Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 223
BÚNAÐARRIT
219
fargið ofan á því er óvanalega mikið, um 250 & á ten.
alin. Heyið er gefið kúm og ézt mjög vel. Þrír búend-
ur hér í sýslu grófu gryfjur í sept.-rosanum og létu ný-
slegið hey í þær, en ennþá hefi eg ekki frétt hvernig
það hefir verkast.
Frá Guðjóni bónda Jónssyni í Ási í Rangárvallasýslu.
1910, 7/2- Stærð gryfjunnar er 7X5 fet (á miðju),
7 fet á dýpt. Látnir í hana 6. ág. f. á. 22 hestar af tæplega
grasþurru heyi. Eftir 5 daga bætt i hana 10 hestum,
og var hitinn þá um 50°, er hélst með litlum breyting-
um til 24. s. m. Eftir það fór hann minkandi, og var
10. sept. ekki nema 30°. Enginn aðkomandi maður var
við, er látið var í gryfjuna.
í haust, er fargið var tekið af heyinu, var góð verk-
un í þvi, en það geymdist illa, er bæði var þvi að kenna,
hvað það var lítið, og umbúnaðurinn ekki eins góður og
þurfti að vera.
Að þessu sinni var tilraunin í svo smáum stíl sök-
um þess, að eg vissi ekki fyr en svo seint um hana (26.
júlí), og eg því að engu leyti undir hana búinn, einkum
að því er fargið snertir, en dýrt og erfitt að afla þess
um þann tíma árs.
1912, 2%. Fyrst látið í gryfjuna 30. júlí f. á. Eftir 3
daga var hitinn kominn upp í 40°, og hélst hann þannig
með litlum breytingum til 28. ág. Það sem látið var
í gryfjuna 30. júlí var taða, en 10. ág. var bætt
stör í hana. Það sem látið var í gryfjuna mun hafa
verið sem næst 30 — 35 hestar af þurru heyi. — Heyið
er að mínu áliti vel verkað og ézt mjög vel.
Frá Ágúst bónda Helgasyni í Birtingaholti i Árnessýslu.
1910, 16 2. Hinn 7. ágúst í sumar sem leið tók eg
nýslegna háartöðu til súrheysverkunar. Gryfjan, sem lát-
ið var í, er gömul súrheysgryfja, þaklaus, hlaðin innan
úr mýrartorfi, 6 áln. á lengd, 4 áln. á br. og 3 áln. á