Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 88
48 18. febrúar 2006 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FEBRÚAR 15 16 17 18 19 20 21 Fimmtudagur ■ ■ LEIKIR  14.00 Víkingur og ÍBV mætast í DHL-deild kvenna í handbolta.  14.00 Stjarnan og HK mætast í DHL-deild kvenna í körfubolta.  14.00 Grindavík og ÍS mætast í bikarúrslitum kvenna í körfubolta.  15.00 KA/Þór og Grótta mætast í DHL-deild kvenna í handbolta.  16.00 Grindavík og Keflavík mæt- ast í bikarúrslitum karla í körfubolta.  16.15 Stjarnan og HK mætast í DHL-deild karla í handbolta.  17.00 ÍBV og Haukar mætast í DHL-deild karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  10.00 ÓL í Tórínó á Rúv í gangi nánast allan daginn.  12.00 Enska bikarkeppnin á Sýn. Leikur Liverpool og Man. Utd.  13.55 Bikarúrslit kvenna í körfu- bolta á Rúv.  15.55 Bikarúrslit karla í körfu- bolta á Rúv.  19.30 Spænski boltinn á Sýn. Leikur Real Madrid og Alaves.  21.30 Spænski boltinn á Sýn. Leikur Barcelona og Real Betis. KÖRFUBOLTI Grindavík og Keflavík hafa aldrei mæst áður í bikarúr- slitaleik karla en liðin hafa sam- tals leikið ellefu sinnum til úrslita í keppninni. Keflavík hefur fimm sinnum orðið bikarmeistari, 1993, 1994, 1997, 2003 og 2004, en í þrígang beðið lægri hlut. Keflvíkingar hafa unnið allar viðureignir erki- fjendanna í vetur, eina í Iceland Express-deildinni og báða leiki liðanna í 8 liða úrslitum Powerade- bikarsins. Grindvíkingar hafa þrisvar orðið bikarmeistarar, 1995, 1998 og 2000. Þeir hafa aldrei tapað í úrslitaleik bikarkeppninnar .- hþh Bikarúrslit karla í dag: Hafa aldrei mæst áður KÖRFUBOLTI Þeir A.J. Moey og Jer- emiah Johnson eru góðir vinir utan vallar en það breytist snögg- lega í 37. bikarúrslitaleik karla í dag þar sem heiðurinn er fyrst og fremst í veði. Suðurnesjaliðin Keflavík og Grindavík takast á og ef leikurinn verður eitthvað í líkingu við rimmur félaganna í deildinni má að leiða líkur að því að leikurinn verði stórskemmti- legur og æsispennandi. „Ég er mjög spenntur. Það er ávallt stórt verkefni að spila í bik- arúrslitum og mikill heiður auk þess sem ég finn hversu mikil virðing er borin fyrir keppninni hér,“ sagði A.J. Moey, leikmaður Keflavíkur, en hann hefur skorað 27,5 stig að meðaltali í deildar- leikjunum í ár og er lykilmaður í Keflavíkurliðinu. „Við ætlum bara að spila okkar bolta, það er lykill okkar að sigr- inum. Þetta eru áþekk lið sem skora mikið og því verður þetta hörkuleikur. Við erum ekki með hávaxnasta liðið en við höfum margar góðar skyttur og menn sem geta skapað fyrir aðra,“ sagði Bandaríkjamaðurinn við Frétta- blaðið. „Liðið sem berst meira vinnur alltaf leikinn, hvaða leikur sem það er og þannig verður það líka í leiknum gegn Grindavík. Það er ekkert leyndarmál,“ sagði A.J. sem telur að stuðningur áhorfenda muni skipta miklu máli. „Stuðningsmennirnir okkar eru geðveikir. Þegar þeir byrja að lemja trommurnar þá gefur það okkur aukakraft sem hjálpar oft mikið til,“ sagði A.J. Moey að lokum en hann bjóst við mikilli skemmtun fyrir áhorfendur. Jeremiah Johnson, leikmaður Grindavíkur, hefur skorað 25,6 stig að meðaltali og er líkt og A.J. lykilmaður í Grindavíkurliðinu. „Liðið sem er ákveðnara og kemur betur stemmt í leikinn vinnur,“ sagði Jeremiah við Fréttablaðið en hann telur að allt geti gerst í þessum stórleik. „Þetta er stórt verkefni fyrir liðið, Grindavíkurbæ og sjálfan mig. Ég er mjög ánægður fyrir hönd liðsfélaga minna og allra sem koma að körfuboltanum í Grindavík. Það er frábært að komast í úrslitaleikinn en það væri mjög sérstakt að hampa titl- linum,“ sagði Jeremiah, sem er fyrst og fremst ákveðinn í að spila sinn leik. „Ég ætla bara að spila mínum leik og ég set enga aukapressu á mig fyrir þennan leik. Þegar maður er í bikarúrslitaleik vinnur maður bara fyrir sitt lið og reyn- ir að draga fram það besta sem kemur okkur í leikinn. Þetta snýst um sigurviljann, hver vill vinna leikinn meira,“ sagði Jeremiah að lokum. hjalti@frettabladid.is Sigurviljinn vegur þungt Bikarúrslitaleikur Keflavíkur og Grindavíkur fer fram klukkan 16 í Laugardals- höll í dag. Þetta verður gífurleg rimma tveggja frábærra liða sem eru fornir fjendur auk þess að vera barátta tveggja af bestu leikmönnum deildarinnar. A.J. MOEY OG JEREMIAH JOHNSON Munu berjast um bikarinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI „Þetta eru tvö ólík lið, þær eru hávaxnari en við erum hraðari og það er lykilatriði að ná hraðanum upp og halda honum,“ sagði Unndór Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur, fyrir leikinn í dag en bærinn á lið í bæði karla- og kvennaleiknum í dag. „Þegar komið er í svona leiki er það aðallega sálfræðiþátturinn sem ræður ríkjum og það gildir að halda spennustiginu niðri. Stað- an í deildinni skiptir engu máli í bikarúrslitaleik heldur er það stemningin í liðinu og stuðningur sem skiptir miklu máli og ég býst við hálfum Grindavíkurbænum í Laugardalshöllinni,“ sagði Unn- dór sem býst fyrst og fremst við skemmtilegum leik. „Þrátt fyrir að liðin séu ólík eru þetta bæði stemningslið en ef við náum að halda hraðanum uppi veit ég að sigurinn verður okkar,“ sagði Unndór sigurviss að lokum. „Við höfum verið að skoða Grindavíkurliðið vel en einbeitum okkur þó fyrst og fremst að okkar eigin leik,“ sagði Ívar Ásgríms- son, þjálfari ÍS, sem stefnir á að halda hraðanum niðri í leiknum. „Þær reyna eflaust að spila hraðan bolta, taka fljótt skot og pressa mikið. Við vitum að styrk- ur þeirra leggst fyrst og fremst í að halda hraðanum uppi auk þess sem Jerica Watson er þeirra lyk- ilmaður. Við ætlum að ráða ferð- inni í leiknum og stjórna leiknum auk þess sem við þurfum að nýta okkur hæðarmuninn,“ sagði Ívar sem ætlar sér að klára verkefnið sem er fyrir höndum. „Við þurfum að spila okkar leik, við höfum unnið síðustu fimm leiki, þar á meðal Hauka og Keflavík og ef við vinnum Grindavík þá erum við búin að vinna öll liðin. Við ætlum okkur því að klára verkefnið og loka hringnum,“ sagði Ívar að lokum og lofaði stórkostlegri skemmtun í Höllinni. .- hþh Grindavík tekur á móti stúdínum í bikarúrslitaleik kvenna: Spurning um sálfræði og að halda spennustiginu niðri HVOR HAMPAR TITLINUM? Fyrirliðar Grinda- víkur og ÍS, Hildur Sigurðardóttir og Signý Hermannsdóttir FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Leikur Grindavíkur og ÍS í dag verður fjórða viðureign liðanna á tímabilinu. Grindavík hefur unnið tvo leiki, stúdínur einn en allar hafa þær verið í Ice- land Express-deildinni og í þeim öllum var hart tekist á og leikar verið jafnir í leikslok. Stúdínur hafa sex sinnum orðið bikarmeist- arar, síðast árið 2003 þegar Alda Leif Jónsdóttir lyfti bikarnum en ÍS keppir nú í fjórtánda sinn til úrslita. ÍS hefur unnið fimm leiki í röð í deild og bikarkeppni og mæta stúdínur því vel stemmdar til leiks. Grindavíkurstúlkur eru að keppa til úrslita í þriðja sinn en eiga enn eftir að hampa tilinum, þær töpuðu með þriggja stiga mun fyrir Haukum á síðasta ári og voru mjög nálægt því að landa sigrinum og ætla því eflaust ekki að láta söguna endurtaka sig. - hþh Bikarúrslit kvenna í dag: Fjórtándi úr- slitaleikur ÍS HART BARIST Corrie Mizusawa brýtur sér leið í gegn í leik ÍS og Grindavíkur fyrr í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI „Þetta verður flottur og skemmtilegur leikur á laugar- daginn og vonandi að hann verði skemmtilegur fyrir áhorfend- ur, bæði liðin spila í dag mjög skemmtilegan körfubolta,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur, við Fréttablaðið. „Við höfum verið að spila mikið af stórum leikjum að okkar mati, úrslitaleiki hér heima og svo líka í Evrópukeppninni og höfum und- irbúninginn mjög hefðbundinn,“ sagði Sigurður sem hefur haft stífar æfingar undanfarið. „Grindavík er með gott sóknar- lið og á oft mjög langa góða kafla í leikjum og það verðum við að stoppa,“sagði Sigurður að lokum. - jss Sigurður Ingimundarson: Grindavík með gott sóknarlið SIGURÐUR INGIMUNDARSON Á von á spennandi leik. LEIÐIN Í ÚRSLITIN Karlar: 32-liða úrslit: Haukar b 56-123 Grindavík 16-liða úrslit: KR b 69-92 Grindavík 8-liða úrslit: Hamar/Selfoss 74-97 Grindavík Undanúrslit: Grindavík 97-87 Skallagrímur 32-liða úrslit: Keflavík 104-96 Fjölnir 16-liða úrslit: Tindastóll 67-89 Keflavík 8-liða úrslit: KR 74-98 Keflavík Undanúrslit: Keflavík 89-85 Njarðvík Konur: 16-liða úrslit: Grindavík 91-39 KR 8-liða úrslit: Grindavík 97-62 Haukar b Undanúrslit: Keflavík 62-68 Grindavík 16-liða úrslit: ÍS 101-26 Fjölnir 8-liða úrslit: ÍS 63-62 Haukar Undanúrslit: ÍS 91-70 Breiðablik KA fær til sín Serba Lið KA í 1. deildinni hefur samið við 26 ára gamlan Serba, Srdjan Tufegdzic að nafni. Sá spilar á miðjunni og binda forráðamenn KA sér vonir um að hann muni styrkja liðið mikið í baráttunni næsta sumar. > Hafþór meiddur á liðþófa Hafþór Ægir Vilhjálmsson, hinn ungi og bráðefnilegi leikmaður ÍA, verður frá í fjórar til sex vikur vegna meiðsla sem hann hlaut nýverið. Hafþór er meiddur báðum megin á liðþófa í hægra hnénu og þarf að fara í aðgerð til að fá bót meina sinna. Haf- þór lék þrettán leiki með ÍA síðasta sumar og skoraði í þeim þrjú mörk og hefur vakið athygli erlendra félaga á und- anförnum mánuðum. Um fátt er annað rætt í handbolta- heiminum þessa dagana en meint svik serbneska landsliðsins gegn Króatiu á EM í Sviss. Serbneskir fjölmiðlar hafa birt viðtöl við leikmenn serbneska landsliðsins sem halda því fram að landsliðsþjálfarinn, Veselin Vujovic, og tveir stjórnarmenn serbneska handbolt- asambandsins hafi skipað þeim að tapa leiknum. Landsliðsmaðurinn Þórir Ólafsson spilar með einum leikmanna serbneska landsliðsins, Dragan Sudzum, hjá TuS- N-Lübbecke og Þórir sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að Sudzum hafi stað- fest þessar fregnir við sig persónulega. „Hann segir að það séu að minnsta kosti tíu leikmenn búnir að gefa sig fram og segja sína sögu um hvað gerðist en blöðin hafa samt aðeins sagt að tveir hafi gefið sig fram. Sudzum sagði mér að Vujovic hefði sagt við þá fyrir leikinn að þeir ættu ekki möguleika í þessum leik og að mótið væri búið. Svo þegar einhver skoraði fjögur mörk í röð þá var hann tekinn af velli svo þeir myndu ekki vinna leikinn. Hann refsaði mönnum fyrir að spila vel,“ sagði Þórir en ætli Vujovic hafi sagt það berum orðum að þeir ættu að tapa leiknum? „Sudzum vill ekki meina það en Vujovic hamraði á því við þá að þeir ættu ekki möguleika.“ Fyrsta ár Þóris í atvinnumennsk- unni hefur verið upp og niður en hann er sífellt að finna sig betur og í kjölfarið fylgir meiri spilt- ími. Svo varð hann einnig faðir fyrir ekki löngu þannig að það hefur gengið á ýmsu. „Þetta er búið að vera mikið fjör og góður lærdómur. Þótt það hafi stundum verið erfitt þá hefur alltaf verið gaman og verður ekki síður skemmtilegt á næsta ári þegar Birkir Ívar verður kominn,“ sagði Þórir Ólafsson. ÞÓRIR ÓLAFSSON: SERBNESKUR FÉLAGI HANS KJAFTAR FRÁ LANDSLIÐSÞJÁLFARANUM Vujovic refsaði mönnum fyrir að spila vel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.