Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
Sýnd kl. 5.50.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
SG. DVÓ.H.T Rás2
GH
KVIKMYNDIR.COM
SG. DV
KVIKMYNDIR.IS
GULL MOLAR
NÓI ALBINÓI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
Sýnd kl. 6.
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
YFIR 34.000 GESTIR!
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
Skonrokk FM 90.9
MBL
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð
myndina sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11.15. B.i. 12 ára.
Frumsýning
Ofurskutlan
Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri
en nokkru sinni
fyrr í svakalegustu
hasarmynd
sumarsins!
Sýnd kl. 4. Með íslensku tali
SV MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10.30. B.i.10 ára.
Sýnd með
íslensku tali
ÁLFABAKKI
Kl. 1.40 og 3.50.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
AKUREYRI
Kl. 2, 4 og 6.
KEFLAVÍK
Kl. 2 og 4.
YFIR 34.000 GESTIR!
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
98% aðspurðra í USA sem
höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
98% aðspurðra í USA sem
höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Ofurskutlan
Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri
en nokkru sinni
fyrr í svakalegustu
hasarmynd
sumarsins!
Skonrokk FM 90.9
PILTARNIR í Kimono hafalokið upptökum á nýrrihljómplötu sem væntanleger í verslanir eftir um hálf-
an mánuð. Platan hefur hlotið nafnið
Mineur Aggressif og ekki úr vegi að
spyrja Alex Macneil, söngvara og
textasmið hljómsveitarinnar, hvað í
ósköpunum þetta nafn stendur fyrir.
„Ja, opinberlega er þettta nokkurs
konar orðablanda sem er tegund-
arheiti þeirrar tónlistar sem við spil-
um,“ segir hinn kanadíski Alex þýð-
um rómi. „Þetta er nafn sem ég hef
verið að hripa niður í minnisbækur
mínar í langan tíma. Ég kann vel við
hvernig það hljómar og það skil-
greinir tónlistina okkar nokkurn
veginn. Moll-hljómarnir okkar eru
nokkuð hnuggnir – og þetta er eig-
inlega allt meira eða minna í moll,“
bætir hann við og hlær.
Lagskipt lagasmíð
Auk Alex er hljómsveitin skipuð
þeim Kjartani Braga Bjarnasyni á
trommur, Halldóri Erni Ragn-
arssyni á bassa og Gylfa Blöndal á
gítar.
Mineur Aggressif er fyrsta op-
inbera útgáfa Kimono og gefin út af
Smekkleysu. Bandið á rætur sínar
að rekja til ársins 2001 þegar los
komst á bandið Kaktus. Helmingur
Kaltus-lima myndaði hljómsveitina
Hudson Wayne, en úr hinum helm-
ingnum varð til Kimono og Alex
bættist við sveitina um svipað leyti.
„Ég hafði fram að þeim tíma mest
dvalið heima við og spilað síð-rokk,“
segir Alex. „Við notuðum eitthvað af
þeim upptökum og sömdum nokkur
ný lög.“ Þótt Alex eigi heiðurinn af
textunum eru lögin öll með tölu þró-
uð í náinni samvinnu hljómsveit-
armeðlima: „Hvert lag má segja að
fari í gegnum þrefalt ferli. Á fyrsta
degi mætir hver og einn með nokkur
stef, kannski fimm eða sex tilbrigði
við einhverja laglínu. Við spilum
stefin eitt af öðru hver fyrir annan.
Stundum tökum við hugmyndirnar
upp, og aðrir taka þá upp yfir þær og
þannig losna lögin úr læðingi. Við
fínpússum hugmyndina að hverju
lagi meir og meir og endurtökum
ferlið, svo þegar upp er staðið kemur
lagið frá öllum meðlimum frekar en
einhverjum einum. Við gerum þetta
aftur og aftur þangað til allir eru
sáttir við niðurstöðuna.“
Alex segist mjög hrifinn af þessu
fyrirkomulagi: „Ég var í hljómsveit
þar sem ég samdi alla tónlistina og
mér þótti það ekkert afskaplega
gaman. Með þessu móti leggja allir
eitthvað til með laginu.“
Á nýju plötunni eru tíu lög, þar af
voru öll nema tvö fullmeitluð þegar
hafist var handa við upptökur:
„Þetta voru lög sem við höfðum ver-
ið að spila í átta mánuði eða meira og
við vorum komnir á það stig að við
hefðum nokkurn veginn getað tekið
þau upp blindandi.“
Nýr trommuleikari
Eftir útgáfu plötunnar urðu
nokkrar mannabreytingar hjá Kim-
ono. Þráinn Óskarsson trommuleik-
ari kvaddi hljómsveitina og Kjartan
Bragi kom í staðinn. Segir Alex
brotthvarf Þráins hafa stafað af því
að hann vildi einbeita sér að Hudson
Wayne en hann er aðallagahöfundur
þess afsprengis Kaktusar, sem fyrr
var getið.
Mineur Agressif verður til að
byrja með aðeins gefin út á Íslandi.
„Við höfum verið að tala við nokkur
útgáfufyrirtæki í Evrópu en erum
ekki enn farnir að líta til Bandaríkj-
anna,“ segir Alex. Hann segir því
enga heimsreisu komna á teikni-
borðið enn: „Kannski förum við til
Þýskalands. Svo virðist líka sem
mörg íslensk bönd hafi farið til Jap-
ans, og myndi kannski þykja við
hæfi að senda band sem heitir Ki-
Hljómsveitin Kimono gefur út Mineur Aggressif hjá Smekkleysu
Áhugaverðari
en sokkar
Fyrsta hljómplata Kimono er um þessar mundir í prentun.
Ásgeir Ingvarsson ræddi við Alex Macneil, aðalsöngvara
hljómsveitarinnar, um væntanlega plötu, sögu hljómsveit-
arinnar og forboðna bókstafi.
Grennri
BOGENSE TAFLAN
Örugg hjálp í baráttunni við aukakílóin