Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 6
6
Fréttir
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002
DV
Þessir frambjóðendur hafa komið kjósendum í Reykjavík þœgiiegast á óvart
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
Gísll Martelnn Dagur B. Stefán Jón Guðrún Ebba Ólafur F. Inga Jóna Helgl Guðlaugur Hanna Blrna Steinun Valdís
Baldursson Eggertsson Hafstein Ólafsdóttir Magnússon Þórðardóttir Hjörvar Þ. Þórðarson Kristjánsdóttir Óskarsdóttir
DV kannar hvaða frambjóðandi utan borgarstjóraefna hefur komið mest á óvart:
Gísli Marteinn hefur
komið langmest á óvart
- Dagur B. Eggertsson nefndur næstoftast
„Þetta er mjög ánægjulegt og ég er
mjög þakklátur. Ef þetta verður til
þess að hjálpa D-listanum að sigra í
kosningunum eftir rúma viku er til-
ganginum náð af minni hálfu,“ sagði
Gísli Marteinn Baldursson, D-lista, í
samtali við DV. Hann er sá frambjóð-
andi tO borgarstjórnar, utan borgar-
stjóraefnanna, sem hefur komið kjós-
endum í Reykjavík þægilegast á
óvart samkvæmt skoðanakönnun
DV sem gerð var á miðvikudags-
kvöld. Gísli Marteinn ber höfuð og
herðar yfir aðra „fótgönguliða"
framboðslistanna í Reykjavík þar
sem 31 prósent nefnir hann. Næstur
á eftir Gísla Marteini á þessum lista
er Dagur B. Eggertsson, R-lista, en
16,6 prósent nefna hann. Þá kemur
Stefán Jón Hafstein, R-lista, en 14,1
prósent nefnir hann.
Spurt var: Hvaða frambjóðandi til
borgarstjórnar, fyrir utan borgar-
stjóraefnin, hefur komið þér þægileg-
ast á óvart? Úrtakið var 600 kjósend-
ur í Reykjavík, jafnt skipt á miili
kynja. 53,2 prósent aðspurðra tóku af-
stöðu í könnuninni. Fleiri konur en
karlar voru óákveðnar eða svöruðu
ekki spurningunni. Alls komust 29
frambjóðendur á blað í könnuninni.
Gísli Marteinn er sér á parti í
þessum efnum en þremenningarnir
sem nefndir eru hér að ofan eru
nefndir langoftast.
DV kannaði 21. apríl hvaða fram-
bjóðanda til borgarstjómar, fyrir
utan borgarstjóraefnin, kjósendur
höfðu mest álit á. Þá voru Stefán
Jón og Gísli Marteinn efstir á lista,
18,2 prósent nefndu Stefán Jón og
16,9 prósent Gísla Martein. Dagur
var þá í þriðja sæti en 12,6 prósent
nefndu hann og Inga Jóna Þórðar-
dóttir, D-lista, í fjórða sæti en 12,3
prósent nefndu hana. Þótt spurning-
arnar séu ekki fullkomlega sam-
bærilegar vekur engu að síður at-
hygli að Stefán Jón hefur misst flug-
ið, einnig Inga Jóna.
Aörir meðal 10 efstu
I fjórða sæti listans nú er Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, D-lista, en 5,3 pró-
sent nefndu hana. 4,7 prósent
nefndu Ólaf F. Magnússon, F-lista,
4,1 prósent Ingu Jónu Þórðardóttur,
D-lista, 3,1 prósent Guðlaug Þór
Þórðarson, D-lista, og Helga Hjörv-
ar, R-lista, og 2,8 prósent Hönnu
Bimu Kristjánsdóttur, D-lista, og
Steinunni V. Óskarsdóttur, R-lista.
Aðrir sem nefndir voru
8 atkvæði
Jóna Hrönn Bolladóttir, R-lista.
5 atkvæði
Margrét K. Sverrisdóttir, F-lista.
3 atkvæði
Friðrik Þór Friðriksson, R-lista,
og Gísli Helgason, F-lista.
2 atkvæði
Árni Þór Sigurðsson, R-lista, Ás-
dís Sigurðardóttir, F-lista, Björn G.
Jónsson, F-lista, Júlíus Vífill Ingv-
arsson, ekki i framboði, Kjartan
Magnússon, D-lista, og Snorri Ás-
mundsson, Æ-lista.
1 atkvæði
Alda Sigurðardóttir, D-lista,
Elva Dögg Melsted, D-lista, Gísli
Rúnar (?), Guðjón Þór Erlendsson,
A-lista, Hrönn Sveinsdóttir, F-lista,
Katrín Jakobsdóttir, R-lista, Met-
úsalem Þórisson, H-lista, Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, D-lista, og Örn
Sigurðsson, A-lista.
-hlh
Aukin þjónusta í smáauglýsingum DV:
Meiri fjölbreytni fyrir viðskiptavini
- segir Jónína Ósk Lárusdóttir á smáauglýsingadeild DV
„Við erum alltaf að leitast við að
bjóða viðskiptavinum upp á meiri
og betri þjónustu svo auglýsingar
þeirra verði bæði markvissari og
fullnægi óskum þeirra betur. Sú ný-
breytni að bjóða litmyndir í bilaaug-
lýsingum hefur t.d. mælst mjög vel
fyrir meðal viðskiptavina. Litmynd-
ir lífga auk þess upp á smáauglýs-
ingasíðurnar," segir Jónína Ósk
Lárusdóttir, verkstjóri á smáauglýs-
ingadeild DV.
Ýmsar nýjungar era að líta dags-
ins ljós á smáauglýsingasíðum DV,
markaðstorgi þjóðarinnar í mörg
ár. Viðskiptavinir sem vilja selja
bíla geta fengið birtar litmyndir af
bílunum sínum gegn 1400 króna
aukagjaldi. Heildarverð auglýsingar
verður þá 4.900 krónur.
Stöðluð hæð smáauglýsinga hefur
verið 12 millimetrar eða 4 línur. Nú
munu þær hækka i 15 millímetra og
5 línur án nokkurs aukagjalds þar
sem boðið verður upp á skáletraðar
fyrirsagnir á hverri auglýsingu. Fá
viðskiptavinir þvi flmm línur á
verði íjögurra.
Ársfundur Eftirlaunasjóðs
starfsmanna íslandsbanka
Ársfundur Eftirlauna-
sjóðs starfsmanna
íslandsbanka verður
haldinn 4. júní nk. kl.
17.15 á 5. hæð
(Hólum), Kirkjusandi.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar kynntir.
3. Skýrsla um trygginga-
fræðilega úttekt kynnt.
4. Fjárfestingastefna kynnt.
5. Önnur mál.
Stjórn Eftirlaunasjóðs starfsmanna íslandsbanka
Auk þessa verður viðskiptavin-
um boðið upp á að hafa allan texta
smáauglýsingar feitletraðan gegn
500 króna aukagjaldi. Einnig verður
boðið upp á staðlaðan ramma utan
um auglýsinguna sem einnig kostar
500 krónur aukalega.
Nýlega var opnaður smáauglýs-
ingavefur DV á slóðinni www.dv.is
en þar er hægt að bóka og panta
auglýsingar og leita í gagnagrunni
smáauglýsingadeildar DV. Hver
auglýsing sem birt er í DV birtist
síðan i eina viku á smáauglýsinga-
vefnum án endurgjalds.
Hér er aðeins fátt eitt nefnt af nýj-
ungum fyrir viðskiptavini smáaug-
lýsingadeildar DV. Næstu vikur og
mánuði verða fleirir nýjungar
kynntar sem miða allar að því að
auka þjónustu við viðskiptavini og
skila þeim enn betri árangri þegar
þeir auglýsa í DV. Eftir sem áður er
afar auðvelt að auglýsa í smáauglýs-
ingum: Þú hringir, við birtum og
það ber árangur eða: Þú pantar á
smáauglýsingavefnum, við birtum
og það ber árangur. -hlh
Aukin þjónusta í smáauglýsingum
Jónína Ósk Lárusdóttir, verkstjóri smáauglýsingadeildar DV, segir litmyndir af
bílum til sölu hafa mælst mjög vel fyrir meöal viöskiptavina.
íjfjvjj/ÍiJJ
REYKJAVIK AKUREYRl
Sólarlag í kvöld 22.44 22.29
Sólarupprás á morgun 04.04 03.50
Sí°isflóð 21.54 14.02
Árdegisflóð á morgun 09.29 02.37
Austan 5-10 m/s við suður-
ströndina en annars fremur hæg
austlæg eða breytileg átt. Yflrleitt
léttskýjað, en skýjað með köflum og
sums staðar þokuloft við suður- og
austurströndina.
Austlæg eða suðaustlæg átt.
Léttskýjað víðast hvar en skýjað
með köflum sums staðar. Hiti 8 til
16 stig að deginum, hlýjast inn til
landsins.
Hiti 6" Hiti 4® Hiti 2°
til 16° tii 12" tii 9'
Vindur: 5-10">/s Vindun 5-10'"/« Vindur: 5-13 "Vs
Hæg SA-læg eöa breytileg átt. Skýjað að mestu og fremur hlýtt. NA-iæg átt og víöa rigning. Heldur kólnandi veöur. NAogAætt meö vætu, einkum N-og A- lands.
* *
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Ailhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
j- J^usXu Jll, 'ó
AKUREYRI heiðskírt 0
BERGSSTAÐIR heiðskírt 1
BOLUNGARVÍK heiðskírt 3
EGILSSTAÐIR heiðskírt 1
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 2
KEFLAVÍK þokumóöa 6
RAUFARHÖFN heiðskírt 2
REYKJAVÍK skýjað 5
STÓRHÖFÐI skýjað 3
BERGEN skýjað 8
HELSINKI skýjað 10
KAUPMANNAHÖFN skýjað 10
ÓSLÓ léttskýjað 13
STOKKHÓLMUR 10
ÞÓRSHÖFN alskýjað 7
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 7
ALGARVE skýjað 16
AMSTERDAM þokumóöa 14
BARCELONA skýjað 15
BERLÍN skýjaö 16
CHICAGO
DUBLIN rigning 14
HALJFAX skýjað 8
frankfurt léttskýjað 15
HAMB0RG súld 11
JAN MAYEN léttskýjaö 2
LONDON skýjað 15
LÚXEMB0RG léttskýjaö 16
MALLORCA hálfskýjaö 19
MONTREAL
NARSSARSSUAQ skýjað 5
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS skýjað 16
VÍN léttskýjaö 15
WASHINGTON
WINNIPEG heiöskírt -1