Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 14
10
BÚNAÐARRIT.
ast í húsin. Safnist raikið tað í húsin, veitir varla af,
að hafa tvær rimlaraðir. Rimlarnir þurfa að vera vel
heflaðir og raðalausir þeim megin, sem fram í húsið veit.
Garðastokkar og garðabönd mega ekki vera með hvöss-
um röðum, og hvergi standa út úr þeim flísar eða naglar.
Dyr sé siétt hiaðnar úr grjóti neðan til, eða þá með
rimlum, og eigi mega vera skarpar raðir á dyrastöfum.
Ætíð verður að sjá um, að fé ryðjist ekki um of að
dyrum, og eigi só um of þröngt í húsum.
En hæfllegt er húsrúm í garðahúsum og einstæðu-
húsum, þegar tvær kindur geta mæzt, en fjórar í tví-
stæðuhúsum, íyrir aftan þær kindur, sem éta, án þess
þó, að þrengja hver að annari. Þegar hornin eru löng
á sauðkindum, er hætt við, að þær reyti með þeim ull
af sér og öðrum kindum. Ætti því ætið að horntaka
(hornskella) féð, og um leið jafna með hníf fyrir endana
á hornunum. Aldrei má siga þeim hundum á sauðfé,
sem eru gjarnir á að hanga í ullinni, og ekki heldur
reka kindur hart í ófærð, ef annars er kostur, því að
þá er þeim hætt við, að stíga í uliina og slíta hana af
sér. Ef taka þarf fó eða leiða, þarf að fara sem gæti-
legast að því. Þegar sauðkind er tekin, og ef ekki er
hægt að grípa í horn, þá á helzt aö taka framan undir
annan bóginn neðan til, því að það tak heftir mest
ganginn, og getur kindin því neytt minsts boimagns.
Ef þessu takí verður ekki náð, þá að grípa utan um
afturfót, fyrir ofan hækil; náist hvorugt þetta tak,
verður samt að reyna að ná sem fremst í kindina, og
taka sem mest af ull í heudina. Þurfi að leiða kind,
og ef hún er svo óþekk, að hún leiðist ekki á hornun-
um, þá er réttast að leiða hana á milli fóta sinna og
halda báðum höndum lauslega utan um bógana. Kindin
lokkast þá oft til þess að ganga, en taki hún viðbragð,
getur hún lítið neytt síu, ef tökin eru á þessum stað.
Oft er ull slitin af sauðfé, einkum þegar tekið er í lít-
inn lagð aftan til á kindinni, því eftir því sem takið er