Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 24
24
Helcjarblað 33'V LAUGARDAGUR 18. IVIAÍ 2002
Varði
á veginum
Grímur Hákonarson hefur gert aðra
heimildamgnd um Varða vin sinn og að
þessu sinni fjallar mgndin um leit Varða að
frægð á strætum Færegja
og Evrópu. Varði gerist götusöngvari og
lendir íútistöðum við lögregluna.
MÁNUDAGINN 29. MAÍ VERÐUR frumsýnd í Há-
skólabíói ný íslensk heimildarmynd eftir Grím Há-
konarson sem heitir Varði goes Europe. Myndin fjall-
ar um ferðalag Hallvarðs Ásgeirssonar, Varða, með
gítarinn að vopni um Norðurlönd og Evrópu og til-
raunir hans til að hasla sér völl sem götusöngvari í
stórborgum.
Þetta er heimildarmynd númer tvö sem Grímur
gerir um þennan unga atvinnuleysingja en fyrri
myndin hét Varði fer á vertíð og fjallaði um nokkuð
misheppnaða tilraun umrædds Varða til þess að ger-
ast gítarleikari í sveitaballahljómsveit eitt sumar á
íslandi.
Grímur er sjálfmenntaður kvikmyndagerðarmaður
sem augljóslega ætlar að fást við gerð heimildar-
mynda en hann viðurkennir að ekki standi til að gera
fleiri myndir um Varða en hann og Grímur eru góð-
ir vinir og hafa þekkst síðan á skólaárunum í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Grímur segir að myndin verði sýnd í Háskólabíói i
viku eða lengur ef aðsókn verður góð. En um hvað er
þessi mynd nákvæmlega?
„Þetta er nokkurs konar vegamynd. Við fórum
fyrst með Norrönu til Færeyja þar sem Varði reyndi
fyrst fyrir sér. Það gekk eiginlega ekki nógu vel því
það er engin hefð fyrir tónlistarmönnum úti á götu í
Þórshöfn og það voru aðallega rónar sem söfnuðust
að okkur,“ segir Grímur þegar hann segir blaöa-
manni DV frá þessu nýja hugverki sínu.
Sofið í görðum
Þaðan lá leið þeirra félaga til Noregs og um ýmsa
hluta Skandinavíu, Amsterdam, Hamborg, París og
fleiri borgir á meginlandi Evrópu.
„Við vildum reyna að gera skil þeirri menningu
sem þrífst í kringum götulistamenn og samskipti
þeirra við yfirvöld og áhorfendur. Við blönduðum
geði við þá og Varði spilaði með nokkrum þeirra og
við ferðuðumst að þeirra hætti aöallega á puttanum
milli staða og sváfum oft undir berum himni í al-
Varði var söguhetjan í fyrstu inynd Gríms. Varði
heitir fullu og réttu nafni Hallvarður Asgeirsson og á
þessari inynd situr hann á Hlemmi og bíður eftir
strætó.
Grímur Hákonarson er sjálfmenntaður kvikmvndagerðarmaður sem hefur gert tvær heimildarmyndir um
Varða vin sinn. Hann segir að flestir geri niyndir af ástríðu í oflætisköstum án þess að hugsa um peninga.
menningsgörðum eins og þetta fólk gerir. Við
kynntumst mörgum undarlegum karakterum sem
sumir hverjir eru þjóðsagnapersónur í þessum
bransa."
Það eru mjög mismunandi reglur um götulista-
menn eftir löndum. Á íslandi er ekki leyft að
skemmta á götum úti nema með sérstöku leyfi en
sums staöar er þetta alveg frjálst en í sumum borg-
um þarf leyfi til þess aö spila nema á ákveðnum
svæðum.
„Hluti af myndinni fjallar um árekstra Varða við
lögregluna þegar hann áttaði sig ekkert á því hvað
mætti og hvað ekki.
Það er verið að sauma að þessari menningu víða
og reyna að útrýma henni af götunum og hluti af
reynslu okkar var að læra á það á hverjum stað.“
Undanfarnar vikur hefur verið mikið rætt um
starfsemi svokallaðra „undercover“ kvikmynda-
gerðarmanna og deilt hart um það hvort leyfilegt sé
að nota í heimildarmyndir myndskeið sem tekin
eru af fólki án þess að því sé ljóst hvort nota eigi
þaö í kvikmynd. Eftir mikið málþóf var sett lög-
bann á heimildarmynd Hrannar Sveinsdóttur, í
skóm drekans, sem fjallar um þátttöku hennar í
fegurðarsamkeppni. Grímur hefur staðið í áþekk-
um skóm því þegar hann gerði fyrri myndina
fékkst hún ekki sýnd fyrr en að undangenginni rit-
skoðun.
„Sjónvarpið keypti hana og þá urðum við að sýna
náungunum sem Varði var með í hljómsveitinni
myndina. Það endaði síðan með þvi að tvö atriði,
samtals um tvær mínútur, voru klippt út úr mynd-
inni áður en hún fékkst sýnd til þess að forða henni
frá lögbanni."
Það sem ekki má
- En fannst þér þá allt í lagi að nota myndirnar án
þess að spyrja þá leyfis?
„Þegar við fórum út i þetta var ég ekki viss um aö
þetta yrði að nothæfri mynd og var ekkert sérstak-
lega að spá í það og talaöi aldrei við þá um það. Mér
fannst sjálfsagt að leita samþykkis þeirra áður en
myndin yrði sýnd og annað atriðið sem var klippt út
skipti mig engu máli en hitt fannst mér mjög mikil-
vægt en það varð að fara líka.“
Það kemur í ljós að í umræddum Evróputúr sagði
Grímur alltaf frá því að efnið sem hann tæki upp yrði
ef til vill notað i heimildarmynd sem yrði sýnt á ís-
landi í íslenska sjónvarpinu.
„Mönnum fannst það ekkert athugavert fyrst það
var ísland.“
Hver notar hvem?
- Grímur segir að í tengslum við gerð myndar-
innar hafi verið gerður hljómdiskur með nokkrum
lögum Varða og hann hafi þegar selst í 50 eintökum
sem Grímur segir að sé meira en búist var við.
Nú sést vel í fyrri myndinni að Varði er ekki
gæddur þvi sem væru kallaðir augljósir hæfileikar.
Ertu ekki bara að notfæra þér einfeldni hans?
„Þetta er bara okkar húmor og sjálfsagt hefur
hann virkað einfaldari í fyrri myndinni en hann í
rauninni er. Hann er meiri hetja i nýju myndinni
og finnur sig betur sem götutónlistarmaður en sem
sveitaballagaur."
- Hefur þú aldrei verið spurður hvort þú sért að
gera grín að honum?
„Jú. Það hefur komið fyrir,“ segir Grímur og seg-
ir að hann og Varði séu ekki mikið fyrir að spá í
það hvernig atriðin eigi að þróast áður en þeir
byrja að filma og tala ekki mjög mikiö saman um
gerð myndarinnar.
„Við viljum bara láta þetta gerast," segir Grímur
og vill taka sérstaklega fram að allt sem gerist í
heimildamyndum hans sé samt ekki leikið eða und-
irbúið fyrir fram heldur veruleikinn eins og hann
kemur af skepnunni.
- Grímur segist um þessar mundir vera að skrifa
handrit að leikinni kvikmynd sem verði óhjá-
kvæmilega dýrari í vinnslu en heimildarmyndirn-
ar. En peningar eru eitt af því sem kvikmyndagerð-
armenn telja sig aldrei eiga nóg af og verður sú um-
ræða ekki rakin frekar hér.
„Stafræna tæknin hefur gert mörgum kleift að
gera myndir sem heföu áður ekki gert það. Menn
hafa ekki verið að hugsa mjög mikið um peninga
heldur gert heilar myndir upp á von og óvon i ein-
hverju oflæti. Það er mikið þannig sem við höfum
unnið okkar myndir," segir Grímur að lokum.
Að lokum má geta þess að verið er að vinna að
því að fá leyfi til þess að Varði og Eiríkur Norðdahl
komi fram sem götuspilarar á Lækjartorgi daginn
sem kvikmyndin verður frumsýnd en Eiríkur kem-
ur fram með Varða í myndinni og spilar meö hon-
um í Færeyjum. Þá gefst fólki fágætt tækifæri til
þess að sannfærast um að Varði er ekki hugarfóst-
ur Gríms og félaga hans heldur raunverulegur
listamaður. PÁÁ