Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLÍ1983
IN
ÞEIRRA!
Mickey Rooney: „Ég var 14 ára
strákur — i 30 ár“.
Katharine Hepburn: „Stundum
velti ég þvi fyrir mér, hvort það
yfirleitt sé rétt að kona og maður
búi saman. Ef til vill væri það
betra, að þau byggju bara i sömu
götu og kæmu öðru hverju í heim-
sókn“.
Dolly Parton: „Ég hef aldrei troðið
á öðrum tii þess að koma mér
áfram. Frægðin er ekki þess
virði“.
Lee Marvin: „Ég er ákveðinn í því
að reyna að eyða öllum minum
peningum áður en ég dey, svo það
verði þá ekkert eftir til að rífast
um“.
Angie Dickinson: „Þegar maður
hefur komist yf ir það áfall að gera
sér grein fyrir þvi að vera mið-
aldra, — þá kemur annað
„sjokkið", sem sagt, maður held-
ur stöðugt áfram að eldast!"
Stuðmanna og forvitnuðumst
fyrst um bókina.
Hún hefur verið lengi í deigl-
unni hjá okkur en meginuppi-
staðan er lög sem við höfum
samið, bæði þau sem útgefin
hafa verið og ekki. Þetta er því
fyrst og fremst nótnabók sem
fólk getur gripið í á gítarinn eða
píanóið heima hjá sér“ sagði
Egill.
Hann sagði einnig að í bókinni
yrðu mikið af myndum af þeim
félögum enda fjöldi þeirra til
víða, bæði Ijósmyndir og teikn-
ingar auk þess sem matarupp-
skriftir væri að finna í henni.
Mataruppskriftir?
„Já það eru að minnsta kosti
þrír „gúrmeiar" í hljómsveitinni,
Valgeir er einn, Tómas náttúr-
lega alveg par exelance og svo
Jakob sem mest hefur gert af því
að prófa ýmsan exótískan
mat. Tómas og Valgeir verða
aftur á móti með ýmsar upp-
skriftir frá sjálfum sér“ sagði
Egill.
Fyrir utan uppskriftirnar
verða svo í bókinni smásögur frá
hverjum og einum ...“ bæði úr
bransanum og víðar“ ...svona
litlir hlutirsem hafa komið uppá.
Hvað kvikmyndina varðaði
vildi Egill sem minnst tjá sig um
innihald hennar.
Verður þetta önnur dans- og
söngvamynd?
„Það er ekki gefið upp heldur,
Þetta er bara önnur myndin sem
við gerum og við komum til með
að standa að henni allir eins og
hinni, hinsvegar er ekki komið á
hreint hver leikstýrir" sagði
hann.
Svona í lokin má geta þess að
út er komin ný plata með Stuð-
mönnum og kalla þeir hana Gráa
fiðringinn. Er blaðamaður lét
þau orð falla að þeir væru nú allir
á „góðum" aldri fyrir nafnið vildi
Egil ekki meina það .......ekki
ennþá en vissulega líður að
því“... - FRI
erlent yfirlit
■ INNAN eins og hálfs árs
eiga að fara fram þingkosningar
í Indlandi. Andstæðingar Indiru
Gandhi eru þegar farnir að
undirbúa þær og hyggjast nú
grípa til sama ráðs og fyrir þing-
kosningarnar 1977, þegar þeir
mynduðu eina allsherjarfylkingu
og unnu glæsilegan sigur.
Þeim helzt hins vegar illa á
sigrinum. Innan eins og hálfs árs
var stjórn þeirra sprungin vegna
ósamkomulags. í janúar 1980
varð að efna til þingkosninga
vegna ósamkomulags stjórnar-
flokkanna. Þá vann hinn nýi
Kongress flokkur Indiru mikinn
sigur og fékk öflugan meirihluta
á þingi.
Þrátt fyrir þennan sigur fékk
flokkur Indiru ekki nema 42.7%
greiddra atkvæða. Sigur Indiru
var, líkt og sigur Thatchers nú,
byggður á því, að andstæðing-
arnir voru sundraðir og kosn-
ingafyrirkomulagið (einmenn-
ingskjördæmi) var henni
hagstætt.
Þegar Indira vann mestan
sigur sinn, en það var í þingkosn-
ingunum 1971, fékk flokkur
hennar ekki nema 43.7%
greiddra atkvæða.
Andstæðingar Indiru draga
þá ályktun af þessum tölum, að
þeir geti sigrað Indiru nú eins og
1977, ef þeir standa saman. Það
■ Chandra Shekhar leggur blómsveig á minnismerki Gandhis að lokinni gönguferðinni, en Gandhi fór
eitt sinn í 200 mílna göngu til að mótmæla skattlagningu Breta.
Andstæðingar Indiru eru
að undirbúa samfylkingu
Formaður Janataflokksins lýkur langri mótmælagöngu
■ Desai.
er hins vegar auðveldara sagt en
gert.
í Indlandi skipta stjórnmála-
flokkarnir mörgum tugum. Meiri
hluti þeirra er staðbundinn við
ákveðin fylki. Til viðbótar koma
svo smáflokkar, sem hafa ýms
sérsjónarmið, sem ekki eru stað-
bundin. Aðeins örfáir flokkar
geta talizt flokkar á landsvísu,
þ.e. þeir hafa fylgi víðs vegar um
landið.
EINN þessara flokka er Jan-
ataflokkurinn, en hann var aðal-
kjarninn íkosningabandalaginu,
sem sigraði Indiru í kosningun-
um 1977. Flokkurinn var laus í
reipunum og forustu hans mis-
tókst bæði að halda ríkisstjórn-
inni saman og flokknum sjálfum
vegna ólíkra sjónarmiða innan
hans. Hann beið því stórfelldan
ósigur í kosningunum 1980.
Foringjar hans eru samt ekki
af baki dottnir og búa sig undir
það að reyna að sameina and-
stæðinga Indiru.
Til þess að vekja athygli á
flokknum, hefur formaður hans
Chandra Shekhar, nýlega lokið
mikilli gönguferð, sem hefur
reynzt honum veruleg auglýsing.
Hinn 6. janúar síðastliðinn
hóf hann göngu frá syðsta odda
Indlands og var ferðinni heitið
um nær endilangt Indland eða til
Nýju Delhi. Þangað kom hann
nokkru fyrir síðustu mánaðamót
og var þá búinn að ganga um
2700 mílna vegalengd.
Shekhar kom víða við á leið-
inni og hélt fundi bæði í borgum
og þorpum. Oftast var honum
vel tekið og margir urðu til þess
að fylgja honum á leið eða að
koma á móti honum. Áreiðan-
lega er Shekhar þekktari eftir
þessa göngu en áður.
í ræðum þeim, sem Shekhar
flutti í ferðalaginu, deildi hann
hart á Indiru og stjórn hennar.
Hann lýsti sjálfum sér sem hæg-
fara sósíalista, sem setti lýðræði
og jöfnun lífskjara í öndvegi.
Jafnframt hvatti hann til meira
framtaks, menntunar og vinnu.
Enn er ekki talið ljóst, hvort
Shekhar muni hafa árangur sem
erfiði. Hann er ekki mikill ræðu-
garpur. Það sópar ekki af honum
sem miklum foringja, en hann er
talinn seigur og traustur.
Shekhar hefur verið foringi
Janataflokksins síðan -1977.
Áður hafði hann verið fylgismað-
ur Indiru, en vegir þeirra skildu
1969, þegar Indira klauf Kon-
gress flokkinn í fyrra sinn.
Shekhar var 56 ára og hefur átt
sæti á þingi í 21 ár.
Annar foringi Janataflokksins
hefur vakið nokkra athygli ný-
lega. Það er hinn 87 ára gamli
öldungur, Morarji R. Desai, sem
var forsætisráðherra Indlands á
árunum 1977-1979, þegar Jan-
atabandalagið fór með völd.
í bók (The Price of Power),
sem nýlega kom út í Bandaríkj-
unum eftir einn af fyrrverandi
blaðamönnum New York Times,
Seymour Heersh, er því haldið
fram, að margir erlendir stjórn-
málaleiðtogar hafi þegið mútur
af bandarísku leyniþjónustunni
CIA. Allmargir menn eru nafn-
greindir í þessu sambandi og er
Desai einn þeirra.
Desai hefur brugðizt hart við
þessari ásökun og látið höfða
mál gegn bókarhöfundinum og
krafizt 5 milljóna dollara skaða-
bóta.
Desai er enn sæmilega hraust-
ur, þrátt fyrir aldurinn. Hann fer
venjulega á fætur klukkan fjögur
á morgnana og byrjar þá að
spinna á rokk að hætti Gandhis.
Hann neytir eingöngu ávaxta,
grænmetis og mjólkur, og fastar
hálfsmánaðarlega. Hann hyggst
taka þátt í kosningabaráttunni,
sem er framundan, ef heilsa og
líf endist. Margir eru þeir Ind-
verjar, sem líta á Desai sem einn
helzta leiðtogann í sjálfstæðis-
baráttunni.
Desai lauk háskólaprófi 1918
og gekk þá í þjónustu Breta.
Hann hætti störfum hjá þeim að
tólf árum liðnum og helgaði sig
alveg sjálfstæðisbaráttunni.
Fimm sinnum settu Bretar hann
í fangelsi og var hann samtals sjö
ár í fangelsi. Þegar Bretar slök-
uðu á klónni, hófst Desai fljótt
til valda og var um skeið forsætis-
ráðherra í Bombay-fylkinu.
Hann hlaut sæti í ríkisstjórn
Nehrus eftir að Indland varð
I sjálfstætt og var varaforsætisráð-
herra í fyrstu ríkisstjóm Indiru.
Leiðir þeirra skildu, þegar
Kongressflokkurinn klofnaði
1969.
EINS OG áður segir, er það
nú draumur foringja Janata-
flokksins að sameina andstæð-
inga Indiru fyrir næstu kosning-
ar, sem verða í síðasta lagi í
janúar 1985.
Fleiri stjórnmálaleiðtogar Ind-
lands stefna að þessu sama..
Meðal þeirra er kvikmyndastjór-
inn Rama Roa, en flokkur hans
sigraði glæsilega í fylkiskosning-
unum í Andhra Pradesh á
síðastl. vetri, og þótti það mikið
áfall fyrir Indiru. Rama Roa
boðaði nýlega til ráðstefnu fjór-
tán flokka og munu þeir ræða
áfram um samstarf.
Leiðtogi sósíaldemókrata,
Nandan Bahugana, boðaði ný-
lega til ráðstefnu sautján flokka
til þess að ræða um samstarf.
Það virðist ekki skorta áhuga
á því að flokkarnir sameinist
gegn Indiru. Þeir eru sammála
að deila á stjórn hennar fyrir
spillingu, en þegar að því kemur
að sameinast um stefnuskrá,
eykst vandinn.
Þórarinn LJj
Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar mi