Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 85
VIÐBÚNAÐUR OG FRAMKVÆMDIR TIL HAUSTSINS 1981
85
I nóvember 1971 gaf byggingarnefnd út forsögn um bókhlöðuna, er
að stóðu ásamt Ola J. Asmundssyni arkitekt þeir Finnbogi Guð-
mundsson, Grímur M. Helgason og Ólafur Pálmason úr Landsbóka-
safni og Einar Sigurðsson úr Háskólabókasafni. Þá var og arkitektun-
um Manfreð Vilhjálmssyni og Porvaldi S. Þorvaldssyni falið að teikna
bókhlöðuna, en sem ráðunautur byggingarnefndar var ráðinn fyrr-
nefndur H. Faulkner-Brown arkitekt. Til liðs við arkitektana voru
ráðnir byggingarv'erkfræðingarnir Bragi Þorsteinsson og Eyvindur
Valdimarsson, Sigurður Halldórsson rafmagnsverkfræðingur, Krist-
ján Flygenring vélaverkfræðingur og Reynir Vilhjálmsson landslags-
arkitekt. Þá var Karl Guðmundsson verkfræðingur ráðinn til að vinna
með hönnuðunum og vera þar tengiliður og driffjöður.
Miklar vonir voru lengi bundnar við, að unnt yrði að hefja bygging-
arframkvæmdir á þjóðhátíðarárinu 1974, en ýmsar tafir, m. a. vegna
samningsgerðar við Reykjavíkurborg um Birkimelslóðina, ollu því, að
fresta varð þeim enn um sinn.
Aður en greint verður frá byggingarframkvæmdum, skal bók-
hlöðunni hér lýst stuttlega.
Þjóðarbókhlaða verður íjórar hæðir auk kjallara. Gengið er inn í
bókhlöðuna að sunnan á annarri hæð. A þeirri hæð verða spjaldskrár
safnsins og margvísleg önnur hjálpargögn, aðalafgreiðsla vegna út-
lána, starfsdeildir safnsins svo sem aðfangadeild, flokkunar- og skrán-
ingardeild og miðstöð lesenda- og stofnanaþjónustu, ennfremur
stjórnardeild. A þeirri hæð verður og fatageymsla, sýningaraðstaða,
fyrirlestrasalur og kaffistofa gesta.
Af hæðinni verður gengið niður á jarðhæð hússins, sem ætluð er
svokallaðri þjóðdeild safnsins. Þar verður sérspjaldskrá um íslenzka
bókakostinn, ennfremur handbækur hvers konar, lestrarsalur, hand-
ritasalur, hið merka Benediktssafn, er Benedikt S. Þórarinsson gaf
Háskóla íslands á sínum tíma, kortasafn o. ff. Bókageymslur þjóð-
deildar verða á þessari hæð, en jafnframt í kjallara, þar sem verður
einnig aðalgeymsla handrita. í nánum tengslum við þjóðdeild verður
bókbandsstofa, þar sem einnig verður aðstaða til handritaviðgerða, og
ljósmyndastofa, búin fullkomnum tækjum.
Af inngönguhæð hússins verður gengið upp á tvær efri hæðirnar, þar
sem gert verður ráð fyrir svokölluðum sjálfbeipa, þ. e. gestir hafa hér
frjálsan aðgang að verulegum hluta bókakostsins og geta setzt í ná-
munda við þau rit, er þeir þurfa einkum að nota. Verður þar fjölbreytt