Ísafold - 04.12.1918, Blaðsíða 2

Ísafold - 04.12.1918, Blaðsíða 2
2 IS AFOLD Að lokum var stofnaður sjóður til hjálpar sjúkum og bágstöddum á íslandi og söfnuðust um 3000 krónur. Þá hafa Stjórnarráðinu og borist samfagnaðarskeyti frá löndum í Koregi. Heiðursmerki. A fullveldisdaginn barst símfregn um, að konungur hefði gert alla ráðherrana að dannebrog-komman- dörum, en formann samninganefnd- arinnar, Jób. Jóhannesson, að danne- brogsmanni (var áður riddari), og hina þrjá nefndarmennina, Bjarna frá Vogi, Einar Arnórsson og Þor- stein Metúsalem að riddurum. Er beiðursmerkja-»manna« þetta auðvitað tilkomið vegna sambands- máisins, í því skyni að heiðra þá, sem þar hefðu af dugnaði lagt hönd á plóginn. Eins og oft hefir áður verið minst á í Isafold, þekkir enginn verðleika Sigurðanna af því máli, og, ef út í það er farið, ekki heldur fulitrúa Timaklíkunnar, sem að engu gætti. Er því eðiiiegt að með þessa þrjá fyrir augum detti mörgum i hug visa Steingríms: »Orður og titlar, þarflaust þing«. . . , Hin nýju embætti. Búist er við að Jón Krabbe skrif- stofustjóri verði fulltrúi íslands i utanríkisráðuneytinu, en Jón Svein- björnsson kammerjunker, einkaritari konungs. t Sigurjón Jóhannesson á Laxamýri, hinn merki bænda- öldungur, faðir Jóhanns skálds og þeirra systkina, andaðist að heimili sínu, Laxamýri 27. þ. m. 87 ára að aldri. Erlendar fréttir. Framsai Vilhjálms kelsara. Svo virðist, sem forkólfar sam- herja ætli að sækja það fast, að Vil- hjálmur keisari verði framseldor af Hollendingum. — Clemenceau for- sætisráðherra Frakka lét frakkneska lögfræðinga rannsaka, hvernig það mál horíði við frá réttarlegu sjónar- miði, og komust þeir að þeirri niður- stöðu, að keisarinn geti ekki krafist þess, að Hollendingar leyfi honum vern þar i landi. — Nú eru brezkir lögfræðingar í óðaönn að rannsaka málið. I Ameríku er það sagt álit fólks, að ef úr framsali keisara verði, þá sé St. Helenuey, þar sem Napóleon lifði í útlegð, alt of góð vistarvera fyrir hann. Wiison Bandarikjaforseti leggur á stað í sigurför s'na til Norðurálfu um miðja næstu viku. Gert ráð fyrir að forsetinn dvelji 6 vikna tíma hjá samherjum, og þarf ekki að efast um, að það verði í góðu yfirlæti. Tjénii af Kötlugosinu. —*— Það mun kunnugt um land alt hviliku tjóni og vandræðum Kötlu- gosið hefir valdíð í sveitunum þar umhverfis. Að vísu mun ekki verða um bjargarskort að ræða þar í vetur, þar sem tjónið aðallega felst í lógun búpenings fyrir jarðbönn af öskufalli og ágangi vatna. En spjöll á eign- um hafa orðið mikil, eins og sjá má af eftirfarandi símskeyti, 25. f. m., til Búnaðarfélags ísland', frá Gísla sýslumanni Sveinssyni i Vik: »Safnað verður vetur nákvæmum skýrslum tjón af Kötlu- gosi. Má ætla iauslega farist hross nokkrir tugir, sauðfé nokkur hundruð. Jarðir skemst til frambúðar allri Skaftártungu, þar helm- ingurinn máske gersamlega eyðilagður mörg ár ösku, sandi, vikri. Álftaveri flestar jarðir skemst mjög vatnsflóði og ösku, einnig nokkrar jarðir Meðallandi og vesturhluta Síðu. Þessar skemdu jarðir nærri allar sjaifseign. Má heita hver einasti búandi milli Skeiðarár- smds og Mýrd; Issands þurfi eyða miklum fénaði, að eins vegna afleið- inga gossins; allramest Skaftártungu, lika nokkuð austurhluta Mýrdals*. Þó að beint eignaíjón nemi þannig tugum þúsunda, mun þó tekju- missirinn, sem bændur, verða fyrir af völdum gossins, verða enn til- finnanlegri. Allir bændur milli Skeiðarársands og Mýrdalssands verða ofan á förgunina, sakir grasleysisins siðastliðið sumar, ennfremur að eyða fénaði sinum sakir gossins. Sama er og sagt af ofanverðu Landi og Rangárvöllum og víðar. Þessi mikla förgun á fénaði hefir það í för með sér, að arðurinn af búunum verður hveifandi næsta sumar, með öðrum orðum, bændur í þessum sveitum missa tekna sinna næsta ár. Er því fyrirsjáanlegt, að rýrnun á bústofni í -þessum sveitum verður tilfinnanlegri en svo, að af- skiftalaust eða aðgerðalaust megi láta. Virðist einsýn þjóðarnauðsyn og mannúðarskylda fyrir aðra þá hluta landsins, er ekki hafa orðiö íyrir tjóni af jarðeldunum, að hlaupa undir baggann fljótt og drengilega. Þyrfti það að gera á þann hátt, að veita þeim einstaklingum eða sveitum fjárstyrk til bústofnskaupa næsta ár, þar sem lakast er ástatt og menn geta ekki af eigin ramleik endurreist lif vænlegan stofn. En þá er að finna aðferðina, greiða og hagkvæma, til þess að koma þessu í framkvæmd. Þrjár aðferðir hafa verið teknar til athugunar. Búpeningssamskot, sauðfé, kýr, hestar; en þau má telja ófram- kvæmanleg, eins og hér er ástatt. Sama er um venjuleg peningasamskot, að þau eru til sveita þung i vöfum, seinleg og erfið í söfnun. Hefir því niðurstaðan orðið sú, að gera tilraun til samskota meðal bændastéttar- innar með frjálsu gjaldi af búnaðarframleiðslu, teknu með samþykki bænda fyrirfram eða eftir á. Slík samskot ættu ekki að þurfa að verða mjög fyrirhafnarmikil, þar eð vænta má lipurðar og góðrar aðstoðar kaupmanna og forstjóra samvinnufélaga bænda um innheimtuna. Endurreisn bústofnsins í sveitunum, sem harðaat hafa orðið úti af Kðtlugosinu, er næst því að vera þjóðfélagsmá), fyrst og fremst land- búnaðarmál, og hefir því stjórn Búnaðarfélags íslands og formenn bún- aðarsambandanna komið sér saman um: 1. Að skora á alla kaupmenn og kanpfélög landsins og sláturfélög að greiða til samskota til jarðeldahéraðanna eina krónu af kjöttunnu hverri, seldri síðastliðið haust utan lands eða innan. Féð sendist stjórn Búnaðar- aðarfélags íslands, er geymir það til væntanlegrar úthlutunar næsta sumar. Egill Jacebsen Reykjavík. — Sími: 119. lítibú i Hafnarfirði. Simi: 9. Útibú í Vestmannaeyjum. Sfmi: 2, Landsins fjölbreyttasta Vefnaðarvöruverzlun. Prjónavörur, Saumavólar, Isienzk flögg. Regnkápur, Smávörur, Drengjaföt, Telpukjólar, Leikföng. Pantanir afgreiddar gegn eftirkröfu ef óskað er. Ollum fyrirspurnum svarað greiðlega. Vandaðar vörur. Ódýrar vörnr Arni Eiríksson Heildsala. Tals. 265. Pósth. 277. Smásaia. Vefnaðarvörur, Prjónavörur mjög fjölbreyttar. T Saumavélar _____1 Saumavélar með hraðhjóE og 10 ára verksmiðjuábyrgð Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir. þvotta- og hreinlætisvörur, beztar og ódýrastar. fy Tækifærisgjafir. "'göl 2) teljið einstökum viðskiftamönnum yðar, gegn væntanlega samþykki þeirra eftir á, tillagið til gjalda um næsta nýár, hverjum aö réttri tiltölu við kjötsölu hans. Nú skyldu einhverjir einstaklingar mótmæla gjaldlið þessum, að fengnum reikningum yðar, og þannig neita hluttöku i samskotum til jarðeldahéraðanna, og verður yður þá skilað aftur gjaldi þeirra manna, enda sé krafa um það komin fram eigi siðar en fyrir 1,. ágúst 1919. Egqert Briem frá Viðey Guðmundur Þorbjarnarson. f. h. Búuaðarfélags íslands. f. h. Bsb. Suðurlands. Magnús ‘Bl. Jónsson f. h. Bsb. Austurlands. Steján Stejánsson f. h. Ræktunarfél. Norðurl. Sigurður Stejánsson f. h. Bsb. Vestfjarða. Þ. Maqnús Þorláksson i. h. Bsb. Kjalarnesþings. Aths. Tími vanst ekki til að bera þetta mál undir Búnaðarsam- band Borgarfjarðar og Búnaðarsamband Drla og Snæfellsness. E. Br. 2. Einstökum viðskiftamönnum sé, gegn væntaqlegu samþykki þeirra eftir á, talið til gjalda tillagið um næsta nýár, hverjum að réttri tiltölu við kjötsölu hans. 3. Skyldu einhverjir einstaklingar mótmæla gjaldiið þessum að fengnum reikningum, þ. e. neita hluttöku í samskotum til jarðeldahérað- anna, þá verður gjaldi þeirra manna skilað aftur. Það liggur í augum uppi, að samskotaaðferð þessi stendur og fellur með undirtektum kaupmanna og forstjóra kaupfélaga og sláíurfélaga, þar sem hér getur ekki verið um skyldu eða skipun að ræða. En treyst er skilningi þessara manna á málefninu og einlægum vilja til þess að vinna að þvi, að bæta eitthvað úr hinu hörmulega ástandi jarðeldahéraðanna, með þvi að gerast á þennan hátt safnendur samskotanna meðal bænda. Hinsvegar áhættan ekki mikil að halda tillaginu eftir og leggja það fram fyrir einstaka viðskiftamenn, þar sem gera má ráð fyrir, að varla nokkur skorist undan þvi, og enn fremur, ef svo yrði, þá verður tillagi þeirra manna skilað aftur. Þótt framangreiud tilraun sé gerð til þess að gera bæudum kost á að hlaupa hér á hagkvæman hátt undir bagga og bera byrði hver með öðrum, þá er þess vænst, að aðrar stétlir landsins líti á þetta sem þjóð- félagsmál og rétti hjálparhönd, og veitir Búnaðarfélagið þeim samskotum einnig móttöku. Samkvæmt framanrituðu er öllum kaupmönnum og framkvæmdar- stjórum kaupfélaga og sláturfélaga send svo hljóðandi: Á 8 k 0 r u n. Búnaðarfélag íslands og búnaðarsambönd og Ræktunarfélag Norður- lands vilja gera tilraun til samskota til endurreisnar næsta sumar bústofni bænda, sem nú hafa felt eða verða að fella sakir Kötlu- gossins. Er ætlast til, að tillögum meðal bænda sé safnað sem eins konar frjálsu jarðeldagjaldi af kjötframleiðslu landsins í ár, er komi í stað venjulegra samskota. Leyfum vér oss því að mælast til þess við yður, háttvirti herra, að þér 1) greiðið til Búnaðarfélags íslands fyrir 1. april 1919 eina kr. af kjöttunnu hveiri af þessa árs framleiðslu, er þér hafið selt eða seijið utanlands eða innan. Inflúenzan og læknarnir. Það má með sanni segja að in- flúenzan hefir komið læknunum I mikil vandræði, og margt er það i hátterni veikinnar, sem þeim er með öllu óskiljanlegt og óviðráðanlegt. Læknarnir þóttust þekkja þá sótt- kveikju — Pfeiffers geril — sem væri influenzunni valdandi. Nú hafa menn komist að raun um, að gerill þessi er e. k. aðskotadýr; hann finnst að visu stundum í líkama sjúklinganna, en sóttkveikjufræðingar eru þó horfn- frá þeirri skoðun, að Pfeiffers ger- ill sé sá raunveruiegi inflúenzugerill. Hjá lungnabólgusjúklingunum hafa fundist ýmsir eiturgerlar, sem virð- ast sama eðlis og ger.’ar, er valda venjulegri blóðeitrun; ennfremur gerlar, sem líkir eru venjulegum lungnabólgugerlum. Orsök veikinnar er þvi ókunn, En margt annað er dularfult við þessa sótt. Hversvegna deyr sér- staklega mikið af hraustu fólki á bezta aldri, en fjöldinn allur af gömlu fólki tekur ekki veikinaf Hvers vegna legst veikin fremur létt á börn, nema þau sem kornung eru? Hvers vegna er veikin engu síður banvæn í hollum og góðum ibúðum en á heimilum fátækling- anna? Afleiðingin af þessari óvissu og vanþekkingn á eðli inflúenzunnar er m. a. sú, að læknarnír hafa bæði hér cg erlendis yfirleitt litlu fengið áorkað með meðferð sinni á sjúkl- ingunum, og þeir hafa margir hverj- ir verið í vafa um hvað gera skyldi„ Ytra hafa flestir læknar látið sér nægja að fyrirskipa venjuleg hita- sóttar- og lungnabólgumeðul; en þó hafa læknar ritað greinar í útlend læknarit um bólusetning við veik- inni; enn aðrir ráðleggja eindregið sernm-lækningu. Ytra eru læknarnir í vandræðum, sjúklingarnir hrynja niður þrátt fyrir tilraunir þeirra, og er síður en svo að amast sé við tilraunum með nýjar lækninga-að- ferðir. í Reykjavik er öðruvísi ástatt; hér virðist allur fjöldinn af læknum ánægðari með árangur af inflúenzu- lækningunni, en við mætti búast. I siðasta tölubl. þ. blaðs birtistað tilhlutun formanns Læknafélags Reykjavíkur, hr augnlæknis A. Fjeld- steð, yflrlýsing fjölda lækna, sem stundað hafa inflúenzusjúklinga í Rvík, >og er pað sammála álit peirra, að sjúkdóm pennan beri að fara meS eins og venja hefir verið um siíkatr

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.