Hlín - 01.01.1917, Page 54

Hlín - 01.01.1917, Page 54
52 Hlin land, nema lagið við þjóðsönginn enska, sem er hið sarna og við „Eldgamla ísafold". Jeg dvaldi svo nm tíma í Edinborg og skoðaði stað- inn og fólkið. Margt sá jeg auðvitað nýstárlegt og ólíkt því sem hjer er lieima og óþekt, en mjer fanst jeg venj- ast öllu furðu fljótt, og undir eins verá orðin heima hjá mjer, og ekkert finnast merkilegt eða mikilfenglegt það sem fyrir augun bar. Tvent var það þó, sem jeg altaf dáðist að fram á síðasta daginn, sem jeg dvaldi í landinu og það var: Lipurðin í afgreiðslu í öllu viðskiftalífinu og — jurtagróðurinn. Jeg man t ,d. einu sinni, að jeg var stödd niður við skipakvíar og sá fermt kolaskip. Mjer varð ósjálfrátt að l)era Jiað saman við afgreiðslu skipanna hjerna heima, eða við Jrað, að stúlkurnar á Isa- firði og í Reykjavík voru til skamms tíma, og eru máske enn, látnar bera kolin úr skipunum í pokum á bakinu. Þarna kom heil lest af kolavögnum á járnbraut og nam staðar, þegar fyrsti vagninn var kominn fram í nokkurs- konar lyftivjel. Þá var sá vagn losaður frá, vjelin lyfti honum fram yfir opið á lestinni og steypti þar úr hon- um ,fór svo í samt lag aftur, tómi vagninn rann úr henni út á járnbraut hinum megin, næsti vagn kom inn og svo koll af kolli uns allir vagnarnir voru tæmdir. Og þarna heyrðust engin óp, óliljóð eða gauragangur, og þó stjórnuðu þessu auðvitað margir menn, sem allir urðu að vera samtaka. Jeg minnist þess að hafa verið viðstödd, J)ar sem reka átti 30 lömb út í kvísl, J)ar börðu menn sig utan og hóuðu og hljóðuðu og stóðu svo gleitt, að lömbin runnu út á rnilli fóta þeirra, jafnóðum og þau voru rekin að. Hver sem hefði sjeð þetta tvent í einu og dæmt eftir fyrirhöfninni, sem virtist vera fyrir hvoru um sig, hefði hlotið að álíta mun erfiðara verk að reka lömbin í kvíslina en ferma kolaskipið. Jeg segi ekki frá Jsessu, af því að nrjer detti í hug að halda því fram, að fje lijer sje ætíð rekið með þessum ósköpum, heldur af því mjer flaug þetta í hug, þegar

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.