Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976. lið til Israels. Ber að fagna þess- ari ákvörðun Skáksambands- ins, þó vitað sé að við getum ekki sent okkar sterkasta lið þá er það aðalatriðið að vera með. Það er orðin það mikil breidd í skákinni á íslandi að við getum vel sent nokkurs konar varalið en samt náð árangri sem fylli- lega er hægt að sætta sig við. Hér er svo að lokum stutt skák sem tefld var á alþjóðlegu móti í Svíþjóð ekki alls fyrir löngu. ‘ Hv. Dan Hansson. Sv. Niklasson. Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. b4!? Mjög skarpur leikur sem gefur hvitum góð tækifæri ef svartur þekkir ekki réttu svar- leikina. 3. cxb4 4. d4 e6 5. Bd3 d5 6. Rbd2 Be7 Svartur á í erfiðleikum í skákinni, að koma mönnum sín- um út. Hér kom einnig til greina 6... g6 og síðan Bg7. 7. e5 Rh6 8. Rb3 Rf5 9. g4! Hvítur teflir djarflega og kemur þessi leikur alveg í veg fvrir að svartur geti leikiðh7- h5. 9. 10. Rxh4 11. 0-0 12. f4 13. Be3 14. fxe5 Rh4 Bxh4 f6 0-0 fxe5 Be7 I fljótu bragði lítur svarta staðan alls ekki illa út en ef betur er að gáð eru alls staðar veikleikar í henni. Endalokin eru skammt undan. 15. Hxf8+ Bxf8 16. Df3 Bd7 17. Hfl Be7 18. Dh3 svartur gafst upp. Ef 18.... g6 þá kemur 19. Hf7! Kxf7 20. Dxh7+ Kf8 21. Bxg6 og svartur er óverjandi mát. Eftir 18. ... h6 hefði fylgt 19. Bxh6 og svartur er varnarlaus. EINFALT, EN FALLEGT Enn höldum við áfram þar sem frá var horfið sl. laugardag og tökum fyrir spil nr. 29. Vestur gefur. Allir utan hættu. Norðub ♦ 62 9 AG10 O A752 + AKG3 SUÐUR * K853 KD983 06 + 642 Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður 1 spaði dobl pass 3 hjörtu pass 4 hjörtu pass pass pass Utspil tigulkóngur. Suður var mjög ánægður með samninginn, drap á tígulás og spilaði spaða, hann ætlaði að trompa spaða í blindum. Spilar þú spilið eins? Svona voru allar hendurnar: Norður + 62 V AGIO 0 A752 + AKG3 Austur + G9 9? 652 010843 +D1085 SUÐUR + K853 V KD983 06 + 642 Austur átti annan slag á spaðaníu og spilaði hjarta. Áfram spaði og hjarta til baka frá vörninni. Nú gat suður trompað einn spaða f blindum en þegar hann reyndi lauf- svíningu seinna í spilinu og hún heppnaðist ekki, varð hann að sætta sig við níu slagi. En var þá einhver betri leið til í spilinu? Já, hún er til og er einföld — en falleg. Þú drepur tígulútspilið á ás og spilar tígli og trompar. Nú spilar þú laufi á kóng og tfgli og trompar. Enn kemur lauf á ás og tígull trompaður. Þá spilar þú laufi og enginn getur hindrað það að þú trompir fjórða laufið með öðru hjónanna. Þú færð því sjö slagi á tromp og ás og kóng f laufi og slagi. tígulás, samtals tfu Spil nr. 30. Suður gefur. Allir á hættu. Norrur + AD7 <? KG4 0 G42 +DG65 Vestur Austur + 62 + K4 10873 <? AD95 OD973 0A1086 + 1085 +942 SUÐUK + G109853 <?62 O K5 + AK7 Sagnir gengu: Suður Norður 1 spaði 2 lauf 2 spaðar pass 4 spaðar. Útspil vesturs tígulþristur. Ef vestur hefði spilað út hjarta f fyrsta útspili hefði sagnhafi ekki átt nokkra möguleika f spilinu, en eftir tígulútspilið, hvort viltu vera í sókn eða vörn? Það virðist vera eftir útspilið að spilið sé unnið því að sagnhafi fær á tigulkóng og svínar spaða og þá geti hann gefið niður hjarta í fjórða laufið. En austur er með í leiknum og hann veit að suður á tígulkóng. Þegar suður lætur lftinn tfgul frá blindum þá lætur hann tfgultfu og þegar hann kemst inn á spaðakóng spilar hann litlum tígli til að koma vestri inn, fær hjarta til baka og spilið er tapað. En gat suður þá ekki gert eitthvað f málinu? Þegar útspilið kemur getur suður tryggt það að vestur komist inn í spilið með þvf að láta tígulgosa frá blindum og nú er sama hvað austur gerir, spilið er unnið. Það er alltaf sama sagan,' einfalt, en fallegt. Spil nr. 31. Suðurgefur. Allir á hættu. Norrur + 64 <? 83 0 G10753 + D1083 SUOUR + ÁKG <?Á106 OÁD4 +ÁKG6 Sagnir gengu: Suður Norður 2 lauf 2 tíglar 3 grönd pass Utspil 'vesturs hjartafjarki. Austur átti fyrsta slag á hjarta- drottningu og spilaði hjartanfu til baka og suður gaf aftur. Og suður var inni á hjartaás í þriðja slag. Ef tfgul- eða spaða- svfning heppnaðist á sagnhafi níu slagi. En hvort á hann að svína spaða eða tígli? Suður áleit að bezti möguleikinn væri að leggja niður tígulás, ef kóngur væri einspil, og sfðan svína spaða, eftir að vera búinn að taka spaðaásinn fyrst, ef spaðadrottning væri einspil, en ekkert skeði. Hann fór því inn á laufadrottningu og svínaði spaða og þegar vestur fékk slag- inn á drottningu var spilið tapað. Enn gamla, góða spurn- ingin: gat sagnhafi gert betur? Svona voru allar hendurnar: Norður + 64 <7 83 OG10753 + D1083 Austur , + 108752 <? D95 0 96 + 742 SuOIK + ÁKG <?Á106 0ÁD4 + ÁKG6 Utspilið hjartafjarki gefur til kynna að vestur geti ekki átt- meira en fimm hjörtu. Við sjáum hjartaþrist í blindum, þvf gefum við hjarta aðeins einu sinni, tökum sfðan laufin Vestur + AD1074 t?74 OKDG9 +97 Vestur + D93 V KG742 0 K82 + 95 öll og erum inni á hendinni til að spila út hjartatiu. Vestur getur hirt slna þrjá hjartaslagi en verður sfðan að gefa okkur annaðhvort tfgul- eða spaðaslag og spilið er unnið. Alltaf sama sagan, einfalt en.... Bridgefélagið Ásarnir Urslit sfðasta mánudags. A riðill. Meðalskor 165 st. 1. Rafn Kristjánsson — Jón P. Sigurjónsson 197 st. 2. Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigrfður Pálsdóttir 187 st. 3. Guðmundur Pálsson — Sigurmundur Stefánsson 185 st. 4. Bjarni Pétursson — Vigfús Pálsson 180 st. B riðill. Meðalskor 108 st. Guðmundur Arnarsson — Jón Baldursson UL-menn 123 st. Sigurjón Tryggvason — Baldur Kristjónsson 123 st. Baldur Isl.m. f einm. Ester Jakobsdóttir — Guðmundur Pétursson 120 st. Kristfn Lýðsdóttir — Þorgeir Eyjólfsson 114 st. Þátttaka stóreykst og er farið að bera á þekktum andlitum. Baráttan eykst eins og sjá má á þvf að í B-riðli eru tvö pör jöfn að stigum. Af kunningjum minum Kunningi minn, sem er útlendingur, spurði mig um daginn hvað rigndi eiginlega marga daga á ári hér. Þrjú hundruð sextíu og fjóra daga, sagði ég. Hafið þið þá sólskin hér í einn dag á ári, spurði hann. Nei, nei, sagði ég. Þennan eina dag gengur á með skúrum. Regnið lemur rúðuna mína, rúðan mín að því spyr, hvort regnið sé ekki að krókna úr kulda. Komdu inn, þarna eru dyr. Regnið hamast á hurðinni minni, en hurðin er rammlega læst og biður regnið að hafa sig heim og hringja bjöiiunni næst. Kunningi minn, sá heimski, kom til mín um daginn og sagði — veistu af hverju ríkissjóður er alltaf tómur. — Nei, sagði ég. — Það er af því, sagði hann þá, að það er aldrei neitt f honum.— Ég sagði honum að mér þætti þetta lélegur brandari. — Allt í lagi, sagði hann, en veistu þá hvað er líkt með geirfugli og óspjallaðri mey —. Nei, sagði ég. — Hvorugt er til, sagði hann. Hvernig veistu það, spurði ég. Nú, er kannski ekki búið að útrýma geirfuglinum, spurði vinur minn. Hann byssunni lyfti, en lét hana siga um leið og hann miðaði, og hátt hann bölvaði heimskingja þeim sem háðfugla friðaði. Konan mín trúir ekki neinu sem ég segi, sagði einn vinur minn við mig um daginn. Hún kom askvaðandi inn f hús- bóndaherbergið sitt fyrir nokkru, þar sem ég sat f mestu makindum, og sagði, ég veit að þú heldur fram hjá mér með konu forstjórans þins. Hvernig veistu V það, spurði ég. Nú, svo þú viðurkennir það, sagði hún. Alls ekki, sagði ég, aftur á móti veit ég að kona forstjórans mfns hefur haldið þó nokkuð oft fram hjá honum með mér. Þið hafið kannski tekið eftir því að vinir mínir koma oft við sögu í þessum þáttum. Þeir eru þó aldrei nafngreindir. Það er vegna þess að þeir eru ekki þekktir menn. Nú er ég ekki einn um það að tala um vini mína. Þ.e.a.s. ég er einn um að tala um vini mfna, en fjöldinn allur af mönnum talar um vini sína. Þá segja þeir gjarnan — vinur minn Halldór og eiga þá við Laxness, eða vinur minn Einar og eiga þá við ráðherr- ann. Sumir tala jafnvel um vin sinn Þorgeir og eiga þá við Þorgeir. Á sunnudögum geng ég gjarnan að gamni minu niður að Tjörn að horfa á vora himinmigu, heiðvirt fóik og þeirra börn. Þarna er fallegt fyrirbæri, fegurð þess er engu lík. Mér fannst kiárt að koma því fyrir í klofinu (vaginai area) á Re.vkjavík. Fyrir þá sem ekki skilja útiensku skal það tekið fram að vaginal area þýðir klof, eða þungamiðja. Ég held ég hafi lesið þessa til- kynningu f blaði um daginn. Reykja- víkurborg verður eitt hundrað og nfutfu ára f dag. Hún verður að heiman. Ég varð fyrir merkilegri reynslu um daginn. Ég var kvaddur samkvæmt þrítugustu og sjöttu grein laga númer sextiu og átta frá árinu nftján hundruð sjötiu og eitt. til viðtais á skrifstofu rannsóknardeildar ríkisskattstjóra. Þarna var ég yfirheyrður í tvær mínótur. Ég sagði auðvitað ekkert nema sann- leikann og maðurinn, sem yfirheyrði mig, trúði mér. Þeir hjá skattinum eru alltaf að taka svokallaðar stikkprufur. Ég hef alltaf haldið að þær væru í þvf fólgnar að taka framtöl af handahófi úr bunkanum og athuga sfðan þau framtöl. Nú er ég kominn á aðra skoðun. Hver sú skoðun er veit ég ekki. En undanfarin þrjú ár hefur framtal mitt ætíð verið rannsakað. Ég veit ekki hvers vegna. En fyrir þremur árum orti ég eftirfarandi vísu f blað. Það er eilífur bratti í efnahagssnatti, afrakstur sjá menn nú vinnunnar sinnar. Enginn mig latti, ég lapg undan skatti og iagói við drengskapinn konunnar minnar. Ég þekki konu sem hefur alltaf fullar hendur fjár. Hún er gjaldkeri f Búnaðar- bankanum. Hve himneskt er að haida brúðkaup glæst. Tii heiðurs þér með faiskri rödd ég syng. Þinn draumur í þessum heimi hefur ræst, á hönd þér berðu ávísanahring. Ég fékk bréf um daginn sem sagði, ég elska frfmerki. Hvernig stendur á því, spurði ég. Ef þú værir bréf, sagði bréfið, hvern mundir þú þá elska, kannski símamálastjóra? Heldurðu að maður geti bara valið úr, bætti það sfðan við. Ekki aldeilis, en mikið öfunda ég oft frimerkin. Af hverju, spurði ég. Nú auðvitað vegna þess að skrifstofu- stúlkurnar gera alltaf þetta, þú veist, við okkur, en símamálastjóri gerir alltaf þetta, þú veist, við frimerkin. Ljóð á laugardegi Ljóð á laugardegi Liðnir æskuleikir ieita á hugi manna. Ellin ætíð kveikir eida minninganna. Æskuárin iíða án áhyggna og kviða. Barni er löng sú bið, sú bið að verða fullorðið. Tíminn lfður leifturhratt er iítum við með söknuði á farinn veg. Fuilorðin við finnum vei hve f jarskalega barnæskan er dásamleg. Hér við sitjum saman sæi á ævikveldi við glóð frá arineldi áfram malar tímans kvörn, og við þráum að verða aftur börn. Þetta var dægurlagatexti vikunnar. Ef þið kunnið ekki lagið, þá hafið þið þó alla vega textann. Því fólki, sem ætlar út um helgina, vil ég benda á það, að nú eru mánaðamót. Látið ykkur samt ekki detta í hug að fara á mánaðamót. Það er ekkert gaman, bfðið heldur eftir hestamannamótunum. — Ben.Ax.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.