Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 107

Fréttablaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 107
 Eitt mesta ævintýrið í undankeppni EM í Austurríki og Sviss 2008 á sér stað í okkar riðli. Norður-Írar, sem töpuðu 0-3 fyrir Íslandi á heimavelli í fyrsta leik og hafa ekki komist í úrslita- keppni stórmóts síðan 1986, eru á toppi íslenska riðilsins með 13 stig úr 6 leikjum. Norður-írska liðið vann 2-1 sigur á Svíum í uppgjöri efstu liðanna í fyrrakvöld og hafa eins stigs for- skot á Svíana sem eiga reyndar leik til góða. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1988 sem Norður-Írland er í efsta sæti í sínum riðli. Lykilmaðurinn í uppgangi Norð- ur-Íra er 28 ára framherji Leeds, David Healy. Healy skoraði bæði mörkin í sigrinum á Svíum, þrennu í 4-1 sigri á Liechtenstein, sigurmark gegn Lettlandi og öll þrjú mörkin í 3-2 sigri á Spánverj- um. Healy er nú orðinn marka- hæsti leikmaður undankeppninn- ar og hefur skorað 9 af 10 mörkum norður-írska liðsins í sex leikjum liðsins. „Á meðan ég held áfram að skora þá getur allt gerst,“ sagði Healy og bætti við. „Við brugð- umst sjálfum okkur í tapinu á móti Íslandi en höfum síðan þá bætt okkur gríðarlega mikið og það er að skila okkur þessari stöðu. Lawrie sýndi okkur stigatöfl- una í síðustu viku og að við gætum komist á toppinn eftir þessa tvo leiki. Þetta útspil hans heppnað- ist fullkomlega,“ sagði Healy sem hefur „aðeins“ skorað 8 mörk fyrir Leeds í 39 leikjum í vetur en liðið er í harðri fallbaráttu í ensku 1. deildinni. „Vonandi get ég komið aftur til Leeds og skorað nokkur mörk svo við getum haldið sætinu okkar í deildinni,“ sagði Healy. „Mig skortir orð til að lýsa David Healy. Ef við sköpum færi fyrir hann þá skorar hann mörk fyrir okkur. Hann fékk tvö færi í kvöld og skoraði úr báðum með heims- klassa afgreiðslu,“ sagði Lawrie Sanchez, þjálfari Norður-Íra. „Það er frábært að vera á toppi riðils- ins þegar undankeppnin er hálfn- uð og það er stórkostlegt að vera komnir með 13 stig úr 6 leikjum. Við vitum samt að við þurfum að fá jafnmörg stig ef ekki fleiri út úr hinum sex leikjunum því það er nóg af fótbolta eftir í þessum riðli,“ bætti Sanchez við. Tapið gegn Íslandi kveikti í Norður-Írum Steve McClaren, þjálfari enska landsliðsins, má þola harða gagnrýni þessa dagana, ekki bara frá ensku pressunni heldur einn- ig stuðningsmönnum enska lands- liðsins. Enskir áhorfendur voru allt annað en ánægðir með frammi- stöðu enska landsliðsins í 3-0 sigri á Andorra en það tók liðið 54 mín- útur að skora fyrsta markið. Þeir púuðu á enska liðið og heimtuðu að McLaren yrði rekinn. Þetta var fyrsti sigur liðsins í sex leikjum en enska landsliðið á hættu á að missa af sæti á EM. Steve McLaren var ekki marg- máll á blaðamannafundi eftir leik- inn og sagði ensku fréttamönnun- um að þær mættu bara skrifa það sem þeir vildu. Leikmenn enska liðsins hafa beðist vægðar fyrir þjálfara sinn og enska knattspyrnusambandið hefur lýst yfir stuðningi en á meðan enska liðið spilar jafnilla er ljóst að gagnrýni og óánægjan með störf hans á ekki eftir að minnka. Skrifið það sem þið viljið Hafdís Helgadóttir, 42 ára leikmaður ÍS í Iceland Ex- press-deild kvenna, fékk sérstaka viðurkenningu í gær en hún bætti leikjametið í 1. deild kvenna í vetur og hefur tekið þátt í öllum Íslandsmótum frá árinu 1985 eða í 22 Íslandsmótum í röð. Hafdís hefur alls leikið 335 leiki og skoraði 3.025 stig í deild- arkeppninni. Hún fékk viður- kenninguna fyrir fjórða leik ÍS og Hauka í undanúrslitaeinvígi Ice- land Express-deildar kvenna en aðeins fjórir leikmenn Haukaliðs- ins voru fæddar þegar Hafdís lék sinn fyrsta leik á sama stað fyrir tæpum 22 árum. Búin að spila 22 tímabil í röð ÍSAFOLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.