Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 51
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
24
89
8
4. febrúar 10 daga ferð - 9 nætur
Jamaica
Frá 99.690 kr.*
Beint flug
Sand Castles
Sunset Jamaica Grande Resort
Glæsileg lúxusgisting
Gran Bahia Principe Jamaica
– glænýtt lúxushótel
Opnar
15. des.
2006
Allt innifalið í 10 daga - frá aðeins
119.790 kr.
Allt innifalið í 10 daga - frá aðeins
114.790 kr.
Gran Bahia Principe Jamaica – allt innifalið
Mjög gott fjögurra stjörnu hótel við ströndina í hjarta Ocho
Rios með góðri aðstöðu. Aðstaða og aðbúnaður hótelsins var
endurnýjað nýlega. Glæsilegur garður með 5 sundlaugum,
veitingastöðum, börum o.fl.. Herbergi eru með sjónvarpi, síma,
loftkælingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd. Örstutt
er í mannlífið fyrir þá sem kjósa að leita út fyrir hótelið.
Gott 3ja stjörnu hótel við ströndina, skammt frá Sunset Beach
Resort. Vel búin herbergi, með loftkælingu, sjónvarpi, síma,
öryggishólfi og ísskáp. Öll herbergi með svölum. Sundlaug,
garður, bar, veitingastaður, móttaka. Góður kostur fyrir þá
sem vilja einfaldari gistingu með minni þjónustu, en frábæra
staðsetningu og gott verð.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Stórglæsilegt og splunkunýtt fimm stjörnu glæsihótel við
ströndina í Runaway Bay. Hér finnur þú alla þá þjónustu
í fríinu sem hægt er að óska sér. Glæsilegan garð með 3
sundlaugum, barnalaugum, fjölda veitingastaða, bara, verslana,
líkamsrækt og tennisvöllum. Golfvellir og fjölbreytt sjósport
í nágrenninu. Hótelið er með 700 herbergi sem öll eru svítur
með nuddbaðkari. Öll herbergi eru með gervihnattasjónvarpi,
síma, loftkælingu, baðherbergi, öryggishólfi og svölum/verönd.
Þetta er stórglæsilegt hótel og örugglega eitt það allra besta á
Jamaica – hér er dekrað við þig í aðbúnaði og þjónustu.
Allt innifalið:
• Morgunverðarhlaðborð
• Hádegisverðarhlaðborð
• Kvöldverður (val um 5 veitingastaði)
• Innlendir drykkir
• Aðgangur að diskóteki hótelsins
• Aðgangur að líkamsrækt
• Sólbekkir, sólhlífar og handklæði
• Skemmtidagskrá á daginn og kvöldin
• Minibar m/vatn, gos og bjór (fyllt á daglega)
• Köfunarkennsla í sundlauginni (1 klst.)
• Frítt á brimbretti, tennis, báta án mótors
eða reiðhjól (í 1 klst.)
Hvað er í boði
• 5 veitingastaðir
• 5 barir
• 3 sundlaugar
• Verslanir
• Öryggishólf
(gegn gjaldi)
• Barnagæsla
• Líkamsrækt
• Heilsulind
• Barnaklúbbur
• Tennisvellir
• Fjölbreytt sjósport
• Diskótek
• Píanó bar, Karaoke bar
og sport bar
• Mótor- og reiðhjólaleiga
• Læknisþjónusta
• Golf, Runaway Bay Golf Club
• Kayakar
• Skemmtidagskrá fyrir börnin
Jamaica er ein fegursta eyja Karíbahafsins og hún býður stórkostlega náttúrufegurð og veðurfar. Á Jamaica ríkir einnig einstakt
andrúmsloft og menningin á sér vart hliðstæðu í Karíbahafinu. Sandstrendurnar eru drifhvítar og með þeim fegurstu í heimi. Eyjan
skartar náttúruperlum eins og Dunn’s fossunum, Blue Mountains og YS fossunum sem eru einstakar og láta engan ósnortinn. Reggie
tónlistin ómar allsstaðar, taktur Bob Marleys fægasta sonar Jamaica. Þeir sem hafa komið til Jamaica eru flestir sammála um að eyjan
hafi einstakt aðdráttarafl. Hún er einn þessara heillandi áfangastaða Karíbahafsins sem laða ferðmenn til sín aftur og aftur.
*) Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Sand Castles í 9 nætur. Verðdæmi eru netverð á mann m.v. í gistingu tvíbýli. Verð getur breyst án fyrirvara.
Öll herbergi eru svítur
Hin nýfrá-skilda
Britney Spe-
ars sást ný-
verið bregða
sér á salernið
á skemmtistað
í Los Angeles
ásamt meint-
um nýjum
kærasta,
Brandon Dav-
is. Brandon,
sem er erfingi
að miklum ol-
íuaðæfum, var
áður besti vin-
ur Parisar Hilton en þau tala ekki
saman eftir hatrammt uppgjör fyrr
á árinu. Er haft eftir Brandon ný-
verið að Paris sé kynþáttahatari
sem kalli svertingja öllum ljótum
nöfnum.
„Hún er kynþáttahatari og sömu-
leiðis heimsk,“ sagði Brandon og
vandaði fyrrum
vinkonu sinni
ekki kveðjurnar.
„Ég þarfnast
einskis frá
henni. Hún er
ekki lengur vin-
kona mín. Hún
er einfaldlega
ekki góð mann-
eskja.“
Brandon hefur
einnig ráðist
með miður fögr-
um orðum að
partíljóninu
Lindsay Lohan en hann sagði að
hún lyktaði af niðurgangi.
Nú er að sjá hvernig rætist úr
vinskap hans og Britney.
Mikið hefur verið fjallað ummeinta þungun áströlsku leik-
konunnar Nicole Kidman. Kidman
hefur hins vegar vísað öllum slíkum
sögusögnum á bug sem kjaftæði og
tilbúningi fjölmiðla. Kidman, sem á
tvö ættleidd börn með Tom Cruise –
hina 13 ára gömlu Isabellu og hinn
11 ára Conor, segist ekki hafa hug-
mynd um hvernig sá orðrómur
komst á kreik að hún og eiginmaður
hennar, Keith Urban, ættu von á
barni.
„Eina stundina er því haldið fram
að ég sé of mjó, þá næstu að ég sé of
feit og að það hljóti að vera vegna
þess að ég sé ólétt. Þetta er mjög
ruglingslegt allt saman,“ er haft eft-
ir Kidman á slúðurveitunni An-
anova. „Mamma hringdi í mig og
spurði mig hvort ég væri ólett. Ég
sagði henni að svo væri ekki og að
hún myndi frétta af því fyrst þegar
þar að kæmi. Og við hlógum að
þessu öllu saman því það er það eina
sem hægt er að gera.“
Stjörnuparið Madonna og GuyRitchie er sagt sækja sér hjóna-
bandsráðgjöf þessa dagana í þeirri
von að bjarga sex ára hjónabandi
sínu. Halda margir því fram að sam-
band þeirra hafi náð botninum eftir
hina umdeildu ættleiðingu malavísks
drengs, Davids Banda.
Fólk folk@mbl.is
Danski leikarinn Janus Bakrawi,sem leikur einn af leyni-
lögreglumönnunum í spennuþátta-
röðinni Erninum, fékk að vita að
persóna hans yrði látin hverfa úr
þáttunum einni viku áður en upp-
tökur hófust á hans síðasta þætti.
Mörgum dönskum sjónvarpsáhorf-
endum var brugðið þegar þeir urðu
vitni að því þegar þátturinn var
sýndur í fyrradag að hinn vinsæli
lögreglumaður Nazim Talawi féll
fyrir byssukúlu leyniskyttu þegar
hann og félagar hans eltu uppi serb-
neska stríðsglæpamenn í Berlín. Það
er ekki á hverjum degi sem ein af að-
alpersónunum í dönskum fram-
haldsþáttum er tekin af lífi. Bak-
rawi, sem hefur verið hægri hönd
Hallgríms lögregluforingja og vinur,
var brugðið þegar hann fékk sent
handritið að sínum síðasta þætti.
„Mér varð bilt við og hringdi strax í
Jens Albinus (Hallgrím) og spurði
hvort hann vissi hvernig á þessu
stæði. Ég spurði sjálfan mig hvort
ég hefði ekki staðið undir vænt-
ingum og hvort þeir vildu með öllum
ráðum losna við mig úr þáttunum.
Við Jens komumst síðan að þeirri
niðurstöðu að það væri í rauninni
mjög tilhlýðilegt að kveðja Nazim.
Hann deyr eins og hetja á vettvangi
í örmum síns besta vinar.“
Bakrawi hafði afþakkað mörg til-
boð um hlutverk vegna leiks síns í
Erninum, m.a. draumahlutverk í
kvikmynd Davids Cronenbergs,
Eastern Promises.