Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976.
Styttan af Skúla fógeta
stendur I Bæjarfógetagarðin-
um. Hún er gerð af Guðmundi
Einarssyni frá Miðdal og er
gjöf frá Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur til minningar um
hundrað ára frjálsa verzlun á
íslandi árið 1954.
Við syðri enda Tjarnarinnar,
fyrir framan ráðherrabústað-
inn í Tjarnargötu, stendur
stytta af Ólafi Thors, gerð af
Sigurjóni Ólafssyni. Styttan er
gefin af sjálfstæðismönnum til
minningar um þennan forvígis-
mann þeirra.
Á barnaleikvelli vestur við
Hringbraut stendur Héðinn
Valdimarsson eftir Sigurjón
Ólafsson. Byggingafélag alþýðu
lét reisa þessa styttu árið 1955.
Við Dómkirkjuna eru brjóst-
myndir af tveimur merkum
guðsmönnum.
„Brjóstmyndin af sr. Bjarna
er eftir Sigurjón Ólafsson. Það
var eitt af fyrstu embættisverk-
um Birgis ísleifs Gunnarssonar
borgarstjóra þegar brjóstmynd-
in var afhjúpuð af ekkju sr.
Bjarna, frú Önnu, í desember
1972. Sr. Bjarni var heiðurs-
borgari Reykjavíkur.
Við innganginn í kirkjuna er
brjóstmynd af sr. Jóni biskup
Vídalín, gerð af Ríkarði Jóns-
syni. Það eru til margar og
skemmtilegar sögur af þeim
merka ræðuskörungi og kenni-
manni. Hann predikaði eitt
sinn þegar konungurinn var við
staddur messu. Konungurinn
vildi láta hann hafa punkta til
þess að leggja út af í ræðunni.
Þegar sr. Jón var kominn í stól-
inn var honum fenginn miðinn
frá konunginum. Sr. Jón fletti
miðanum í sundur, en á honum
stóð ekkert skrifað, og sagði:
„Hér er ekkert og hér er ekkert
og í upphafi skapaði Guð himin
og jörð af engu“. “
Loks er minnisvarði Jóns
Sigurðssonar.
„Islenzka þjóðin á minnis-
varða Jóns Sigurðssonar sem er
gerður af Einari Jónssyni. Upp-
haflega stóð þessi stytta á
Lækjartorgi en var flutt á
Austurvöll í kringum 1930. Þar
stóð áður sjálfsmynd Bertels
Thorvaldsens sem var fyrsta
höggmyndin er sett var upp
opinberlega í Reykjavík, það
var árið 1885. Thorvaldsen var
Upphaflega var ætlunin að gosbrunnur yrði í kringum Saynund á
selnum. Ekki er getið um listamanninn sem er ÁsmundurSveinsson.
fluttur í Hljómskálagarðinn.
Framan á fótstallinum er eitt af
frægustu verkum Einars Jóns-
sonar, Brautryðjandinn. Lista-
maðurinn gaf íslenzka rikinu
þessa lágmynd,“ sagði Hafliði
Jónsson.
— A.Bj.
Sómi Islands, sverð og skjöldur
stendur á Austurveili ómerktur
en er eftir Einar Jónsson, eign
þjóðarinnar.
Sr. Jón biskup Vídalín vakir
yfir inngangi Dómkirkjunnar.
Ekki stendur neitt á minnis-
merkinu en iistamaðurinn var
Ríkarður Jónsson.
Ávaxtag.vðjan Pómóna á að standa þar sem sólar nýtur.
Minnisvarðinn um Héðin Valdimarsson ergefinn af Byggingaféiagi
alþýðu. Listamannsins er ekki getið en hann er Sigurjón Ólafsson.
/