Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1997, Blaðsíða 10
Ólafur Laufdal náði því aldrei að verða aflakóngur, til þess var sjó- mennskuferillinn of stuttur. Ungur lærði hann framreiðslu og varð seinna veitingakóngur ár eftir ár. Ólafur hefur enn taugar tíl sjómennskunnar þótt áratugir séu liðnir síðan hann hætti til sjós. ✓ n Fylgist enn með aflafréttum 'lafur Laufdal er fæddur í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Eins og hjá strákum í sjávarplássum vom bryggjurnar aðal leiksvæðið. í kringum bátana var alltaf nóg að gera. „Ég byrjaði að gella mjög ungur og varð fljótt einn sá harðasti í bransanum. Sex ára átti ég minn eigin gelluvagn, gekk í hús og seldi. Kílóið kostaði krónu en hvert stykki tíu aura,” segir Ólafur eða Óli eins og hann er yfirleitt kall- aður. „Þar sem ég lifði og hrærðist í kringum bátana lærði ég mjög fljótt að þekkja þá á vélarhljóðinu.“ Óli fór fyrst á sjó fjórtán ára gamall. Þá réði hann sig á olíuskipið Kyndil sem fór á hvert krummaskuð á landinu með olíu og bensín. Annað slagið var Iestað lýsi á höfn- unum. Hann réði sig sem 2. kokk og eyddi jólunum um borð. „Við fórum út á Þorláks- messu og komum ekki aftur fyrr en eftir þrettándann. Ég man að tilfinningin að vera í fyrsta sinn að heiman um jól var blendin. Við fengurn jóla- pakka frá kvenfélaginu sem í voru sokkar, vettlingar eða aðrir nauðsynlegir hlutir,“ segir hann. „Þessi jól voru ekki rnjög hátíðleg eins og maður hafði vanist. Menn köstuðu rétt kveðju á hvorn annan og héldu sig síðan inni í klefa. Kannski að hugsa heim til fjölskyldunnar." Fyrsti túrinn á Kyndli var unglingnum Óla nokkuð erf- iður vegna sjóveiki. Hann gafst samt ekki upp og hélt áfram, skipstjóranum til nokkurar furðu. SÍLDARKOKKUR Á SUMAR- VERTÍÐ Næsta ár á eftir, eða árið 1959, réði ÓIi sig sem kokk á Sjöstjömuna frá Vestmanna- eyjum. Sjöstjaman var á síld- veiðum og mikið happ að komast á slíkan bát. Axel Sig- urðsson, bryti á Kyndli, hafði gefið honum meðmæli og í þeim fólst að hann ætti að vera fær um að kokka ofan í kallanna á sumarvertíð. „Við vorum flutt til Reykja- víkur og ég kom út í Eyjar með Herjólfi um vorið. Fyrsta máltíðin í höfninni var bjúgu og uppstúf. Kallarnir sögðu mér síðar að þeim hefði of- boðið matreiðslan og ætluðu að losa sig við mig,“ segir Óli og hlær. „Reyndar höfðu tvær Reyndar höfðu tvær konur boðið sig fram í þetta starf mitt og auð- vitað fannst þeim þær meira spenn- andi en fimmtán stráklingur. Ég fékk fullan kokkahlut eða einn og kvart. konur boðið sig fram í þetta starf mitt og auðvitað fannst þeim þær meira spennandi en fimmtán stráklingur. Ég fékk fullan kokkahlut eða einn og kvart. Einn skipsfé- lagi minn sem hafði verið há- seti í yfir 50 ár sagðist aldrei hafa orðið vitni að öðru eins óréttlæti eins og því að óharðnað- ur unglingur bæri meira en hann úr býtum. Svona voru bara samningamir og ég held að ég hafi bara staðið mig nokkuð vel. Mér tókst að þróa mig frá bjúgunum." Bátar þess tímar voru ekki búnir neinum þægindum, segir Óli. Engin sturta, ekkert klósett og eldavélin í lúkarn- um þar sem menn sváfu líka. Engar matvælageymslur voru um borð og þaðan af síður kælar og frystar. Salt- kjötstunnan var geymd rétt við lúkarinn. Hundruð kalla í bað Helstu hafnir voru Siglu- fjöröur og Raufarhöfn. í land- 10 Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.