Morgunblaðið - 22.03.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.03.2004, Blaðsíða 1
2004  MÁNUDAGUR 22. MARS BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A FIMLEIKAVEISLA Í LAUGARDALSHÖLLINNI / B2,B3 HELENA Sverrisdóttir, leik- maður körfuknattleiksliðs Hauka, gerði sér lítið fyrir og skoraði 86 stig í leik gegn Ár- manni/Þrótti á Íslandsmótinu í 2. deild sl. fimmtudag. Haukar skoruðu 115 stig í leiknum gegn 35. Helena skoraði því tæplega ¾ stiga Haukaliðsins sem mun leika í efstu deild á næstu leiktíð. Þess má geta að Helena er aðeins 16 ára gömul en hún náði þrefaldri tvennu í leikn- um þar sem hún tók 22 fráköst, stal knettinum 14 sinnum af mótherjum sínum og gaf 8 stoðsend- ingar. Helena skoraði 86 stig í stórsigri Haukaliðsins RAGNAR Óskarsson og félagar hans í franska liðinu Dunkerque tryggðu sér sæti í úrslitum í Áskor- endakeppni Evrópu í handknattleik á laugardagskvöldið. Dunkerque tapaði reyndar á heimavelli fyrir rúmenska liðinu Constansa, 27:25, í síðari undanúrslitaleik félaganna en það kom ekki að sök þar sem Frakkarnir höfðu betur í Rúmeníu með sex marka mun, 24:18, og unnu því einvígið samanlagt, 49:45. Ragnar skoraði þrjú mörk í leikn- um en hann yfirgefur Dunkerque í sumar og gengur í raðir danska liðsins Skjern. Andstæðingur Dunkerque í úr- slitunum verður Skövde frá Svíþjóð sem burstaði Trieste frá Ítalíu í gær með tíu marka mun, 37:27.  Guðjón Valur Sigurðsson skor- aði sex mörk fyrir Essen sem tapaði fyrir spænska liðinu Portland San Antonio, 38:32, í síðari undan- úrslitaleik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa. Essen féll þar með úr leik en liðið hafði betur í fyrri leikn- um með tveggja marka mun og tap- aði því einvíginu samanlagt 63:59. Spánverjarnir lögðu grunninn að sigri sínum í fyrri hálfleik en þeir höfðu 19:11 yfir í leikhléi og þann mun náði Essen ekki að brúa. Tvö spænsk lið leika til úrslita því Vall- adolid hafði betur gegn Gorenje frá Slóveníu samanlagt, 64:58. Fyrstu mínútur fyrsta leikhlutavoru Íslendingarnir sprækir en Mexíkóar sóttu í sig veðrið, náðu flestum völdum á vellinum og skoruðu 1:0 á 8. mínútu. Ís- lensku drengjunum var brugðið, gerðust frekar tauga- óstyrkir, spiluðu ekki vel og tókst illa upp þegar þeir voru að komast í færi. Jónas Breki Magnússon jafnaði þó á 19. mínútu fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta voru taugarnar þandar um of og Mexíkóar mun öruggari í sínum aðgerðum, en Gunnlaugur Björns- son, markvörður Íslands, stóð fyrir sínu. Á 7. mínútu þriðja leikhluta komst Mexíkó aftur yfir en það var ekki fyrr en líða tók að leikslokum að Íslendingarnir tóku sig á og Jón B. Gíslason jafnaði á 16. mínútu. „Ég sá strax að okkar menn spiluðu ekki eins og þeir gera best,“ sagði Peter Bolin, landsliðsþjálfari Íslands, eftir leikinn. „Þeir voru taugaóstyrkir og gerðu mistök, meira en í hinum leikj- unum, en náðu sér á strik í lokin. Þetta var skemmtilegur leikur og Mexíkóar börðust vel, eins og við reyndar. Þetta var tæpt og ég hefði viljað hafa þetta mun öruggara, en við unnum og Ísland á að vera í næstu deild fyrir ofan.“ Jónas Breki Magnússon fékk verðlaun fyrir að fá flest stig sem eru fyrir mörk og stoð- sendingar á mótinu auk þess að vera valinn mikilvægasti leikmaðurinn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslenski landsliðsmaðurinn Rúnar Rúnarsson stóð í ströngu á ísnum í gær gegn Mexíkó. Gull og íshokkí- landsliðið fer upp ÞRÁTT fyrir að sýna aldrei sparihliðarnar fyrir fullu húsi tókst ís- lenska íshokkílandsliðinu að ná 2:2 jafntefli gegn Mexíkó og hirða þar með gullið í lokaleik 3. deildar heimsmeistaramótsins sem lauk í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöldi. Fyrir leikinn var ljóst að Ís- land væri búið að tryggja sér að komast upp í aðra deild vegna inn- byrðis viðureignar við Tyrki en íslensku drengina langaði í gull. YURI Zak frá Sankti- Pétursborg í Rússlandi kom sér hjá því að svara hvort hann héldi með Tyrklandi eða Ís- landi þegar þjóðirnar mættust á heimsmeist- aramótinu í Skautahöll- inni í síðustu viku – Oleg sonur hans þjálfar tyrkneska liðið og Ser- gei, hinn sonur hans, er aðstoðarþjálfari ís- lenska liðsins. „Svona er íshokkíheimurinn, maður spilar með einu liði í dag og öðru á morgun,“ sagði Sergei sem fluttist til Íslands fyrir fjórum árum. Hann þjálfar Björninn og spilar einnig með liðinu. Honum líkar vel við land og þjóð og hef- ur gaman af því að stuðla að uppbyggingu íshokkís. „Íslendingum hefur farið mikið fram undanfarin ár, þeir æfa mikið og sjálfstraustið hefur aukist enda skil- ar hver æfing sínu.“ Rúss- neskir bræður berjast á Íslandi Ragnar fer í úrslitarimmu Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.