Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976.
lið til Israels. Ber að fagna þess-
ari ákvörðun Skáksambands-
ins, þó vitað sé að við getum
ekki sent okkar sterkasta lið þá
er það aðalatriðið að vera með.
Það er orðin það mikil breidd í
skákinni á íslandi að við getum
vel sent nokkurs konar varalið
en samt náð árangri sem fylli-
lega er hægt að sætta sig við.
Hér er svo að lokum stutt
skák sem tefld var á alþjóðlegu
móti í Svíþjóð ekki alls fyrir
löngu.
‘ Hv. Dan Hansson.
Sv. Niklasson.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5
2. Rf3 Rc6
3. b4!?
Mjög skarpur leikur sem
gefur hvitum góð tækifæri ef
svartur þekkir ekki réttu svar-
leikina.
3. cxb4
4. d4 e6
5. Bd3 d5
6. Rbd2 Be7
Svartur á í erfiðleikum í
skákinni, að koma mönnum sín-
um út. Hér kom einnig til
greina 6... g6 og síðan Bg7.
7. e5 Rh6
8. Rb3 Rf5
9. g4!
Hvítur teflir djarflega og
kemur þessi leikur alveg í veg
fvrir að svartur geti leikiðh7-
h5.
9.
10. Rxh4
11. 0-0
12. f4
13. Be3
14. fxe5
Rh4
Bxh4
f6
0-0
fxe5
Be7
I fljótu bragði lítur svarta
staðan alls ekki illa út en ef
betur er að gáð eru alls staðar
veikleikar í henni. Endalokin
eru skammt undan.
15. Hxf8+ Bxf8
16. Df3 Bd7
17. Hfl Be7
18. Dh3 svartur gafst upp.
Ef 18.... g6 þá kemur 19. Hf7!
Kxf7 20. Dxh7+ Kf8 21. Bxg6
og svartur er óverjandi mát.
Eftir 18. ... h6 hefði fylgt 19.
Bxh6 og svartur er varnarlaus.
EINFALT, EN FALLEGT
Enn höldum við áfram þar
sem frá var horfið sl. laugardag
og tökum fyrir spil nr. 29.
Vestur gefur. Allir utan
hættu.
Norðub
♦ 62
9 AG10
O A752
+ AKG3
SUÐUR
* K853
KD983
06
+ 642
Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði dobl pass 3 hjörtu
pass 4 hjörtu pass pass
pass
Utspil tigulkóngur. Suður
var mjög ánægður með
samninginn, drap á tígulás og
spilaði spaða, hann ætlaði að
trompa spaða í blindum. Spilar
þú spilið eins?
Svona voru allar hendurnar:
Norður
+ 62
V AGIO
0 A752
+ AKG3
Austur
+ G9
9? 652
010843
+D1085
SUÐUR
+ K853
V KD983
06
+ 642
Austur átti annan slag á
spaðaníu og spilaði hjarta.
Áfram spaði og hjarta til baka
frá vörninni. Nú gat suður
trompað einn spaða f blindum
en þegar hann reyndi lauf-
svíningu seinna í spilinu og
hún heppnaðist ekki, varð hann
að sætta sig við níu slagi. En
var þá einhver betri leið til í
spilinu? Já, hún er til og er
einföld — en falleg. Þú drepur
tígulútspilið á ás og spilar tígli
og trompar. Nú spilar þú laufi á
kóng og tfgli og trompar. Enn
kemur lauf á ás og tígull
trompaður. Þá spilar þú laufi
og enginn getur hindrað það að
þú trompir fjórða laufið með
öðru hjónanna. Þú færð því sjö
slagi á tromp og ás og kóng f
laufi og slagi. tígulás, samtals tfu
Spil nr. 30. Suður gefur. Allir á hættu. Norrur + AD7 <? KG4 0 G42 +DG65
Vestur Austur
+ 62 + K4
10873 <? AD95
OD973 0A1086
+ 1085 +942 SUÐUK + G109853 <?62 O K5 + AK7
Sagnir gengu:
Suður Norður
1 spaði 2 lauf
2 spaðar pass 4 spaðar.
Útspil vesturs tígulþristur.
Ef vestur hefði spilað út hjarta
f fyrsta útspili hefði sagnhafi
ekki átt nokkra möguleika f
spilinu, en eftir tígulútspilið,
hvort viltu vera í sókn eða
vörn? Það virðist vera eftir
útspilið að spilið sé unnið því
að sagnhafi fær á tigulkóng og
svínar spaða og þá geti hann
gefið niður hjarta í fjórða
laufið. En austur er með í
leiknum og hann veit að suður
á tígulkóng. Þegar suður lætur
lftinn tfgul frá blindum þá
lætur hann tfgultfu og þegar
hann kemst inn á spaðakóng
spilar hann litlum tígli til að
koma vestri inn, fær hjarta til
baka og spilið er tapað. En gat
suður þá ekki gert eitthvað f
málinu? Þegar útspilið kemur
getur suður tryggt það að
vestur komist inn í spilið með
þvf að láta tígulgosa frá
blindum og nú er sama hvað
austur gerir, spilið er unnið.
Það er alltaf sama sagan,'
einfalt, en fallegt.
Spil nr. 31. Suðurgefur. Allir
á hættu.
Norrur
+ 64
<? 83
0 G10753
+ D1083
SUOUR
+ ÁKG
<?Á106
OÁD4
+ÁKG6
Sagnir gengu:
Suður Norður
2 lauf 2 tíglar
3 grönd pass
Utspil 'vesturs hjartafjarki.
Austur átti fyrsta slag á hjarta-
drottningu og spilaði hjartanfu
til baka og suður gaf aftur. Og
suður var inni á hjartaás í
þriðja slag. Ef tfgul- eða spaða-
svfning heppnaðist á sagnhafi
níu slagi. En hvort á hann að
svína spaða eða tígli? Suður
áleit að bezti möguleikinn væri
að leggja niður tígulás, ef
kóngur væri einspil, og sfðan
svína spaða, eftir að vera búinn
að taka spaðaásinn fyrst, ef
spaðadrottning væri einspil, en
ekkert skeði. Hann fór því inn á
laufadrottningu og svínaði
spaða og þegar vestur fékk slag-
inn á drottningu var spilið
tapað. Enn gamla, góða spurn-
ingin: gat sagnhafi gert betur?
Svona voru allar hendurnar:
Norður
+ 64
<7 83
OG10753
+ D1083
Austur ,
+ 108752
<? D95
0 96
+ 742
SuOIK
+ ÁKG
<?Á106
0ÁD4
+ ÁKG6
Utspilið hjartafjarki gefur til
kynna að vestur geti ekki átt-
meira en fimm hjörtu. Við
sjáum hjartaþrist í blindum,
þvf gefum við hjarta aðeins
einu sinni, tökum sfðan laufin
Vestur
+ AD1074
t?74
OKDG9
+97
Vestur
+ D93
V KG742
0 K82
+ 95
öll og erum inni á hendinni til
að spila út hjartatiu. Vestur
getur hirt slna þrjá hjartaslagi
en verður sfðan að gefa okkur
annaðhvort tfgul- eða spaðaslag
og spilið er unnið. Alltaf sama
sagan, einfalt en....
Bridgefélagið Ásarnir
Urslit sfðasta mánudags.
A riðill. Meðalskor 165 st.
1. Rafn Kristjánsson — Jón P.
Sigurjónsson 197 st.
2. Ingibjörg Halldórsdóttir —
Sigrfður Pálsdóttir 187 st.
3. Guðmundur Pálsson —
Sigurmundur Stefánsson 185
st.
4. Bjarni Pétursson — Vigfús
Pálsson 180 st.
B riðill. Meðalskor 108 st.
Guðmundur Arnarsson — Jón
Baldursson UL-menn 123 st.
Sigurjón Tryggvason — Baldur
Kristjónsson 123 st. Baldur
Isl.m. f einm.
Ester Jakobsdóttir —
Guðmundur Pétursson 120 st.
Kristfn Lýðsdóttir — Þorgeir
Eyjólfsson 114 st.
Þátttaka stóreykst og er farið
að bera á þekktum andlitum.
Baráttan eykst eins og sjá má á
þvf að í B-riðli eru tvö pör jöfn
að stigum.
Af kunningjum minum
Kunningi minn, sem er útlendingur,
spurði mig um daginn hvað rigndi
eiginlega marga daga á ári hér. Þrjú
hundruð sextíu og fjóra daga, sagði ég.
Hafið þið þá sólskin hér í einn dag á ári,
spurði hann. Nei, nei, sagði ég. Þennan
eina dag gengur á með skúrum.
Regnið lemur rúðuna mína,
rúðan mín að því spyr,
hvort regnið sé ekki að krókna úr kulda.
Komdu inn, þarna eru dyr.
Regnið hamast á hurðinni minni,
en hurðin er rammlega læst
og biður regnið að hafa sig heim
og hringja bjöiiunni næst.
Kunningi minn, sá heimski, kom til
mín um daginn og sagði — veistu af
hverju ríkissjóður er alltaf tómur. —
Nei, sagði ég. — Það er af því, sagði
hann þá, að það er aldrei neitt f
honum.— Ég sagði honum að mér þætti
þetta lélegur brandari. — Allt í lagi,
sagði hann, en veistu þá hvað er líkt með
geirfugli og óspjallaðri mey —. Nei,
sagði ég. — Hvorugt er til, sagði hann.
Hvernig veistu það, spurði ég. Nú, er
kannski ekki búið að útrýma
geirfuglinum, spurði vinur minn.
Hann byssunni lyfti, en lét hana siga
um leið og hann miðaði,
og hátt hann bölvaði heimskingja þeim
sem háðfugla friðaði.
Konan mín trúir ekki neinu sem ég
segi, sagði einn vinur minn við mig um
daginn. Hún kom askvaðandi inn f hús-
bóndaherbergið sitt fyrir nokkru, þar
sem ég sat f mestu makindum, og sagði,
ég veit að þú heldur fram hjá mér með
konu forstjórans þins. Hvernig veistu
V
það, spurði ég. Nú, svo þú viðurkennir
það, sagði hún. Alls ekki, sagði ég, aftur
á móti veit ég að kona forstjórans mfns
hefur haldið þó nokkuð oft fram hjá
honum með mér.
Þið hafið kannski tekið eftir því að
vinir mínir koma oft við sögu í þessum
þáttum. Þeir eru þó aldrei nafngreindir.
Það er vegna þess að þeir eru ekki
þekktir menn. Nú er ég ekki einn um
það að tala um vini mína. Þ.e.a.s. ég er
einn um að tala um vini mfna, en
fjöldinn allur af mönnum talar um vini
sína. Þá segja þeir gjarnan — vinur
minn Halldór og eiga þá við Laxness, eða
vinur minn Einar og eiga þá við ráðherr-
ann. Sumir tala jafnvel um vin sinn
Þorgeir og eiga þá við Þorgeir.
Á sunnudögum geng ég gjarnan
að gamni minu niður að Tjörn
að horfa á vora himinmigu,
heiðvirt fóik og þeirra börn.
Þarna er fallegt fyrirbæri,
fegurð þess er engu lík.
Mér fannst kiárt að koma því fyrir
í klofinu (vaginai area) á Re.vkjavík.
Fyrir þá sem ekki skilja útiensku skal
það tekið fram að vaginal area þýðir
klof, eða þungamiðja.
Ég held ég hafi lesið þessa til-
kynningu f blaði um daginn. Reykja-
víkurborg verður eitt hundrað og nfutfu
ára f dag. Hún verður að heiman.
Ég varð fyrir merkilegri reynslu um
daginn. Ég var kvaddur samkvæmt
þrítugustu og sjöttu grein laga númer
sextiu og átta frá árinu nftján hundruð
sjötiu og eitt. til viðtais á skrifstofu
rannsóknardeildar ríkisskattstjóra.
Þarna var ég yfirheyrður í tvær mínótur.
Ég sagði auðvitað ekkert nema sann-
leikann og maðurinn, sem yfirheyrði
mig, trúði mér. Þeir hjá skattinum eru
alltaf að taka svokallaðar stikkprufur.
Ég hef alltaf haldið að þær væru í þvf
fólgnar að taka framtöl af handahófi úr
bunkanum og athuga sfðan þau framtöl.
Nú er ég kominn á aðra skoðun. Hver sú
skoðun er veit ég ekki. En undanfarin
þrjú ár hefur framtal mitt ætíð verið
rannsakað. Ég veit ekki hvers vegna. En
fyrir þremur árum orti ég eftirfarandi
vísu f blað.
Það er eilífur bratti í efnahagssnatti,
afrakstur sjá menn nú vinnunnar
sinnar.
Enginn mig latti, ég lapg undan skatti
og iagói við drengskapinn konunnar
minnar.
Ég þekki konu sem hefur alltaf fullar
hendur fjár. Hún er gjaldkeri f Búnaðar-
bankanum.
Hve himneskt er að haida brúðkaup
glæst.
Tii heiðurs þér með faiskri rödd ég syng.
Þinn draumur í þessum heimi hefur
ræst,
á hönd þér berðu ávísanahring.
Ég fékk bréf um daginn sem sagði, ég
elska frfmerki. Hvernig stendur á því,
spurði ég. Ef þú værir bréf, sagði bréfið,
hvern mundir þú þá elska, kannski
símamálastjóra? Heldurðu að maður geti
bara valið úr, bætti það sfðan við. Ekki
aldeilis, en mikið öfunda ég oft
frimerkin. Af hverju, spurði ég. Nú
auðvitað vegna þess að skrifstofu-
stúlkurnar gera alltaf þetta, þú veist, við
okkur, en símamálastjóri gerir alltaf
þetta, þú veist, við frimerkin.
Ljóð á
laugardegi
Ljóð á
laugardegi
Liðnir æskuleikir
ieita á hugi manna.
Ellin ætíð kveikir
eida minninganna.
Æskuárin iíða
án áhyggna og kviða.
Barni er löng sú bið,
sú bið að verða fullorðið.
Tíminn lfður leifturhratt
er iítum við með söknuði á farinn veg.
Fuilorðin við finnum vei
hve f jarskalega barnæskan er dásamleg.
Hér við sitjum saman
sæi á ævikveldi
við glóð frá arineldi
áfram malar tímans kvörn,
og við þráum að verða aftur börn.
Þetta var dægurlagatexti vikunnar. Ef
þið kunnið ekki lagið, þá hafið þið þó
alla vega textann.
Því fólki, sem ætlar út um helgina, vil
ég benda á það, að nú eru mánaðamót.
Látið ykkur samt ekki detta í hug að fara
á mánaðamót. Það er ekkert gaman,
bfðið heldur eftir hestamannamótunum.
— Ben.Ax.