Alþýðublaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.07.1986, Blaðsíða 1
Númeraástríða og umdœmaskipti: 29.785 bílar umskráðir ’85 Menn þurfa að losna við þessa kvöð, segir Heiðar Viggósson hjá Bifreiðaeftirlitinu Föstudagur 11. júlí 1986 130. tbl. 67 árg. „Það hljóta allir að sjá óhagræö- inguna við það að verða að skipta um númer á bílum þegar skipt er um eigendur. Það væri gífurlegur vinnusparnaður fyrir fólk að losna við þessa kvöð,“ sagði Heiðar Viggósson skrifstofustjóri hjá Bif- reiðaeftirliti ríkisins í samtali við Alþýðublaðið í gær. En á síðasta ári voru umskráningar vegna flutnings milli umdæma eða númeraástríðu 29.758 talsins. Eigendaskipti voru 40.103. Það hefur lengi verið bent á hag- Byggðastofnun áfram í Reykjavík: Tregðu- lögmál segir Gísli Bragi Hjartar- son á Akureyri Haustkosningar? Stjórnarsamstarfið brostið, ræði fastnúmera kerfis en ekki ver- ið enn látið til skarar skríða. Bif- reiðaeftirlitið hefur reyndar notað það við sína tölvuskráningu um áraraðir; Ný umferðalög gera eins ráð fyrir því að hægt verði að taka það upp. Eru lögin nú til meðferðar allsherjarnefndar Alþingis. Gert er ráð fyrir því að með tilkomu þess þurfi ekki að færa bíl til skoðunar þótt flutt sé milli umdæma. Gamla kerfið gerir reyndar heldur ekki kröfu til þess að bíll sé skoðaður við eigendaskipti innan umdæmis, nema þegar um númeraskipti er að ræða. Skráning vegna eigendaskipta kostar nú 1.000 kr. og umskráning milli umdæma 1.000 kr. Umskrán- ing innan umdæmis kostar hins vegar 3.000 kr. og ný númeraspjöld kosta nú 600 kr. Heiðar sagði að álagið vegna um- Framh. á bls. 2 50 ár síðan Hitler reiddist Jesse Owens Nú eru liðin 50 ár síðan einn frœgasti spretthlaupari heims, Jesse Owens vann einhvern mesta íþróttasigur sögunn- ar á olympíuleikunum íBerlín. Hann hlaut fern gullverðlaun; hljóp m. a. 100 metrarana á 10,3 sekúndum og stökk 8,06 metra í langstökki. Þessi sigur Owens var ekki síður sögulegur fyrir þœr sakir, að Hitler heitinn reiddist hon- um ákaflega; taldi að óœðri kynstofn hefði sett svartan blett á hinn hreina aríska kynstofn. — En nú hafa Þjóð- verjar snúið við blaðinu. Þessara tímamóta er nú minnst á veglegan hátt í Vestur—Þýzkalandi. Efnt hefur verið til mikillar sýningar í íþróttahöllinni við Jesse Owensstrœti í Vestur—Berlín og er það vel við hœfi. alþyðu liRT'jT'M en límið í stólunum sterkt segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins „Við erum vægast sagt óhressir með þetta,“ sagði Gísli Bragi Hjart- arson bæjarfulltrúi Alþýöulflokks á Akureyri í samtali við ALþýðu- blaðið í gær, spurður um þá ákvörðun stjórnar Byggðastofnun- ar að ennþá skuli stofnunin vera staðsett í Reykjavík. En á stjórnar- fundi í gær var tilllaga Geirs Gunn- arssonar um flutning til Akureyrar felld. En hann og Halldór Blöndal voru þeir einu sem greiddu atkvæði með tillögunni. „Það á ekki að vera neitt sjálfgef- ið að allar ríkisstofnanir séu í Reykjavíkþ sagði Gísli Bragi, „þetta virðist vera eitthvað tregðu- lögmál. — Kerfið er svo þungt í vöf- um, og ég held það séu ekki síst em- bættismennirnir sem standa í vegin- Framh. á bls. 2 „Ólafur Ragnar var að vitna í Harold Wilson á dögunum, og sagði að ýmislegt gæti breyst í póli- tík á stuttum tíma. Ég er búin að vera í burtu í þrjár vikur, en sé ekki að nokkuö hafi breyst,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í samtali við Alþýðublaðið í gær þegar hann var spurður um umræðu siðustu vikna um haustkosningar og þá mynd sem pólitíkin hcfur tekið á sig síðustu daga. „Það er meirihlutaskoðun í Framsókn að hún muni tapa í næstu kosningum og það er náttúr- lega bara eðlislæg viðleitni þeirra að vilja vinna sér tíma. — Það er rétt sem Sighvatur hefur bent á að það er þegar fyrirséð fallbarátta framundan og hver er sjálfum sér næstur, segir máltækið. Allur þorri sjálfstæðismanna skilur hinsvegar þau rök sem eru fyrir þingkosningum. En þó þeir skilji þau, eru þeir í þeirri klemmu að sjá sér ekki útgönguleið. Þeir hætta ekki á stjórnarslit nema finna einhvern ágreining. — Fjárlög eru í kaldakoli og sá sem er ábyrgur er auðvitað formaðurinn. Hann verð- ur að finna eitthvað annað tilefni, annars hýðir Framsókn hann fyrir dugleysi. — Það er rétt sem Höllu- staða-Páll hefur bent á, að það hljóta að vera nokkurs konar tafl- lok framundan. Forysta flokksins getur í raun ekki tekið ákvörðun. — Bíðum til haustsins segir Mogginn. Umræðan sýnir hins vegar að stjórnarsamstarfið er brostið|‘ segir Jón Baldvin „en límið í stólunum er sterktí1 Um þreifingar í öðrum flokkum varðandi haustkosningar, segir Jón að lítið hafi heyrst frá smáflokkun- um Kvennalista og Bandalagi jafn- aðarmanna, „en þeir þingmenn sem þar eru ennþá eftir eru eflaust ánægðir meðan þeir hafa ennþá að- stöðu til bréfaskrifta. — Þeir gætu nefnilega orðið færri eftir kosning- arþ bætti hann við. „Alþýðuöandalagið getur vart verið í stakk búið að ganga til kosn- inga, þvi síður mynda stjórn að þeim afloknum. — Það veit raun- verulega enginn hver forysta flokksins er: Er það verkalýðs- armurinn með Ásmund í broddi Framh. á bls. 3 Upphafning tilgangsleysis í íslenskum tímaritum Tímaritaútgáfa á íslandi er með ólíkindum mikil. Kaupenda- hópurinn virðist stór og auglýs- ingamarkaðurinn stærri en flesta grunaði. Að vísu hafa tímarit lifn- að og dáið, án þess að það hafi vakið verulega athygli. Ugglaust eiga einhver þeirra í fjárhagserfið- leikum, en engu að síður er fjöld- inn mikill. Kaup íslendinga á dönskum og norskum vikublöðum eru heims- fræg. Þar hefur þjóðin lesið um kóngafólk og ástir aðalsins, lífs- reynslusögur af öllu tagi, um tísk- una, stjörnuspár og ráðleggingar lækna. Vera kann að íslensku tímaritin séu að taka við þessu hlutverki er- lendu blaðanna og að eitthvað lát kunni að vera á sölu skandina- vískra fjölskyldublaða. Ekki væri lakara ef sú breyting væri að verða. Þá lesa íslendingar um kóngafólk og tísku á islensku og spara um leið dýrmætan gjald- eyri. Ekki er allt efni þessara ís- lensku tímarita verulega dýr- mætt. Þau eru vissulega mismun- andi, en froðusnakkið er áber- andi. Mikil áhersla er nú lögð á viðtöl við menn, „ sem hafa eitt- hvað að segja“, kveða fast að orði og eru yfirlýsingaglaðir. Slík við- töl hafa verulegt auglýsingagildi fyrir tímaritin, samanber viðtal við Gissur Skarphéðinsson í síð- asta hefti Heimsmyndar. Oftar en ekki er efnið yfir- borðskennt og byggir á viðtölum við og frásögnum fólks í popp- og tískuheimi. Oft verður áberandi hve áreynslan verður mikil við að draga upp glæsimyndir af að- stæðum einstaklinga og fjöl- skyldna og búa til súper-menn. Draumurinn um endalausa hamingju og fagra veröld kónga og drottninga i eiginlegri og óeig- inlegri merkingu virðist enn eiga verulega upp á paliborðið hjá stórum hópi þjóðarinnar. Mörg tímaritanna reyna að skerpa þessa glæsimynd og beita erlendum for- múlum til þess. Hinn harði veru- leiki er oftar en ekki víðs fjarri. Við þessu er auðvitað ekkert að segja. Útgáfan stjórnast af eftir- spurninni. Markaður draumsins er stór. Þessi tímarit, með undan- tekningum þó, draga upp ósanna mynd af þeim heimi, sem við bú- um í. Við minnumst þess ekki að hafa séð viðtöl við fólk, sem hefur þrælað í undirstöðuatvinnugrein- unum svo árum og áratugum skiptir og klæðist vinnugalla verulegan hluta sólarhringsins. Svo ekki sé minnst á venjulegar al- þýðufjölskyldur, sem hafa fært þjóðarbúinu ómæld verðmæti í vinnu og uppeldi barna, og búa í fjögurra herbergja íbúð í ein- hverju svefnhverfi borgarinnar. í augum stjórnenda tímarit- anna er þetta ekki „spennandi" fólk. Við minnumst þess ekki að hafa séð málefni aldraðra krufin til mergjar í fræðilegri umfjöllun, eða raunasögur skuldugra hús- byggjenda. — Glansmyndin skal blíva og um leið upphafning til- gangsleysisins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.