka nú illa farnar líkamsleifar
sem grafnar vom upp í Gaddap í
Baluchistan-héraði í nágrenni borg-
arinnar Karachi í suðurhluta lands-
ins í gær og taldar eru vera af blaða-
manninum myrta, Daniel Pearl.
Líkfundurinn varð í kjölfar hand-
töku þriggja Sunni-múslíma í
tengslum við sjálfsmorðsárásina á
frönsku tæknimennina í Karachi í
síðustu viku, en þeir munu hafa
bent á staðinn eftir yfirheyrslur.
Talsmaður pakistönsku lögregl-
unnar sagði að ómögulegt væri að
bera kennsl á líkið sem væri mjög
illa farið, en staðfesti að fimrn sér-
fræðingar heíðu verið sendir á stað-
inn til að rannsaka líkamsleifamar.
Það gætu þvi liðið nokkrir dagar ef
ekki vikur þar til niðurstöður DNA-
rannsókna lægju fyrir.
Fymun blaðamaðurinn Mat Her-
ben var í gær kosinn nýr leiðtogi
hægri öfgaflokks hins myrta Pims
Fortuyns, sem óvænt náði öðru sæt-
inu í holiensku þingkosningunum á
miðvikudaginn.
Mat, sem er 49 ára, mun þvi leiða
flokkinn í væntanlegum stjórnar-
myndunarviðræðum, en að hans sögn
er flokkurinn meira en tilbúinn til að
taka þátt í nýrri ríkisstjóm. Spurður
um helstu áherslur sagðist hann
leggja áherslu á að hrista duglega upp
í kerfinu, með aukna hagsæld, baráttu
gegn glæpum og frekari uppbyggingu
í heilbrigðis- og menntamálum sem
meginbaráttumál.
Talið er nokkuð öruggt að Beatrix
Hollandsdrottning, sem fundaði með
ráðgjöfum sínum í gær, muni veita
Jan Peter Balkenende, leiðtoga Kristi-
legra demókrata, sem hlutu mest fylgi
i kosningum, formlegt umboð til
stjómarmyndunar strax eftir helgi, en
miðað við úrslit kosninganna er talið
líklegast að Balkenende reyni í fyrstu
myndun samsteypustjórnar með
flokki Fortuyns, LPF, og Frjálslynd-
um, WD, en saman hafa þessir þrir
flokkar 92 þingsæti af 150.
Kallsberg tekur
tímann sem þarf
Stjórnmálamenn í Færeyjum bíða
nú spenntir eftir næsta leik Anfinns
Kallsbergs lögmanns í tilraunum
hans tii að mynda meirihlutastjórn.
Kallsberg sagöi við færeyska út-
varpið í gærkvöld að hann ætlaði að
taka sér þann tima sem þyrfti og því
væri ekki að vænta tíðinda fyrir
hvítasunnuna.
Kallsberg vildi ekki segja við
hverja hann hygðist ræða fyrst.
Hann lagði þó áherslu á að ekki
hefði borið mjög mikið í milii þegar
slitnaði upp úr viðræðum núver-
andi stjórnarflokka, Fólkaflokksins,
Þjóðveldisflokksins og Sjálfstýris-
flokksins, við Jafnaðarflokkinn.
Danir með undir
flugskeytaskildi
Danski landvarnaráðherrann
Svend Aage Jensby segir að Danir
verði að verði að hafa skilning á
óskum Bandaríkjamanna um að
koma sér upp eldflaugavarnarkerfi.
Danir verði í því skyni að leyfa
þeim að nota herstöðina í Thule.
GLÆÐIR
-áburðarvökvi
úr klóþangi!
GLÆÐIR er mjög næringarrikur áburðar-
vökvi sem hentartil notkunar á grasflatir,
íþrótta- og golfvelli, tré, runna, úti- og inni-
plöntur, kartöflur og flestan annan gróður.
GLÆÐIR er seldurí5,10 og 20 lítra brúsum,
120 lítra tunnu og 1000 lítra tanki. Nánari
upplýsingar á útsölustödum.
GLÆDIR er seldur í blóma-
og garðvöruverslunum.
Framleiðandi
Guðjón D. Gunnarsson Reykhólum.
S: 434 7785 og 866 9386
BALL A CHAMPION S
ALLTAF DANSLEIKIR UM HELGAR:
17. & 18. MAÍ
Hljómsveitin Þotuliðið
FRÍR AÐGANGUR
...þor sem meistararnir mœta!
17/5/2002
Kl. 18.15 England - Swiss U21
18/5/2002
Kl. 11.00 Aston Villa - Everton
Kl. 17.00 Þyskaland - Austurríki
Kl. 18.45 Frakkland - Belgía
Kl. 20.00 Prinsinn Naseem - Manuel Calvo
20/5/2002
Kl. 15.00 Portugal - Sviss
Kl. 18.30 Ítalía - England
21/5/2002
Kl. 10.30 Kórea - England
Kl. 18.30 Belgía - Frakkland
Stórhöfði I7 • www.champions.is • Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga