Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 146
142
BÚNAÐARRIT.
hentugum stað fyrir þessar sveitir, og þar sem þægilegt
væri að ná vatni til þess að reka búið með.
Jafnvel þó nú að þessi búnaðarbreyting (að haát
var fráfærum) hafi valdið miklu um starfsemi smjör-
búanna og stofnun nýrra, búa, þá ei- þó rangt að segja,
að það sé eina ástæðan fyrir því, hvað smjörgerðinni
hefir miðað hægt áfram síðustu árin. Það er fleira sem
því veldur. Ilinar rótgrónu erfðasyndir vorar, svo sem
samtakaleysi, tortryggni og ósamheldni, eiga líka sinn
þátt í því. Flokkspólitíkin, jafn heimskuleg sem hún er,
þegar ált snýst um nöfn og menn, hefir jafnvel smeygt
sér inn í smjörbúafélagsskapinn á einum stað, og gert
sitt til að spilla honum þar.
Það er engum minsta vafa undirorpið um sum búin,
sem eiga nú einna erfiðast uppdráttar, að þau hefðu
getað og gætu starfað með meir-i og betri árangri en
þau gera, þiátt fyrir fráfærnaleysið, ef félagskapur og
samtök hefðu frá upphafi verið í góðu lagi. Ailar ytri
ástæður benda á það. Þau eru vel sett, vegir að þeim
greiðir, samgöngur í góðu lagi, og þar af ieiðandi auð-
velt fyrir menn að vera í þeim og nota þau. Þannig
er því t. d. varið um Gufárbúið og Frambúið í Skaga-
firði. Svipað má og segja um búið í Dölunum. Það
lá eða liggur þar á krossgötum, og að því liggja vegir
úr þremur áttum. — í Gufárbúinu gæti verið, ef sam-
tökin væru góð, allur Borgarhreppur, eða það afhonum.
sem ekki er í Hvítárvallabúinu, Stafholtstungurnar og
jafnvel eitthvað af bæjum í Álftaneshreppi. Búið er
rétt við þjóðveginn, sem liggur um Borgarhreppinn og
upp í Stafholtstungur, og í sambandi við hann er vegur
vestur Mýrarnar.
Að Frambúinu gæti sótt allur Staðarhreppur, Seilu-
hreppur og bæirnir í Skarðshreppi út að Sauðá. — Þá
er hægt aðstöðu til sóknar að Möðruvallabúinu. Þangað
mætti senda rjóma úr öllum Hörgárdalnum, allri Kræk-
lingahiiðinni og Þelamörkinni. Gæti það bú verið með