Fréttablaðið - 16.12.2011, Blaðsíða 64
16. desember 2011 FÖSTUDAGUR44
MORKINSKINNA
Morkinskinna er mikið konungasagnarit frá fyrri hluta 13. aldar og
greinir frá þeim konungum sem ríktu í Noregi eftir fall Ólafs helga á
Stiklarstöðum árið 1030. Ritið mun í öndverðu hafa náð fram að valdatöku
Sverris Sigurðarsonar seint á 12. öld, en niðurlagið er glatað. Hér er á ferð
elsta rit þar sem saga margra konunga er rakin ítarlega.
Morkinskinna er hér í fyrsta sinn gerð aðgengileg íslenskum almenningi,
með ítarlegum formála og skýringum. Myndir og kort prýða útgáfuna.
Við óskum þeim Ármanni Jakobssyni og Þórði
Inga Guðjónssyni til ham ingju með tilnefninguna.
Nánari upplýsingar um heildarútgáfu Íslenzkra
fornrita er að finna á www.hib.is
TVÖ NÝ BINDI
ÍSLENZKRA FORNRITA
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er í
helgarblaði Fréttablaðsins
Litla skrímslið er
mjög líkt mömmu
sinni en segir hana
stundum hrjóta eins
og grjótmulningsvél.
Stóra skrímslið býr
hjá pabba sínum
sem er frábær
sundkappi.
Bækur ★★
Sagan sem varð að segja
Þorfinnur Ómarsson og Ingimar H. Ingimarsson
Veröld
Kusk á hvítflibba
Flestir tengja Ingimar Hauk Ingimarsson við Björgólfsfeðga. Hann er mað-
urinn sem heldur því fram að þeir hafi svikið af honum rússnesku bjórverk-
smiðjuna sem gerði þá ríka. Því hefur ríkt nokkur eftirvænting eftir ævisögu
hans.
Saga Ingimars er um margt merkileg. Hann er mikill ævintýramaður og
hefur farið víðar en flestir í alþjóðlegu viðskiptalífi. Áhrif hans á íslenskan
arkitektúr og sýn hans á það fag og umgjörð þess eru áhugaverð. Það er
líka skemmtilegt að lesa um mann sem hefur náð miklum árangri á sínu
sérsviði en ákveður að yfirgefa öryggið til að hella sér út í óræð, og oft á
tíðum tilviljunarkennd, viðskipti í fjarlægum löndum sem fæstir myndu fara
til í frí, hvað þá til að stunda viðskipti. Þetta er helsti kosturinn við sögu
Ingimars. Ævintýramennskan.
Sagan er þó á köflum afar brotakennd. Miklu púðri er til að mynda eytt
í að leggja áherslu á hversu mikið æska hans, og sérstaklega samband við
móður, hafði áhrif á það hvers konar maður hann varð. Þetta kemst illa
til skila og lesandinn er í raun engu nær eftir fyrsta hluta bókarinnar um
hvaða þættir í persónuleika hans mótuðust svona mikið á þessum upp-
hafsárum. Ingimar er mjög áfram um að koma því til skila að í honum búi
tveir persónuleikar, Ingimar annars vegar og Haukur hins vegar. Annar er
frjór og fullur, hinn er skipulagður og edrú. Á bak við þessa skilgreiningu er
greinilega djúp greining en henni er ekki komið nægilega skýrt á framfæri.
Fyrir vikið verða tilvitnanir í þessa tvo persónuleika mun frekar til þess að
rugla lesandann en að veita honum skýrari sýn á manninn Ingimar Hauk.
Í gegnum alla söguna er mikið af endurtekningum. Á það jafnt við um
atburði og ekki síst upplifanir og skoðanir Ingimars á þeim. Ég veit ekki
hvort þetta var gert með vilja til að undirstrika ákveðin atriði eða hvort
þetta er yfirsjón í yfirlestri. Hvort sem er þá er þetta hvimleitt.
Þegar komið er í þann hluta bókarinnar sem snýst um alþjóðleg viðskipti
Ingimars virðist honum umhugað að koma því á framfæri að hann sé stað-
fastur prinsippmaður sem standi fyrir heiðarleika í viðskiptum. Samt vílar
hann ekki fyrir sér að eiga viðskipti við herforingjastjórn í Bangladess, nýta
sér viðskiptasambönd fyrrverandi áhrifamanna innan Kommúnistaflokksins
í Austur-Þýskalandi, að beinlínis múta háttsettum embættismönnum í
Rússlandi með glansgjöfum til að smyrja fyrir framgangi viðskiptagjörninga
í landinu og fara í flugrekstur með landflótta Ródesíumönnum (síðar Sim-
babve) sem virtust ekki miklir áhugamenn um lög og reglur. Þá er Ingimar
tamt að klína öllu sem aflaga fer í viðskiptum hans á gagnaðilana eða aðra
utanaðkomandi þætti. Lesandinn fær það á tilfinninguna að hann telji ansi
marga hafa ástæðulaust horn í síðu hans.
Það má kannski segja að það sé eitt helsta aðdráttarafl bókarinnar.
Mennirnir sem sviku Ingimar. Hvort sem þeir eru aldnir danskir starfsmenn
SAS, kostulegir íslenskir ráðherrar, rússneskir embættismenn eða Björgólfs-
feðgar. Ég hefði kosið að frásagnir af viðskiptum Ingimars við þessa aðila
hefðu verið meira upplýsandi, í stað þess að undirstrika einungis hversu illa
var farið með hann. Ævisögur eiga enda að svara spurningum. Mér fannst
þessi þó skilja eftir ansi margar sem er ósvarað. Þórður Snær Júlíusson
Niðurstaða: Áhugaverð saga en brotakennd frásögn skilur eftir margar
spurningar sem er ósvarað.
Tónlist ★★★★
Rhizoma
Anna Þorvaldsdóttir
Innova
Eitraður sætleiki
Ég verð að viður-
kenna að undan-
farið hef ég hrifist
æ meira af tónlist
Önnu Þorvalds-
dóttur. Undir kyrru
yfirborðinu er eitt-
hvað dularfullt sem
grípur mann, eins og
öll góð list á að gera.
Á nýútkomnum geisladiski er
að finna þrjú stór verk eftir Önnu,
Hrím, Dreaming og Streaming
Arrythmia. Inn á milli eru styttri
tónsmíðar.
Tónlistarflutningurinn er flottur,
hvort sem það er Caput-hópurinn,
Sinfóníuhljómsveit Íslands eða
slagverksleikarinn Justin DeHart.
Stemningin í tónlistinni skilar sér
fullkomlega. Hún er ávallt myrk, en
myndræn. Ég gæti vel ímyndað mér
tónlistina í samhengi við kvikmynd,
og þá væntanlega um eitthvað
skelfilega óhugnanlegt. Þar er ís og
kuldi, og óteljandi skuggar. Áferðin
er fínleg. Allskonar smáatriði, sam-
spil ólíkra radda, hrynjandi sem
örlar á, fjarlægur niður; þetta er
nostursamlega unnið og fagurlega
samsett. Útkoman er hrífandi skáld-
skapur. Það fer um mann ljúfur
hrollur þegar tónlistin er leikin.
Mér liggur við að vitna í rússneska
tónskáldið Alexander Skrjabín, sem
sagði að spila ætti tiltekið verk eftir
hann með eitruðum sætleika. Ein-
hvernvegin þannig er tónlistin eftir
Önnu. Jónas Sen
Niðurstaða: Mögnuð, myrk
tónlist.
ANNA ÞOR-
VALDSDÓTTIR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN LÍFIÐ SJÓNVARP
TAKTU VÍSI Á
HVERJUM MORGNI!
Spænski listamaðurinn Santiago
Sierra, einn róttækasti myndlist-
armaður samtímans, verður með
sýningu í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi fljótlega eftir áramót.
Listamaðurinn er væntanlegur til
landsins af þessu tilefni, en gjörn-
ingar hans hafa vakið gríðarlega
athygli þar sem hann fer og má
gera ráð fyrir að borgarbúar fari
ekki varhluta af þeim. Á sýning-
unni í Hafnarhúsi verður í fyrsta
sinn á heimsvísu sýnt heildar-
safn allra heimildarkvikmynda og
-myndbanda Sierra.
Verk Sierra eru þekkt fyrir að
hneyksla og þau ganga iðulega
þvert á velsæmishugmyndir fólks.
„Hann hefur greitt vændiskonum
með heróíni fyrir að láta húðflúra
beina línu yfir bakið á þeim og
eiturlyfjaneytendum fyrir að láta
raka tíu sentimetra rák af hárinu
af þeim. Hann hefur fengið verka-
menn til að bera þunga hluti fram
og til baka í algjöru tilgangsleysi og
aðra hefur hann lokað inni í pappa-
kassa í kæfandi sumarhitum. Hann
hefur fengið fjölda manns til kyn-
lífsathafna og sem fulltrúi Spánar
á Feneyjatvíæringnum 2003 mein-
aði listamaðurinn öllum nema lönd-
um sínum aðgang að spænska skál-
anum. Allir þessir gjörningar og
fleiri verða sýndir í Hafnarhúsinu.
Sierra er sakaður um að færa
sér í nyt bágbornar aðstæður und-
irmálsfólks með því að greiða því
fyrir þátttöku í verkum sínum með
aðgerðum sem margir telja mjög
vafasamar. En tilgangur Sierra er
ekki að hneyksla heldur að varpa
ljósi á viðteknar hugmyndir manna
um ójöfnuð og misskiptingu innan
samfélagsins,“ segir í fréttatil-
kynningu safnsins.
Sierra stundaði nám í heima-
borg sinni Madrid og síðar í Ham-
borg. Að námi loknu flutti hann til
Mexíkó, þar sem hann bjó í fjór-
tán ár og hafði sú dvöl afgerandi
áhrif á afstöðu hans til listarinnar
og samfélagsins. Sierra býr nú og
starfar í Madrid.
Húðflúraði vændis-
konur fyrir heróín
UMDEILDUR Tvö listaverka Sierra, sjálfsmynd til vinstri og mynd úr gjörningi þar sem
vændiskonur voru húðflúraðar og fengu heróín að launum, til hægri.