Dagblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 1
i
i
i
i
i
i
-3. ARG. — LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977. —97. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022
Þyriumennimir höfðu geng-
ið 12 km frá þyrluflakinu
- Vélin fannst í Mælifelli NNA í Mýrdalsjökli
Björgunarsveitin Víkverji
frá Vík í Mýrdal kom að flaki
þyrlunnar TF-AGN um klukk-
an tvö í gærdag. Hún var í
svokölluðu Mælifelli sem er
norðnorðaustan til í Mýrdals-
jökli. Um svipað leyti tilkynntu
aðrir menn úr Víkverja að þeir
hefðu fundið flugmennina.
Þeir voru báðir látnir.
Ernst Gíslason, sem stjórnaði
víðtækri leit bæði úr lofti og á
landi, kvað mennina, Ásgeir
Höskuldsson og Jón Heiðberg,
hafa fundizt í um það bil tólf
kílómetra beinni línu frá flaki
þyrlunnar. Þeir höfðu gengið
þá vegalengd í mótvindi. Ernst
var ekki kunnugt um hvort lík
þeirra hefðu verið sködduð. —
Þeir voru saman er þeir fund-
ust.
Hann kvað Víkverjamenn
hafa farið upp Skaftártungur
og átt að ganga yfir Mælifells-
sand og sameinast öðrum leitar-
flokkum sem voru þar fyrir
vestan. Áður en til þess kom
gengu þeir fram á brak þyrl-
unnar. Hún hafði brotlent á
flatlendi og brakið dreifzt yfir
um 150 metra svæði. Rann-
sóknarnefnd flugslysa kom á
slysstaðinn með þyrlu frá
varnarliðinu um klukkan 18 í
gær.
Skömmu áður flugu blaða-
menn Dagblaðsins yfir slysstað-
inn. Flugmaður var Guðmund-
ur Hilmarsson frá Flugstöð-
inni. Hann hafði nóttina áður
verið á lofti á þessum slóðum I
nokkrar klukkustundir í von
um að sjá ljós —en án
árangurs. Miklum erfiðleikum
var bundið að finna flakið úr
lofti, jafnvel þó að staðsetning
hafi verið gefin upp.
Margir hafa velt þvi fyrir sér
hvers vegna TF-AGN hafi ekki
haft sjálfvirkan neyðarsendi
um borð. Slíkir sendar hafa
áður komið að góðu gagni svo
hægt sé að ganga fram á flug-
vélar í nauðum. Ernst Gfslason
upplýsti Dagblaðið um að ekki
væri skylt að hafa neyðarsenda
í þyrlum og svifflugum.
'
Af slysstaðnum í Mælifelli norðnorðaustan Mýrdalsjökuls. Farið er
að skafa yfir brak þyrlunnar. Skammt frá henni standa menn úr
Björgunarsveitinni Víkverja í Vík. DB-myndir Sveinn Þormóðs-
son.
Nokkra kílómetra frá siysstaðnum voru nokkrir björgunarmenn á
ferð með lík mannanna tveggja.
Þeir
fórust
Mennimir tveir, sem fórust mefl þyriunni TF-
AGN, hétu Ásgeir Höskuldsson og Jón Heiflberg.
Ásgeir Höskuldsson var búsettur í Reynilundi
1 7. Garflabæ. Hann var faeddur þann 16. desember
1932. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú böm.
Ásgeir var eigandi þyrlunnar TF-AGN.
Jón Heiflberg var búsettur afl Amarhrauni 16.
Hafnarfirfli. Hann var fæddur 25. júní 1950. Jón
var ókvæntur en lætur eftir sig eitt bam.
Þeir Jón og Ásgeir hugflust á mánudaginn fljúga
afl Fossi á Síöu og síflan til Vikur í Mýrdal og taka
þar mann. Þeir þrir ætluflu siflan afl fara til veifla. Á
miflvikudaginn, er þriflji maflurinn kom til Roykja-
víkur, kom í Ijós afl þyrlan haffli aldrei komifl fram.
Vífltæk leit var þegar skipulögfl. AJIs tóku um 400
manns þátt i henni i gær. -ÁT-
Reynt að bjarga þriðju
þrónni með styrkingu
Það er allt gert sem hægt er
til þess að afstýra frekara tjóni
en orðið er í Kísiliðjunni við
Mývatn. 1 gær var byrjað að
ýta að veggjum einu þróarinn-
ar sem eftir stendur við verk-
smiðjuna, ekki sízt í því skyni
að forða verksmiðjunni undan
vatnsflaumnum ef þróin
brysti. Smásprungur hafa
myndazt í veggi hennar og er
ennþá mikil hætta á að hún
fari sömu leið og hinar tvær.
Skrifstofuhúsið -heldur áfram
að springa en stendur þó.
I allan gærdag héldu jarð-
skjálftakippirnir áfram í
Námaskarði og í Reykjahlíðar-
hverfi. Að sögn Oskars Þórðar-
sonar á skjálftavaktinni voru
þeir 4—5 á mínútu, en Oskar
taldi styrk þeirra eitthvað hafa
minnkað.
Hitaveitan til Reykjahlíðar
brást aftur um hádegisbilið í
gær, en aftur tókst að gera við
hana undir kvöld. Rafmagns-
og símalinur voru í hættu og
simalínan til Kísiliðjunnar
slitnaði, en símasamband
komst aftur á i gærkvöld.
Mikið landsig hefur orðið i
Námaskarði og eins hefur botn
Mývatns haldið áfram að
lækka.
Við Kröflu er allt með kyrrð
og spekt. Þar segjast þeir varla
merkja skjálfta. Gufan úr
þeim holum sem þar hafa verið
virkar hefur ekkert breytzt að
sögn verkfræðinga.
-ASt.
§§|§
Þann 1. maí, eða á morgun, gengur
hins vegar i gildi reglugerð þess efnis að
allar flugvélar skuli hafa neyðarsendi.
Ernst sagði að búið hafði verið að panta
sendi í TF-AGN. -ÁT-
Fyrirtæki ráð-
herra „smaugí
gegn”
— baksíða
Brennivíns-
kassihvarf
— nemendur neyddir
tii að gangast undir
fingrafararannsókn
— bls. 4
Hættuað
reykja - fóru
að trimma
-bls.7
„Sýslunefnd-
arhretӇ
Seyðisfirði
— bls. 6
Ræður á báta
— sem róa
við Persaflóa
— bls.4
•
Portisch —í
sviðsljósinu en
ekki stærsta
Ijósgeislanum!
— Sjá skákþátt
blaðsins á bls. 8-9
A-