Fréttablaðið - 28.06.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.06.2008, Blaðsíða 8
8 28. júní 2008 LAUGARDAGUR 1 Hvaða lið mætast í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu? 2 Hver neitaði ljósmyndara Fréttablaðsins um að ljós- mynda undirskrift fyrir álverið á Bakka? 3 Hvaða bókaútgáfa hefur undanfarið gagnrýnt úthlutanir Bókmenntasjóðs? SVÖRIN ERU Á SÍÐU ?? Urð og grjót - Upp í mót ... HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 42 81 3 06 /0 8 Meindl Colarado lady Nubuk leður. Gore Tex vatnsvörn. Multigriff sóli. Þyngd: 750 g (stærð 42). Einnig til í herraútfærslu. Tilboð21.990kr. Verð áður 25.990 kr. Meindl Borneo Nubuk leður. Gore Tex vatnsvörn. Multigriff sóli. Þyngd: 750 g (stærð 42). Einnig til í herraútfærslu. Tilboð24.990kr. Verð áður 28.990 kr. Meindl Island Pro GTX „Einn sá allra besti“. Heil tunga og vandaður frágangur. Ótrúlega léttir! Þyngd: 830 g (stærð 42). GTX vatnsvörn. MFS fóður lagar sig að fætinum. Vibram veltisóli með fjöðrun. Sérlega góður stuðningur við ökklann. Einnig fáanlegir í dömustærðum, bláir. Tilboð28.990kr. Verð áður 33.990 kr. STJÓRNSÝSLA Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að stjórn- sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Vegagerðinni og Siglingastofnun Íslands verði yfirfarin gaumgæfi- lega á komandi vikum og mánuð- um. „Ég ætla að boða til mín yfir- menn stofnananna auk yfirmanna Flugmálastjórnar og Umferðar- stofu og heyra þeirra sjónarmið,“ segir Kristján um tillögu Ríkisend- urskoðunar um að sameina þær allar undir eina stjórnsýslu. Spurð- ur um þá gagnrýni sem Vegagerð- in fær í skýrslunni segir Kristján: „Vissulega er margt sem þarf að skoða í málefnum Vegagerðarinn- ar, þetta er stór stofnun með mörg verkefni.“ Í úttektinni er vinnulag Vega- gerðarinnar gagnrýnt; einkum örar breytingar í framkvæmdum, vöntun á eigin stöðlum og erfið- leikar við að fara að samgöngu- áætlun. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri segir skýrsluna vera ágætis yfirferð þótt hann samþykki ekki allt sem kemur fram í henni. Hann segir þó umfjöllunina um vöntun á stöðlum ágætist ábendingu. „Við erum að vinna í endurgerð á þeim stöðlum sem fyrir eru og stefnum á útgáfu þeirra með haustinu,“ segir Hreinn. „Öryggi er algert forgangsatriði í vinnu okkar en vinnuaðstæður hér á landi eru oft flóknar og fjölbreyttar.“ Hreinn bætir því við að erfiðleikar Vega- gerðarinnar við að fara að sam- gönguáætlun séu oft fólgnir í því að áætlunin sjálf breytist ört og því sé erfitt að laga umfang stofn- unarinnar að þeim. „Verkefnin eru ekki ákveðin innan Vegagerðarinn- ar og því verðum við að laga okkur að þeim aðstæðum sem koma upp hverju sinni.“ helgath@frettabladid.is Of tíðar breytingar á samgönguáætlun Samgönguráðherra segir úttekt Ríkisendurskoðunar áhugaverða og ætlar að bregðast við henni með aðgerðum. Vegamálastjóri segir erfitt fyrir Vegagerðina að fara að samgönguáætlun þegar áætlunin sjálf breytist oft og mikið. VEGAGERÐIN Í VANDA Vegamálastjóri segir Vegagerðina ekki ákvarða verkefnin á hverjum tíma og því erfiðara fyrir stofnunina að fara að áætlun FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMGÖNGUR Iceland Express hefur ákveðið að draga úr sætaframboði í haust og vetur til Kaupmannahafnar og London auk þess að hætta við heilsárs- flug til Alicante. Ástæðuna segja stjórnendur vera hækkandi eldsneytisverð og veiking krónunnar. „Við teljum að á þessari stundu sé það forgangsatriði að ná niður eldsneytiskostnaði eins og kostur er,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express. Farþegar sem áttu bókað flug sem fellt verður niður verða látnir vita og samkvæmt reglum um breytingar á áætlun er þeim boðin endurgreiðsla eða önnur ferðatilhögun. - vsp Veiking krónunnar hefur áhrif: Sætaframboð dregst saman VÉLAR ICELAND EXPRESS Hækkandi eldsneytisverð veldur samdrætti hjá félaginu. Fær fóstureyðingu Yfirvöld í Rúmeníu hafa heimilað ellefu ára gamalli stúlku, sem varð þunguð eftir að frændi hennar nauðgaði henni, að fara í fóstureyð- ingu. Stúlkan var komin 21 viku á leið, en fóstureyðingar eru almennt ólöglegar í Rúmeníu eftir fjórtán vikna meðgöngu. RÚMENÍA KASAKSTAN, AP Afmælisdagur forseta Kasakstans, Núrsúltans Nasarbajev, 6. júlí, hefur verið gerður að þjóðhátíð- ardegi í Kasakstan. Frumvarp þessa efnis var samþykkt af þingi Kasakstans í gær og strax í framhaldi af því staðfesti forsetinn lögin. Eingöngu þingmenn úr flokki forsetans sitja á þinginu. Þingmenn höfðu áður lagt til að ný höfuðborg landsins, Astana, yrði nefnd Núrsúltan til heiðurs forsetanum, en hann hafnaði því. Nasarbajev gerði Astana að höfuðborg ríkisins í stað stærri borgarinnar Almaty árið 1997. Nasarbajev hefur verið við völd í Kasakstan frá því áður en Sovétríkin féllu. - gh Afmælisagur Kasakstanforseta: Gerður að þjóðh átíðardegi NÚRSÚLTAN NASARBAJEV DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald til 22. júlí yfir manni sem grunaður er um stórfelldan og ítrekaðan þjófnað á greiðslukortum, sem hann ýmist reyndi að nota eða tókst að nota. Fyrr í þessum mánuði var maðurinn handtekinn með greiðslukort sem hann hafði stolið úr jakkavasa á kaffihúsi. Hann hafði þá þegar keypt fartölvu út á það á rúmar 200 þúsund krónur, sem hann hafði svo selt fyrir tíu grömm af amfetamíni. Þetta hefur hann játað. Auk þessa er maðurinn grunaður um fimm brot í júní. Hann var tekinn með þrjár fartölvur, sem voru þýfi, svo og vegabréf annars manns í vasanum. Þá gerði hann ítrekaðar tilraunir til þjófnaðar og fjár svika með stolnum kortum. Það sem af er árinu hefur maðurinn verið mikið á ferðinni og iðkað innbrot og þjófnaði. Meðal annars fór hann inn í bíl og hafði upp úr krafsinu kassa sem í voru hundrað geisladiskar með Karlakór Akureyrar. Maðurinn var dæmdur í tólf mánaða fangelsi í nóvember á síðasta ári fyrir fjölmörg auðgunarbrot. Þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir. Er ljóst að verði hann fundinn sekur um brotin á þessu ári hefur hann rofið skilorð. - jss Maður grunaður um stórfelldan og ítrekaðan kortaþjófnað áfram í gæslu: Skipti á fartölvu og amfetamíni BRETLAND, AP Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, hvatti á dögunum til þess að Bretar verðu 100 milljörðum sterlingspunda, andvirði um 16.000 milljarða króna, til að draga úr olíunotkun og til að uppfylla markmið ESB um þróun endurnýjanlegra orkugjafa. Brown lagði til að þessum fjárfestingum yrði dreift yfir tólf ára tímabil. Þær yrðu liður í viðleitni stjórnarinnar að því takmarki að minnst 15 prósent af orkuþörf landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum fyrir árið 2020. „Þetta er græn bylting,“ sagði Brown. - aa Brown um orkustefna Breta: 16.000 milljarðar í vistvæna orku HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Staðfesti úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 22. júlí. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.