Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1971, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1971, Blaðsíða 1
 Tómas Guðmundsson, skáld varð sjötugur 6. janúar s.l. Lesbókin minnist þessara tímamóta í lífi skáldsins með því að birta eitt af hinum ástsælu ljóðum hans. í»etta Ijóð rúmar þrennt, sem er Tómasi hugstætt: Borgina, vorið í ríki náttúrunnar og síðast en ekki sízt hverfulleikann og söknuð yfir því liðna. Tómas Guðmundsson VIÐ VATNSMÝRINA Ástfanginn blær í grænum garði svæfir grösin, sem hljóðlát biðu sólarlagsins. En niðri í mýri Jitla lóan æfir lögin sín undir konsert morgundagsins. Og úti fyrir hvíla höf og grandar, og hljóðar öldur smáum bárum rugga. Sem barn í djúpum blundi jörðin andar, og borgin sefur rótt við opna glugga. Og þögnin, þögnin hvíslar hálfum orðum. — Hugurinn minnist söngs, sem löngu er dáinn. Ó, sál mín, sál mín! Svona komu forðum sumurin öll, sem horfin eru í bláinn. — Ó blóm, sem deyið! Björtu vökunætur, sem bráðum hverfið inn í vetrarskuggann! Hvers er að bíða? Hægt ég rís á fætur, og hljóður dreg ég tjöldin fyrir gluggann. ■> k

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.