Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 94
94
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
eiginleikum, sem hafa komið honum að góðu haldi á langri og athafna-
samri ævi.
„Eg var í giærdag uppa Turni að snudda í skruddunum hanns Arna
Magnussonar, og vegna þess svo leingi er sidan eg hefi frá þér heyrt,
spurdi eg Profess. Nyerup, svosem í fornfræda skyni, hvört nockud
heyrdist handan fyrir Sundid. Hann qvadst heyrt hafa, ad þú létir
gánga 7 pressur í Stockhólmi, og prenta bækur í 7 málum. Eg, sem
valla skyl eda skrifa bæriliga eitt eða tvö mál, — fell í forundran yfir,
hvad mikid gud heftr í þig látid á svo stuttum tíma, og gledur þad mig
þarhia, ad þeir gullhalsarnir medal Svía nú géta séd ad þeir í nockrum
vísindum ega iafninga hér í landi. Mér fórst annars, þegar eg heyrdi
þessa fregn, eins og bændum ájárngerdastada þingi, þegar eg 1815 var
þar staddur. Þeir spurdu mig nl., hvað Sylfurverd væri? og eptir ad eg
hafdi útlistad þad fyrir þeim, eptir því sem eg gat best, spurdu þeir mig
ennframar, hvad leingi á þetta Sylfurverd ad standa? Enn afþví eg ecki
gat gefid greiniligt svar heruppa stungu þeir nefium saman, og þottist
eg þaraf skylia, acl þeim mundi þykia mín kénning rétt gód, ad því
undanteknu, ad í hana vantadi botninn. Ogsvo mér þockti Professor
N. kenning ágiæt og skemtilig, enn mig lángadi þó til undir eins ad vita,
hvad leingi þessi verk enn mundi yfirstanda, og hvad þú acl þeim
lidnum mundir þér fyrir hendur taka. öll völ eru nú gód, eitt ad vera
med Svíum, annað ad koma til vor aptur, og þad þridia og bezta, ad
halda beinleidis áfram inn í hiartad á Rúslandi. Svo giördi Cari 12ti
eptir frægann sigur í Polen, enn ad ferdin mistókst hönum kom þaraf,
ad hann fór of fliótt yfir landid og giætti lítillar varúdar.“
Leiðrétting við Árbók 1980
í formála á bls. 48 (Nokkur bréf Bjarna amtmanns Thorsteins-
sonar), 6. línu að ofan, á að standa: Friðrik VI, er ríkti til dauðadags
1839, en 1848 var einveldi afnumið í Danaveldi.
N. Ó.