Morgunblaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 1
2004  ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A NÆR REAL MADRID SÉR Á STRIK Í MEISTARADEILD EVRÓPU? / B2 CAMERON Echols hefur óskað eftir því að verða leystur undan samningi sínum við úrvalsdeildarlið KR í körfuknattleik en Bandaríkjamaðurinn bar fyrir sig heimþrá og óánægju með dvöl sína í Reykjavík. Þetta er annar Banda- ríkjamaðurinn sem staldr- ar stutt við í herbúðum KR en Curtis King bað einnig um að verða leyst- ur undan samningi sínum við félagið. Damon Garris er enn í herbúðum liðsins en hann hefur leikið með liðinu frá því á undirbúnings- tímabilinu. Í fréttatilkynningu frá stjórn körfuknattleiks- deildarinnar segir að þetta sé í fyrsta sinn sem leikmenn óski eftir því að verða leystir undan samn- ingi sínum en leit að nýj- um leikmanni hefst á allra næstu dögum. Echols far- inn frá KR AGANEFND þýska knatt- spyrnusambandsins hefur úrskurðað Oliver Neu- ville, leikmann Borussia Monchengladbach, í tveggja leikja bann eftir að hann viðurkenndi að hafa skorað mark með handleggnum gegn Kais- erslautern á sunnudag- inn. Þýski landsliðsmað- urinn sagði í sjónvarpsviðtali eftir leik- inn að hann hafi ekki ætl- að að skora mark með hendinni en dómarinn, Uwe Kemmling, hafi ekki séð hvað gerðist og markið hafi því verið dæmt gilt. Forsvarsmenn liðsins ætla ekki að áfrýja bann- inu en telja að aðgerðir knattspyrnusambandsins séu harðar og vísa til þess að leikmenn geti sagt ýmislegt misjafnt um aðra leikmenn í sjón- varpsviðtölum án þess að fá keppnisbann í kjölfar- ið. Neuville skoraði og fékk tveggja leikja bann EINAR Logi Friðjónsson, handknatt- leiksmaður, sem gekk til liðs við þýska 2. deildarliðið Friesenheim í sumar frá KA, hefur staðið sig vel það sem af er keppn- istímabilinu, en Friesen- heim leikur í suðurhluta 2. deildar. Það er nú um miðja deild með sjö stig eftir sex leiki. Einar Logi skoraði fjögur mörk á sunnudaginn þegar Friesenheim vann Hüttenberg, 27:25, á heimavelli. Í dagblaðinu Die Rheinpfalz í síðustu viku er stutt grein um Einar Loga og hon- um hælt á hvert reipi fyrir fram- göngu sína það sem af er leiktíðar. Sagt er að hann hafi verið einn fárra leikmanna liðsins sem hafi staðið sig vel þegar Friesenheim tapaði á heimavelli fyrir Kronau/ Östringen um miðja síðustu viku, 32:24. Þá skoraði Einar Logi þrjú mörk, en þess má geta að Gunnar Berg Viktorsson og Guðmundur Hrafnkelsson leika með Kronau/ Östringen sem er í 2. sæti deild- arinnar. Einar Logi fær hrós Einar Logi Viggó hyggst sjá fimm leiki í ferðsinni. Hann byrjar á leik Wallau Massenheim og Düsseldorf föstudag- inn 5. nóvember en með þessum liðum leika Einar Örn Jónsson, Markús Máni Michaelsson og Alexander Pet- ersson. Daginn eftir sér hann leik- Wetzlar og Minden en með þeim liðum eru Róbert Sighvatsson og Patrekur Jóhannesson og sunndaginn 7. nóvem- ber ætlar Viggó að fylgjast með leik Grosswallstadt og Göppingen en með liði Grosswallstadt leika Snorri Steinn Guðjónsson og Einar Hólmgeirsson. Í vikunni þar á eftir sér Viggó Loga Cup og sagði Viggó að engin breyting hefði orðið á þeirri ákvörðun Ólafs. „Hann verður ekki með okkur í Sví- þjóð en ég bjartsýnn á að hann verði klár í slaginn með okkur á HM í Tún- is,“ sagði Viggó. Sigfús á góðum batavegi Viggó sagðist hafa rætt við Sigfús Sigurðsson og er hann á góðum bata- vegi en Sigfús var skorinn upp í baki vegna brjóskloss um miðjan septem- ber. „Það hefur verið góður bati hjá Sigfúsi og hann er að vonast til að geta verið með í leiknum á móti Flensburg 10. nóvember. Hann ætlar ekki að ana að neinu og hvað landsliðið varðar ætl- ar hann bara að bíða og sjá til hvernig honum reiðir af,“ sagði Viggó. Geirsson í eldlínunni með Lemgo á móti Pfullingen og þá ætlar hann að sjá leik Magdeburgar og meistara Flensburg en með liði Magdeburg leika Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason. „Ég fæ þarna gott tækifæri til að skoða íslensku leikmennina og í kjöl- farið eða 11. nóvember mun ég velja 16 manna landsliðshóp sem leikur á World Cup í Svíþjóð,“ sagði Viggó við Morgunblaðið. Ólafur Stefánsson sagði í viðtali við Morgunblaðið á dögunum að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér á World Morgunblaðið/Golli Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari mun sjá Snorra Stein Guðjónsson í leik með Grosswallstadt. Viggó til Þýskalands VIGGÓ Sigurðsson, nýráðinn þjálfari íslenska landsliðsins í handknatt- leik, fer út til Þýskalands í byrjun nóvember og ætlar að fylgast með Ís- lendingunum sem þar leika. Viggó Sigurðsson „JÚ, það er rétt, ég er búinn að gera starfs- lokasamning við West Bromwich Albion og stefnan er að flytja heim eftir jólin,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson í samtali við Morg- unblaði í gærkvöldi. Lárus Orri hefur leikið í Englandi síðan hann fór frá Þór til Stoke árið 1994 og er því á sínu tíunda keppnistímabili þar í landi. Hann lék fimm fyrstu tímabilin með Stoke en var síðan keyptur til WBA haustið 1999 og hefur leikið þar síðan, alls hefur hann leikið 311 leiki með þessum tveimur félögum, 200 með Stoke og 111 með WBA. Lárus Orri, sem er 31 árs, hefur verið meiddur það sem af er þessu tímabili, meidd- ist illa á hné líkt og í fyrra. „Ég samdi við WBA fyrir helgina og nú verð ég bara í hvíld næstu mánuði og tek það rólega í stað þess að reyna að keyra mig í gang sem fyrst. Ég ætla að ná mér góðum af þessum meiðslum í róleg- heitunum og veða klár næsta vor,“ sagði landsliðsmaðurinn í gærkvöldi. Lárus Orri á leiðinni heim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.