Tíminn - 28.06.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.06.1977, Blaðsíða 1
r < GISTING MORGUNVERÐUR SÍMI 2 88 66 - Slðngur — Barkar — Tengi' aiSEniOTi3i SMIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-60Q 135. tölublað—Þriðjudagur 28. júni 1977—61. árgangur Kisiliðjan: Tilraun með nýja aðferð við vinnslu á kísilgúrnum Kás-Reykjavik. — Það var samþykkt á stjórnarfundi nú fyrir helgina að reyna nýja ' aðferð við vinnslu gúrsins, en hún feist meðal annars I því að Sláttur hefst senn — um land allt Gsal-Reykjavik — Að vikutima liðnum má búast við þvi að sláttur verði al- mennt hafinn um allt land, sagði Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri f samtali við Timann í gær. — A ein- staka stað, sagði Halldór ennfremur, eru bændur byrj- aðir slátt og þorni upp á Suðurlandi, sem likur eru á, fara bændur væntanlega að hefja slátt i rikara mæli. A Norður- og Austurlandi er nú kuldakast og túnin ekki orðin slæg, en grasið á eftir að þjóta upp um leið og kulda- kastinu lýkur. A ég ekki von á þvi að gras skemmist neitt sökum kuldans. Halldór sagði, að sláttur hæfist nú á svipuðum tima og i fyrra, en miðað við beztu ár, hæfist sláttur seint. Hann sagði, að sæmilega horfði með grassprettu, klaki væri að visu enn i jörðu viða á Suður- og Vesturlandi og grasspretta minni af þeim sökum, en örar myndi spretta um leið og klakinn yrði úr jörðu. Búnaðarmála- stjóri kvað nýtt kal ekki að finna i túnum að þessu sinni. Agjör- — eftir sund- sprett KEJ-Reykjavik — Siðdegis i gær varð það atvik i Naut- hólsvikinni, að maður lagðist til sunds I öllum fötum og fékk krampa, er hann var kominn nokkuð út i sjóinn. Var honum snar- lega bjargað af öðrum manni, sem synti út eftir honum og aftur með hann til lands. Var maðurinn fluttur á slysadeild og þaðan á gjörgæzlu. Var hann illa á sig kominn, siðast þegar blaðið fregnaði, en i góðum höndum. FuII ástæða er til að vara fólk við að synda I köldum sjó hér við land. Slikt getur haft hinar alvarlegustu af- leiðingar. gúrinn er látinn setjast til á skemmri tima i þrónum, en áður tiðkaðist. — A þessa leið fórust Þorsteini Ólafssyni framkvæmdastjóra Kisiliðj- unnar við Mývatn orð, er Timinn hafði samband við hann i gærdag. Sagði Þorsteinn að i vetur hefði eins og kunnugt er, tvær hráefnisþrær Kisiliðjunnar fallið saman við jarð- skjálftana við Kröflu, og vinnsla þvi stöðvazt i þeim. Jarðskjáftárnir hefðu markað sin spor i þá sem eftir var starfhæf, og gert það að verkum að dæling i hana væri aðeins á helmingsafköstum miðað við það sem áður var. Undanfarið hefur verið unnið að lagfæringu hinna tveggja, en fyrirsjáanlegur hefði verið hráefnisskortur, ef ekki kæmi til nýrra og afkastameiri aðgerða. Þorsteinn sagði, að stjórn Kisiliðjunnar hefði tekið málið til rækilegrar athugunar og kannað marga möguleika. Að endingu hefði þessi aðferð orðið fyrir valinu, og þá ekki sizt vegna þess, hve fjárhags- lega hagkvæmari hún væri, en hinar aðferðirnar sem til Framhald á bls. 23 Þessi mynd var tekin siðastliðinn laugardag norður f Mývatns- sveit, og sýnir aöra þróna sem fara á að gera tilraunir I. (Timamynd ATHJ Var togarinn látinn bíða eftir Ragnari? — Tel útgerðarráðsmenn ekki eiga að njóta þeirra friðinda að geta ferðast með skipum Bæjarútgerðar Reykjavikur, sér og sinum að kostnaðarlausu, segir PáU Guðmundsson i útgerðarráði Gsal-Reykjavík. — Nei/ útgerðarráð var ekki að verðlauna Ragnar Júlíusson með því að bjóða honum í þessa ferð með Bjarna Benediktssyni til Þýzkalands og mér vitanlega kom þessi ferð hans með togaranum ekki tll umræðu á fundi í útgerðarráði/ sagði Páll Guðmundsson,einn útgerðarráðsmanna/ ísamtali við Tímann f gær/ en eins og lesendur vita, fór Ragnar Júlíusson for- maður útgerðarráðs Bæjarútgerðar Reykjavíkur til Þýzkalands sem háseti á Bjarna Benediktssyni og frúin hans sem 2. matsveinn. Páll sagöi, að Ragnar heföi daginn og kvaðst hann myndi hins vegar óformlega sagt frá þvi aö hann ætlaði að taka sér sumarfri og fara með togararnum út! Páll Guðmundsson sagði að næsti fundur útgeröarráðs yrði væntanlega á miðviku- krefja formanninn skýringa á þessu ferðalagi hans ef hann yrði kominn aftur til landsins (sem óliklegt er), og fá svör við spurningum um fargjald, tryggingargjald og fleira. — Ég tel, sagði Páll, að útgerðarráðsmenn eigi alls ekki að njóta þeirra friðinda að geta ferðazt með skipum Bæjarútgerðar Reykjavikur sér og sinum að kostnaðar- lausu, eins og virðist vera i þessu tilviki. Sagt er, að Bjarni Benediktsson hafi verið látinn biða eftir Ragnari úti i Faxa- flóa einn dag, vegna þess að Ragnar varð að vera við- staddur opnun Elliðaánna og taka þátt i keppninni við Birgi Isleif borgarstj. um það, hvor fengi fyrsta laxinn. Ef það reynist rétt, að togarinn hafi verið látinn biða unz Ragnar hafi verið tilbúinn að stökkva um borð, er hér um mun alvarlegra mál að ræða, þvi minna verö fæst fyrir aflann eftir þvi sem hann er lengur um borð — og skiptir þá hver dagur miklu, jafnvel hundruðum þúsunda króna. Páll Guðmundsson kvaðsthafa heyrt að svona hafi verið i pottinn búið, en Einar Sveins- son forstjóri BÚR hefur neitað þessu i samtali við Timann. Verður vonandi gengið úr skugga um það hvort hér sé farið með rétt mál eða ekki, þvi hvorugt á að liðast, að yfir- menn borgarfyrirtækja ljúgi að fjölmiðlum eða þeir séu hafðir fyrir rangri sök. Timinn væntir þvi þess að útgerðar- ráðsmennrannsaki þetta mál og komist að hinu sanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.