Alþýðublaðið - 06.05.1971, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 06.05.1971, Blaðsíða 1
Rætt við Gunnar „Jafnaðarstefnan er sú eina stjórnmálastefna, sem getur fært fólkinu frelsi. Ég trói því, ég veit það og sem lista- maður ann ég frelsinu. I»ess vegna ear ég jafnaðarmaður." Sjá viðtal við Gunnar Eyj- ólfsson á bls. 6. a mölina Saksóknari fær hassskýrslur í tugatali □ Hvað gerir maður þegar maður er 55 ára, kvenmaðnr, án menntunar og þar að auki búsettur í sveit þar sem vinna er af skornum skammti? Tímarit danska alþýðusam- bandsins varpaði þessum spurningum fram og birti samtímis meðfylgjandi mynd — og svo svarið við spum- ingunum. Helga Pedersen réðst í vinnu hjá steypustöð í Lund við Ilöjslev, og þar með hefur fyrirtækið fjórar ,steypudöm- ur“ í þjónustu sinni. Þær luku fimm vikna nám- skeiði í Ringköbing áður en þær hófu vinnu á stöðinni. Þær vinna þar sömu störf og kallmennirnir og kváðu spjara sig vel. Það er helzt að hjólbörurn- ar vilja síga í þegar þær eru fullar af steypu, segir Helga, en það lagast eflaust. — Q 'Nú virðist vera að komast töluverð hreyfing á „hassherferð- ina“ svokölluðu, sem Alþýðublað- ið hefur sagt tölnvert frá á síö- ustu mánuðum. í gær voru boð- sendar fyrstu skýrslur frá fíkni- lyfjai-annsóknanefndinni til sak- sóknara og er þar um að ræða nokkra tugi af skýrslum að sögn Kristins Ólafssonar, fulltrúa lög- reglustjóra. Þá hefur sakadómur Reykjavíkur til meðferðar mál Pilts, sem uppvís varð að sölu og neyzlu LSD taflna, en að sögn Þórffar Björnssonar yfirsakadó,m- ara hefur dregizt að málið hafi verið tekið til dóms vegna þess, að erfitt hefur verið að hafa upp á nauðsynlegu vitni í málinu. Hjá bæjarfógetanum í Hafnarfirði hef ur verið í rannsókn mál 5 pilta. sem uppvisir cru að sölu og neyzlu LSD og hass. Hefur þegar verið birt ákaera á hendur þrem- ur piltanna. Eins cg Alþýðublaðið hefur sagt frá hefur lögreglan rætt við geysilegan fjölda manna og telur sá hópur að minnsta kosti rúm- lega 200 manns. Varðandi þær skýrslur, sem fíknilyfiadeildin hef ur sent saksóknara eða er í þann veginn að scnda sagði Kristinn Ólafsson, að bar með væri ekki sagt, að þetta væru allt saynan mál. Hér væri fyrst og fremst um athuganir að ræða, sem saksókn- araembættið tæki síffan afstöðu til. Þá sagði Kristinn einnig, að talað hefði veriff við miklu fleiri, en skýrslur hefff’u verið teknar af. „Skýrslurnar eru sendar út af meðferð á fíknilyfjum,“ sagði Kristinn, þegar hann var spurður um það hvort hér væri um að "æða söluaðila á fíknilyfjum eða neytendur. Kistinn sagði ennfremur, að ekki væri um neitt alvarlegt sölu tilfelli aff ræffa hjá þe‘,m aðilum, Framhald á bls. 15. VALTUR DOIUR □ Dollarinn virðist nú vera kom inn í nokkrti fallhættu, eða eftir að Vestur-þýzku bankamir heettu að taka á móti dollurum og hafa nú mörg önnur Evrópulönd gcrt hið sama. Aðdragandinn virðist vera sá, að spákaupme.nn hafa nú að und anförrtu keppzt við að koma doll urura sínuin yfír í þýzk mðrk og er tilgangurinn sá, að dollarinn falli í gengi og niiarkið hækki þá um leið, en það gæti þýtt mikla ringulreið í fjánnálum heímsins og jafnvel kreppu. Seðlabanki íslands, sendi í gær frá sér fréttatilkynningu um að opinber gengisskráning V.-þýzka marksins hafi verið hætt um sturdarsakir, og nú i dag felldi bankinn einnig niður skríningu belgíska og svissneskra 'ranka, austurrískra sillinga, ítalskra líra Frarnh. á bls. 12. 32 gjald- þrotamál □ Samkvæmt nýútkomnu Lögbirtingablaði lauk skipta- ráðandinn í Reykjavík um s.I. ára,mót skiptaineffferð á 32 þrotabúum. Tuttugu og sjö af þessum þrotabúum reyndust eignalaus en í þremuir tilfellum voru kröfur á henðtir viðkomandi þrotabúi afturkallað'ar. ——g——B3B: —BH OG SVIAR SKELLA DYRUM HELDUR HARKALEGA □ Flugfélagið Þór h.f. er orðið landflótta með báðar Vanguard- vélamar, sem félgaið keypti ný- lega og ætlaði að reka þannig að fljúga út með fisk og heim með ! allskonar varning. Þess er | skemmst að minnast, að sambæri legt flugfélag, Fragtflug h.f. flutt ist burt með starfsemi sína, en það starfar nú í Belgíu. Aðalástæðan fyrir flótta þess- ara beggja félaga mun vera sú, að miklir erfiðleikar voru að fá fisk hér heima til þess að flytja lít, Og svo þurftu innlendir við- I skiptavinir félaganna að greiða ! um 50% hærri tolla af öllum vörum, sem fluttar voru með Þór og Fragtflug, lieldur en cf þær komu með vélum hinna flugfé- laganna. Báðar vélar Þórs h.f. fóru héð- an fyrir stuttu og höfðu meðferð is allan Varahlutalagerinn og fluttu hann til Englands, en fyrst um sinn verður séð um viðhald vélanna þar. WKL Félagið hefur nú þegar komizt að allgóðum samningum um flutning á ávöxtum innan Ev- rópu, er þar aðallega um jarðar l>er að ræð'a, sem flutt eru frá Ítalíu norður á bóginn, t.d. til Þýzkalands og Englands. Félaginu hefur allstaðar geng- ið vel að fá fyrirgreiðslu og lend ingaileyfi og var nýbúið að undir rita stóran samning um flutn- inga til Svíþjóðar sem hefur mikið 'efnahagslegt gildi fyrié félagið. En í gærdag barst síðan skeyti frá sænsku flugmálastofn- uninni þar sem flugvélum ís- lenzka félagsins var með öllu ncitað um lendingarleyfi í Sví- Þjóð. „Við urðnm þrumu lostnir, þegar við fengum þetta skeyti fyrir hálftíma síðan“, sagði Jón Jakobsson hjá Þór í viðtali við blaðið í gær. „Svíar leyfa öðr- um þjóðum að halda uppi þess- um sömu flutningum, og varla eni þeír með þessu móti að vernda sín eigin flugfélög, því að ekkert sænskt félag stundar svona flutninga. Þetta er okkur með öllu óskiljanlegt“. Jón sagði að þetta værl einn stærsti samningurinn sem þeir hefðu gert til þessa, og það værl vissulega mikið áfall fyrir félag- Framh. á bls. 4 s wm™

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.