Helgarpósturinn - 13.02.1997, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 13.02.1997, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR13. FEBRÚAR1397 StarfsfóLk Sundhallar Reykjayíkur safnæ' unairskriftuin gegn for- stöðumanni •tarfsfólk Sundhallar i^PReykjavíkur vill að yfir- manni þeirra verði vikið úr starfí. Undirskriftalisti var I gær sendur til framkvæmda- stjóra ÍTR, sem ber fyrir hönd borgarinnar ábyrgð á rekstri Sundhallarinnar. Bjami Kjartansson, forstöðu- maður Sundhallarinnar, var borinn þungum sökum síðast- liðið sumar af starfsmanni, sem hafði áður leitað til Stígamóta. Bjarni fór í frí meðan ÍTR kann- aði réttmæti ásakananna, m.a. með því að kaila starfsfólk til skýrslutöku. Málið fór ekki lengra og töldu borgaryfirvöld ekki ástæðu til að aðhafast frek- ar. Bjarni kom aftur til vinnu fyrir áramót. Stefán Jóhannsson, trúnað- armaður starfsfólks, segir að allir starfsmenn utan einn hafi skrifað undir áskorun til borg- aryfirvalda um að enduskoða þá ákvörðun að Bjarni skuli áfram starfa sem forstöðumað- ur. Stefán sagði málið á við- kvæmu stigi og hann vonaðist til að hægt væri að leysa það með atbeina ÍTR og borgarkerf- isins. Aðspurður sagði Stefán að mikillar gremju og óþolin- mæði gætti meðal starfsfólks. Fæstir starfsmanna sem HP ræddi við vildu koma fram und- ir nafni. Linda Arvich baðvörð- ur, sem starfað hefur í Sund- höllinni í átta ár, sagði þó að málið væri mjög alvarlegt og klögulisti starfsfólks Iangur. „Við höfum þagað of lengi og höfum jafnvel „kóað“ með þess- um manni til að halda friðinn og vonað að þetta lagaðist af sjálfu sér. Ég get nefnt einstök tilvik en vil ekki gera það nú, okkar eina von er að borgar- stjóri eða borgarstjórn bjargi þessum vinnustað okkar,“ segir Linda. Yfirmaður sér- sveitar lögregl- unnar klipptur úr samhengi í byssufréftt Stöðvar 2 Starfsfólk Sundhallar Reykjavíkur segir klögulistann vegna forstöðu- mannsins langan og vill hann burt. Forstöðumaðurinn segir kröfu starfs- fólks koma sér í opna skjöldu. Bjarni Kjartansson forstöðu- maður sagði að undirskrifta- söfnuriin kæmi sér í opna skjöldu og hann tryði því ekki að það væri einbeittur vilji alls starfsfólksins að losna við sig. Að öðru leyti vildi Bjarni ekki tjá sig um málið. DV/Stödvar 2-veldið gleypir Alþýðublaðið - skýr skilaboö til vinstrimanna, segir Margrét Frímannsdóttir, formaöur Alþýöubandalagsins Alþýðuflokkurinn gaf vinstrimönnum langt nef með því að leggja mál- gagn flokksins til íjöl- miðlasamsteypu DV/ Stöðvar 2. Alþýðubanda- iagið lýsti yfir áhuga sín- um á samstarfi við 41- þýðuflokkinn um blaða- útgáfu þegar það var gef- ið út að Alþýðublaðið myndi ekki koma áfram út í óbreyttu formi. - Við fenguin éngin viðbrögð frá Alþýðuflokknum, segir Margrét Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins. Hugmyndir Alþýðubandalags- manna gengu út á það að finna samstarfsgrundvÖlí á milli Al- þýðublaðsins og Vikublaðsins, sem Alþýðubandalagið gefur út. - Eitt stærsta skrefið sem hefði verið hægt að stíga í sam- einingu vinstrimanna hefði verið samvinna eða sameining þeirra blaða sem flokkarnir standa að. Alþýðuflokkurinn vildi ekki taka þátt í slíku verk- efni og það eru skýr skilaboð til vinstrimanna um vilja Al- þýðuflokksins til samvinnu stjórnarandstöðuflokkanna. Margrét Frímannsdóttir er einn fárra þingmanna sem gengið hafa fram fyrir skjöldu og gagnrýnt valdasamþjöppun á fjölmiðlamarkaðnum. Hún telur að með innbyrðis eigna- tengslum á milli Stöðvar 2, -r sem á 30% í útgáfufélagi DV, og Frjálsrar fjölmiðlunar, sem aft- ur á Dag-Tímann og hlut í Við- skiptablaðinu, sé verið að færa fjölmiðlavaldið á alltof fáar hendur. Nú fækkar enn þeim fjölmiðlum sem standa utan fyrirtækjasamsteypunnar. Frjáls fjölmiðlun leysti til sín Alþýðublaðið á föstudag en blaðið hafði verið prentað í prentsmiðju Frjálsrar fjölmiðl- unar og safnað þar skuldum, enda reksturinn verið erfiður Margrét: Alþýðuflokkurinn hafði ekki áhuga á samvinnu A-flokk- anna í útgáfumálum. undanfarin ár. Össur Skarp- héðinsson, þingmaður Alþýðu- flokksins, hefur verið ráðinn ritstjóri til bráðabirgða. Af hálfu Frjálsrar fjölmiðlunar og Alþýðuflokksins stóð til að blaðið yrði sameinað Degi- Tímanum en vegna harðrar andstöðu flokksmanna var hætt við þá ráðstöfun. Jón Bjartmarz, yfirmaður sérsveitar lögreglunnar, telur frétt Stöðvar 2 um að lögreglan hafi selt einstaklingum skamm- byssur ranga og kannast ekki við að ein slík sé í eigu geð- truflaðs manns, eins og haldið var fram. Hann hefur fjölmargt við fréttaflutninginn að athuga en hefur ekki fengið að koma á framfæri athugasemdum þrátt fyrir óskir um slíkt. Páll Magn- ússon, fréttastjóri Stöðvar 2, segir hins vegar að hann sjái enga ástæðu til að birta leið- réttingu því öll efnisatriði frétt- arinnar hafi verið rétt. Aðalat- riði fréttarinnar hafi komið fram, sem var að byssurnar voru seldar á almennum mark- aði. Stöð 2 flutti um síðustu helgi frétt þar sem sagt var að ein- staklingum hefðu verið seldar skammbyssur til að fjármagna kaup á nýjum byssum fyrir sér- sveit lögreglunnar. í fréttinni var ennfremur sagt að Stöð 2 hefði upplýsingar um að ein slík byssa væri í eigu manns sem ætti við geðræn vandamál að stríða. Jón Bjartmarz, yfirmaður sérsveitar lögreglunnar, sagði í samtali við HP að gömlum byssum hefði verið skipt út fyrir nýrri tegund hjá löglegum byssusala árið 1991, en það hefði mátt skilja á fréttinni að þeir hefðu selt byssur um borg og bý. „Það gilda strangar regl- ur um það hverjir mega kaupa byssur og við bárum öll kaup undir ráðuneytið. Fréttastofa Stöðvar 2 sagðist hafa ábyggi- legar heimildir fyrir því að ein af gömlu byssunum hefði kom- ist í eigu manns sem á við geð- ræn vandamál að stríða. Ég kannast ekki við það.“ Jón Bjartmarz segir að fréttastofa Stöðvar 2 hafi í upp- Átak gegn eHuriyfjim Þórarinn Tyrfíngsson, yfir- læknir á Vogi, er ekki sáttur við hversu lítið fjármagn Reykjavíkurborg og ríkið ætla að selja í átakið um eitur- lyfjalaust ísland árið 2002 „Mitt mat er að ef á að greina þá, sem eru í hættu á að verða vímuefnum að bráð, í grunn- skólum landsins verði það best gert ekki út frá óljósum hegðunarvanda sem fólk lend- Jr Uieldur út frá faglegu mati á einstaklingnum, sem enginn getur séð um nema heilsugæsl- an í landinu," segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. „Heilsugæslan hefur miklar upplýsingar nú þegar um hvert barn frá því það fæðist. Þess vegna get ég ekki séð annað en að þessi greining verði að koma í gegnum skólahjúkrun og almenna sálfræðiþjónustu, sem værj þá tengd heilsugæsl- unni. Þá værum við með fólk sem væri alvant að vinna úr svona vandamálum. Þarna væri fyrst og fremst hugsað um hagsmuni skjólstæðing- anna, meðal annars með nafn- leynd í huga. Ég get ekki séð hvernig , ætti að finna þessa áhættuhópa og sinna þeim öðruvísi en að heilsugæslan í landinu hafi frumkvæði að því og hún verði bókstaflega hluti af skólanum hvað þetta varð- ar. Annars hef ég sagt það áður að mér finnst allt of litlum pen- ingum varið í þetta verkefni. Mér finnst bókstaflega hlægi- legt þegar ríkið og stærsta sveitarfélag á íslandi taka sig saman og ætla að setja fimm milljónir á ári í þennan mála- flokk. Mér finnst að betur væri heima setið en af stað farið á svona máttvana hátt. Ef þeir hefðu talað um fimmtíu millj- ónir á ári væri þetta eitthvað sem er trúverðugt, segir Þórarinn. Verða nektardansstaðir bannaðir? - starfsemin til athugunar hjá rík- issaksóknara kannar nú hvort starfsemi nektardansstaða brjóti í bága við hegningarlög. Lögreglan í Reykjavík hefur beðið ríkissak- sóknara að kanna lögmæti slíkra staða, en vafi leikur á að starfsemi þeirra standist lög. Einkum verður mönnum tíð- rætt um hvort sýningar á þess- um stöðum séu ekki hreinlega klám. Ef ríkissaksóknari kæm- ist að þeirri niðurstöðu má bú- ast við að starfsemi nektar- dansstaða verði hætt. Slík ákvarðanataka er hins vegar eingöngu á valdi lögreglunnar, samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara. Jafn- framt hefur umræðan um meintar hliðargreinar á stöð- unum borist inn á Alþingi. Hvað leynist á bakvið? í 210. grein almennra hegn- ingarlaga er meðal annars ákvæði um að sá sem útbreiðir klám eða hefur slíkt til sýnis skuli sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að sex mánuð- um. Vangaveltur eru uppi um hvort starfsemi nektardans- staða fellur undir þessa laga- grein, en lögreglan í Reykjavík hefur haft vakandi auga með þessum stöðum. Jafnframt hef- ur hún hreinlega varað við því að kvillar, sem fylgja nektar- dansstöðum erlendis, kunni að spretta upp á stöðum sem bjóða upp á nektardans. Hér er einkum átt við vændi, sölu fíkniefna og ýmiss konar fjár- plógsstarfsemi sem tengist er- lendum glæpahringum. Lög- regluyfirvöld hafa ekki sannan- ir fyrir slíku en munu hafa safn- að saman upplýsingum um starfsemi staðanna. Aðilar sem þekkja vel til inn- an lögreglunnar segja meðal annars að þeir titlar sem dans- stúlkur hafi að yfirskini séu óralangt frá raunveruleikan- um. Fjölmargar séu ekki „nem- ar“ eða „fyrirsætur" eins og þær halda fram þegar þær eru spurðar opinberlega. Kanad- ískir dansarar hafa til að mynda oftar en ekki tengst starfsemi Vítisengla. Umtal um vændi berst inn á Alþingi í samtali við HP sagði Guðný Guðbjörnsdóttir, þingkona Kvennalista, að afstaða Kvennalistans til vændis væri á þann veg að líta mætti á það sem ofbeldi gagnvart konum. „Ef slík starfsemi viðgengst innan staðanna ætti að draga eigendur þeirra til ábyrgðar. Og það er umtalað að vissir að- ilar sem tengjast lögreglunni í Reykjavík reki þessa staði, en ég vil sem minnst fullyrða um það á þessu stigi,“ segir Guð- ný. Haraldur Böðvarsson, sonur Böðvars Bragasonar lögreglustjóra, hefur verið tengdur rekstri skemmtistað- arins Vegas. Guðný sagði að meint vændi á nektardansstöðum hefði bor- ist þingkonum Kvennaiistans til eyrna en benti jafnframt á að ekkert benti til að slíkt væri til staðar. „Því hefur verið haldið fram að þar sé iðkaður svokallaður „listdans" og ann- að hefur formlega ekki verið uppi á borðinu hingað til.“ » » i i hafi málsins sent tilkynningu til lögreglunnar um að hún vildi fá upplýsingar um byssu- viðskiptin í krafti nýju upplýs- ingalaganna. „Við sendum þeim upplýsingarnar samdæg- urs og fréttin var flutt þremur dögum síðar, þannig að frétta- stofan hafði fullkomnar upp- lýsingar um að viðskiptin hefðu átt sér stað árið 1991. Það kom fram í máli mínu við fréttamanninn, en sá hluti við- talsins birtist aldrei. Síðan var fréttin sett fram með þeim hætti að viðskiptin hefðu ný- lega átt sér stað. Ég óskaði síð- an eftir að koma fram athuga- semdum vegna fréttarinnar en ekki var orðið við þeim ósk- um.“ „Aðalatriði fréttarinnar er að 22 skammbyssur, sem notaðar voru af víkingasveit lögregl- unnar, komust á almennan markað. Ég sé því enga ástæðu til að koma á framfæri leiðrétt- ingu vegna þessa máls. Ég get þó verið sammála Jóni um að við hefðum mátt geta ársins sem byssurnar voru seldar — en það var ekki aðalatriði frétt- arinnar heldur það að þessar 22 skammbyssur fóru á al- mennan markað. Það kom því ekkert rangt fram í fréttinni," segir Páll Magnússon. » » » » » » » > » » > h

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.