Alþýðublaðið - 08.07.1988, Blaðsíða 1
Jón Baldvin Hannibalsson
90 MILUÓNIR
i NfflURGRflÐSLURNAR
Ekki 160 milljónir. Kjarni málsins að unnið er að heildarendurskoðun á landbúnaðarkerfinu.
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra segir að
samþykkt rikisstjórnarinnar
varðandi niðurgreiðslur feli í
sér að tekjuauki ríkissjoðs af
söluskatti, vegna hækkunar á
landbúnaðarverði 1. júní,
renni til niðurgreiðslna að
upphæð um 90 milljónir
króna, en ekki 160 milljónir,
eins og haldið hefur verið
fram. Jón Baidvin segir
kjarna málsins að landbúnað-
arkerfið er til heildarendur-
skoðunar. Sérstök nefnd
stjórnarflokkanna vinnur að
tillögum, sem miða að rót-
tækum breytingum, i þá átt
að nýta betur það fé sem
rennur til landbúnaðarmál-
anna. Talið er að nefndin Ijúki
störfum á næstu vikum.
„Það eina sem ríkisstjórnin
samþykkti í lok júni var að
tekjuauki ríkissjóös af sölu-
skatti, vegna hækkunnar á
landbúnaðarverði 1. júní,
skyldi fara til aukinna niður-
greiðslna að þessu sinni. Að
öðru leyti er þess einfaldlega
beðið að nefndin sem vinnur
að endurskoðun í landbúnað-
armálum komi með tillögur
sínar,“ sagöi Jón Baldvin við
Alþýðublaðið í gær.
Meðal helstu atriða í þeirri
endurskoðun er að hætta að
verðbæta innan verðlagsárs-
ins þær afurðir sem þegar
hafa verió staögreiddar af
afurðastöóvum. Breyta stjórn
Framleiönisjóös og skoöa
möguleika á að minnka þátt
útflutningsbóta. Færa vaxta-
og geymslukostnað inn í
verðlagsgrundvöll, í stað
þess að hækka niðurgreiðsl-
ur sjálfkrafa. Endurskoða
jarðræktar- og búfjárræktar-
styrki, þannig að komið verði
í veg fyrir sjálfvirka bakreikn-
inga. Leita leiða til að draga
úr millifærslum og öðrum út-
gjöldum til þjónustustofnana
landbúnaðarins á sama tíma
og bændur taka á sig i vax-
andi mæli auknar byrðar
vegna minnkandi framleiöslu.
Þá koma til álita, að sögn
Jóns Baldvins, langvarandi
kerfisbreytingar, t.d. að auka
áherslu á svæðaskipulag í
landbúnaði. Ennfremur
tryggja að fjárveitingar til að
græða örfoka land og stöðva
gróðureyðingu komi að full-
um notum, en veröi ekki étn-
ar upp jafnóðum.
Um markmið endurskoóun-
arinnar er nánar fjallaö í
fréttaskýringu á síðu 5.
Ríkisstjórnin hefur styrkt undirstöður velferðanikisins. Hún á
líka að endurskoða útgjöld ríkissjóðs til að vinna gegn verðbólgu.
Hún á t.d. að taka heilbrigiskerfið í gegn. Eru læknar ofdekruð
tœkjadellustétt? Hún á að krefjast þess að staðið sé við fjárlög svo
flugstöðva- og riðukjötsreikningamönnum detti ekki einu sinni í
hug að banka upp á í fjármálaráðuneytinu. Hún á að tefla bið-
skákina um byggðastefnu og uppstokkun atvinnulífs, svo hœgt sé
að byggja upp til framtíðar, segir m.a. í leiðaranum í dag.
Verðbólgan tæp 50%
Verðhækkanir siðustu 4ra
mánaöa benda til þess að
verðbólga sé tæp 50%. Þetta
kemur fram í itarlegri verð-
könnun Alþýðublaðsins, sem
birtist í blaðinu á morgun.
Kannað var verð í tveimur
stórmörkuðum i Reykjavík og
tveimur verslunum á Suöur-
landi. Notast var við „vísitölu-
pakka“ blaðsins en í horíum
eru 47 vörutegundir. Hefur
verð á pakkanum hækkað um
14% aö meðaltali síðan i
marsbyrjun, er verð var kann-
að. Það mælir 48% verð-
hækkanir miðað við heilt ár.