Dagblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 1
J 6 ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980. — 93. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11,—ADALSÍMI 27022. „EKKIMOGULEIKIA , SKA TTALÆKKUNUM NU” - segir forsætisráðherra við tíllögum Verkamannasambands og vinnuveitenda „Það er auðvitað ákaflega æskilegt að geta lækkað skatta, en það er ekki möguleiki á því nú,” sagði Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra í viðtali við DB í morgun. Verkamannasambandið og Vinnu- veitendasambandið mælast til þess, að hnúturinn i kjarasamningunum verði leystur meðskattalækkunum. Forsætisráðherra sagði, að á þeim nauma tíma sem ríkisstjórnin hefði haft til að ganga frá fjárlögum, hefði ekki verið unnt að koma við miklum niðurskurði. Að þvi yrði unnið í sumar.Þá sagði forsætisráðherra, að hann teldi eitt meginatriðið i stjórnarstefnunni vera að koma ríkis- sjóði á réttan kjöl og að hann yrði rekinn hallalaust. Um þríhliða viðræður i kjara- málum sagði forsætisráðherra, að ríkisstjórnin hefði enn ekki tekið ákvörðun um, hvenær hún kæmi inn í. Ríkisstjórnin hefði talið eðlilegast, að vinnuveitendur og launþegar ræddu rækilega saman fyrst. Ríkis- valdið yrði vafalaust að koma til sögu síðar eins og oft hefði verið. Tómas Árnason viðskiptaráðherra sagði í viðtali við DB í morgun, að mikilvægt væri að ræða vandamálin' við aðila vinnumarkaðarins á breið- um grundvelli. Þar væri ekki æskilegt að taka einn þáttinn út. Viðskipta- ráðherra sagði, að sér teldist til að skattheimtan yrði í ár 28,1% af þjóðarframleiðslunni, sem yrði minna en hefði verið á árunum 1975—78, þegar skattheimtan hefði að meðaltali verið yfir 29%. -HH „Ferslysið líkaáokkar reikning?” — segja smiðir þeir sem fyrstirvöktuathygli á slæmum aðbúnaði vidhúsFramkvæmda- stofnunarinnar ,,Við erum óhressir með að Grétar Þorsteinsson hjá Trésmiðafélaginu skuli segja að ekki hafi borizt kvört- un vegna aðbúnaðar á þessum vinnu- stað. Grétar vissi vel um það, bæði vegna þess að við vorum búnir að tala við hann og eins eftir að frétt unt aðbúnað þarnabirtist i Dagblaðinu,” sögðu þeir Eyvindur Bergmann Reynisson, Ragnar Kristjánsson og Þorgeir Már Einarsson i samtali við DB. Þeir þrir, ásamt fjórða manni sögðu frá aðstæðum við hús Fram- kvæmdastofnunarinnar í Dagblaðinu sl. fimmtudag. „Við erum mjög hissa á að eftir þessi skrif skyldi ckkert vera gert i öryggismálum á staðnum. Það þarf alltaf að verða slys til að eitthvað sé gert. öryggiseftirlitið kom á þennan vinnustað þegar fyrsta hæðin var í smíðum. Það er ekki ennþá búið að lagfæra það sem þá var sett út á. Okkur er því spurn hvort öryggis- eftirlitið fylgist ekki með því sem á að gera. Eins erum við óhressir með svar það sem Þórir Haraldsson hjá Bygg- ingarfélaginu Reyni gaf blaðinu. En hann sagði að það yrði að fara á okkar reikning ef við segðum að öryggi væri þarna i lágmarki. Hvað segir hann nún t? Okkur finnst það iíka hálf furðulegt að formaður okk- ar félags skuli rengja okkar málstað, en það gerir hann tvimælalaust í greininni. Við höllumst helzt að þvi að hann hafi einhverra hagsmuna að gæta hjá þessu byggingarfélagi. Það virðist vera að atvinnurekendnr geti komizt upp með hvað sem er og þeir láti líf manna sig engu skipta. Kann- ski þetta vinnuslys fari lika á okkar reikning,” sögðu smiðirnir þrír, Eyvindur.Ragnar og Þorgeir.. KI.A Dagblaðið sendir lesendum sínum óskir um gleðilegt sumar og þakkar fyrir veturinn Aðalf undur Flugleiða á mánudag: Tap Flug- leiða nær 6,9 millj- arðar kr. Bókfært tap Flugieiða á sl. ári nam tæpum 6,9 milljörðum króna, eða nákvæmlega 6.896.140.000 króna. Að sögn Björns Theódórssonar, fjár- málastjóra Flugleiða, í morgun liggur þessi tala fyrir í reikningum félagsins fyrir aðalfund sem verður á mánu- dag. Svo sem landsmönnum er kunnugt hefur félagið átt við mikla rekstrar- örðugleika að stríða að undanförnu, sem leiddu til stórfelldra uppsagna starfsfólks og fækkunar ferða. Mcð tilkomu sumaráætlunar hafa þó all- margir verið ráðnir aftur til Flugleiða og ferðum fjölgað. Mest tapið hefur verið af N-Atlantshafsflugi Fiug- leiða. Til samanburðar við hið mikla tap nú má nefna, að útkorna ársins 1978 var hagstæð og nam hagnaður þess árs 369.727 milljónum króna. Þcss ber þó að geta i sambandi við þessa tölu, að félagið missti það ár DC-8 þotu og komu tryggingabætur á móti tapi, sem ella hefði orðið. -JH Útvarpsum- ræðunum enn f restað Að ósk stjórnarandstöðunnar hefur útvarpsumræðum um tekjuskattinn verið frestað til mánudagskvölds. Stjórnarandstæðingum leizt ekki á þann tima, sem útvarpið ætlaði fyrir umræðurnar, sem var milli hálf- fimm og hálfsjö, í dag. Stjórnarand- stæðingum þótti þetfa lélegur hlustunartimi. Þeim leizt heldur ekki á hugmynd um að hafa umræðurnar i kvöld, þar sem menn gerðu sér gjarnan daga- mun á kvöldi síðasta vetrardags. Föstudagskvöldið var ekki talið mögulegt, þar sem ekki stóð til að hafa þingfundi þann dag. Fulltrúar þingfiokkanna urðu sammála um að hafa umræðurnar á mánudagskvöld. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra var veikur i gær en reiddist, þegar hann frétti um frestunina. -HH. A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.