Morgunblaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.03.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011 Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Jón Ólafur Jónsson, eða Nonni Mæju eins og hann er kallaður, var í gær útnefndur besti leik- maður í umferðum 12-22 í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik. Jón Ólafur er einn lykilmanna í liði Íslands- og bikarmeistara Snæ- fells og í 11 síðustu leikjum Snæ- fellinga í deildarkeppninni skoraði hann 20,6 stig að meðaltali í leik, tók 10,1 frákast og átti 1,8 stoð- sendingu. Jón Ólafur var valinn í úrvalslið umferða 12-22 en aðir í því liði eru Pálmi Freyr Sigurgeirsson, Snæfelli, Pavel Ermolinskij, KR, Marcus Walker, KR, og Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Keflavík. Hrafn Kristjánsson, KR, var valinn besti þjálfarinn, Helgi Rafn Viggósson, Tindastóli, mesti dugn- aðarforkurinn og Sigmundur Már Herbertsson besti dómarinn. „Ég væri að ljúga því ef ég segði ekki að þetta val sé ákveð- inn heiður. Það er gaman af fá svona viðurkenningu og auðvitað eiga samherjar mínir þátt í henni,“ sagði Jón Ólafur Jónsson við Morgunblaðið. Snæfellingar hafa farið mikinn á körfuboltavellinum síðustu miss- erin en þeir urðu Íslands- og bik- armeistarar á síðustu leiktíð og stefna á að endurtaka leikinn í ár. „Þetta var hrikalega skemmti- legt í fyrra og maður yrði illa svekktur að fá ekki að upplifa þá tilfinningu aftur. Við stefnum að sjálfögðu á að fara alla leið. Á þessu tímabili hefur sóknarleik- urinn verið mjög góður hjá okkur en vörnin hefur ekki verið eins sterk hjá okkur í ár og hún var í fyrra. Við verðum að bæta vörn- ina og ef okkur tekst það þá höf- um við alla burði til að vinna tit- ilinn. Það verður ekki vanmat hjá okkur gagnvart Haukunum. Við tökum þá leiki mjög alvarlega. Ég held að Keflavík og KR verði öfl- ug í úrslitakeppninni og Njarðvík- ingarnir hafa verið að styrkja sig. Þetta verður örugglega frábær úr- slitakeppni,“ sagði Jón Ólafur en úrslitakeppnin hefst á fimmtudag- inn . „Þurfum að bæta vörnina“ Morgunblaðið/Kristinn Bestur Jón Ólafur Jónsson er lykilmaður hjá Íslandsmeisturum Snæfells.  Jón Ólafur Jónsson bestur í seinni hluta úrvalsdeildarinnar í körfubolta VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Húnvetningurinn Guðrún Gróa Þor- steinsdóttir hafði nóg fyrir stafni síð- astliðinn laugardag. Framan af degi keppti hún á Íslandsmótinu í kraft- lyftingum í Reykjanesbæ en seinni partinn lék hún fyrsta leikinn í um- spili KR og Snæfells um sæti í undan- úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta. Hún rétt náði að skola af sér „hveitið“ og skipta um föt fyrir leikinn. „Leikurinn átti að fara fram klukk- an 17:30 en því var breytt með dags fyrirvara og þess í stað var hann sett- ur á klukkan 16. Ég var hins vegar ennþá stödd í Njarðvík klukkan 14. Ég var sú eina í liðinu sem var ekki ánægð með breytinguna á leiktím- anum,“ sagði Guðrún og hló þegar Morgunblaðið hafði samband við hana í gær. Guðrún Gróa er fyrst og fremst þekkt fyrir körfuknattleik en var lið- tæk í frjálsum íþróttum á yngri árum á Reykjum í Hrútafirði en þess má geta að hún er systir Helgu Mar- grétar Þorsteinsdóttur sjöþraut- arkonu. Kraftlyftingar fyrripartinn og gætti Martin seinnipartinn Guðrún varð Íslandsmeistari með KR síðastliðið vor og var kjörin besti varnarmaður deildarinnar en hún fær oft það hlutverk að halda snjöllustu sóknarmönnum andstæðinganna í skefjum. Hún var aftur í eldlínunni í Stykkishólmi í gærkvöld þegar annar leikur liðanna fór fram. Í liði Snæfells er líklega snjallasti leikmaður deild- arinnar, Monique Martin, og Guðrún fékk það hlutverk að halda henni niðri á laugardaginn. Er það ekkert stór- mál að taka þátt í Íslandsmótinu í kraftlyftingum fyrri part dags og valda Monique Martin seinni partinn? „Þegar ég kom í Frostaskjólið hugsaði ég með mér að þetta væri í góðu lagi og ég fann ekkert fyrir lyft- ingunum. Þegar ég ætlaði hins vegar að keyra upp að körfunni í fyrsta skipti í upphitun virkuðu fæturnir bara ekki. Ég var því nokkuð lengi að koma mér í gang. Þetta slapp til en er ekki til eftirbreytni.“ Setti Íslandsmet Ekki þarf að fylgjast lengi með Guðrúnu á körfuboltavellinum til að sjá að þar fer mikill íþróttamaður Hún hefur styrkt sig talsvert á und- anförnum árum en hingað til hafa flestir talið að það væri gert til þess að vera öflugri í körfunni. Málið er þó ekki alveg svo einfalt. „Ég hef lengi lyft lóðum samhliða körfuboltanum og fyrst var það gert til þess að verða betri í boltanum. Eins og ég hef verið að lyfta und- anfarið hefur það ekki beint hjálpað mér í körfunni. Ég hafði stefnt á þetta mót nokkuð lengi og unnið að því. Ég veit hins vegar ekki hvað ég geri í framhaldinu en ég er alla vega komin í pásu frá lyftingunum fram yf- ir úrslitakeppnina í körfunni,“ út- skýrði Guðrún og segir það ekki ákjósanlegt að keppa á móti í kraft- lyftingum þegar úrslitakeppnin er að hefjast. „Ég ákvað að taka áhættuna. Ég vissi af þessu móti löngu áður en ég vissi hvernig leikjaniðurröðun væri í körfunni. Þjálfari minn í lyftingunum, Ingimundur Björgvinsson, hafði sagt mér frá mótinu og ég ákvað að slá til. Ég krosslagði fingur og vonaðist til þess að þetta myndi ekki stangast á. Þetta rétt slapp þó ég hafi ekki átt minn besta leik eftir mótið,“ sagði Guðrún en KR sigraði 80:61 og Moni- que Martin skoraði 23 stig sem telst ekki sérlega mikið á hennar mæli- kvarða. Guðrún var jafnframt sátt við árangur sinn í mótinu þar sem hún lyfti samtals 415 kílóum. Guðrún setti raunar Íslandsmet í hnébeygju í 84 kg flokki þegar hún lyfti 167,5 kg. Guðrún hafði aðeins einu sinni keppt áður á lyftingamóti en hún tók þátt í Íslandsmótinu í bekkpressu í janúar á þessu ári. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvernig þjálfarar KR, Hrafn Krist- jánsson og Baldur Ingi Jónasson, tóku þessu uppátæki Guðrúnar? Reyndi að fela marblettina „Ég hef nú ekki auglýst það mikið að ég sé í lyftingunum og ég reyndi að fela marbletti eftir lyftingabúnaðinn þegar ég mætti á æfingar. Ég varð hins vegar að segja Hrafni frá því að ég ætlaði að keppa á lyftingamóti á leikdegi og hann var náttúrlega alls ekki sáttur. Hann sagði að þetta væri ákvörðun sem ég yrði að taka sjálf. Þar sem ég hafði stefnt að þessu lengi og lagt mikið á mig fannst mér ég skulda sjálfri mér það að keppa,“ sagði Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir ennfremur við Morgunblaðið. „Ekki til eftirbreytni“  Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir keppti í kraftlyftingum og körfubolta sama daginn  Rétt náði að skola af sér hveitið og skella sér í KR-búninginn í tæka tíð Morgunblaðið/Árni Sæberg Kraftmikil Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir þykir einn besti varnarmaðurinn í körfuboltanum hér á landi og er í stóru hlutverki hjá KR. Hún sýndi á Íslandsmótinu í kraftlyftingum á laugardaginn að krafturinn er fyrir hendi. FH-ingurinnÓðinn Björn Þor- steinsson hafn- aði í 3. sæti í kúluvarpi á al- þjóðlegu innan- húsmóti í Vaxjö í Svíþjóð um helgina og flaug kúlan 19,40 metra. Óðinn hjó þar nærri sínum besta árangri. Hans besti árangur innanhúss er 19,50 frá því í fyrra en kastið um helgina er lengra en hans besta utanhúss sem er 19,37 metrar. Daninn Kim Christensen sigraði á mótinu með kast upp á 20,30 metra sem er tals- verð bæting hjá honum. Christen- sen æfir undir handleiðslu Vé- steins Hafsteinssonar .    Christian Zeitz, þýski landsliðs-maðurinn í handknattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við Þýskalands- og Evrópumeist- ara Kiel og gildir samningur hans til ársins 2014. Zeitz er 30 ára gam- all og kom til Kiel frá Kronau- Östringen árið 2003. Hann er næstleikjahæsti leikmaður Kiel og hefur sex sinnum hampað þýska meistaratitlinum með liðinu, hefur unnið bikarinn í þrígang og Meist- aradeildina tvívegis.    Kiel hefur augastað á sænskalandsliðsmanninum Niclas Ekberg og staðfestir Alfreð Gísla- son, þjálfari Kiel, það í samtali við sænska blaðið Aftonbladet. Sænsk- ir leikmenn hafa verið mjög áber- andi í liði Kiel en alls hafa 16 Svíar leikið með liðinu frá árinu 2000. Þeirra á meðal eru Staffan „Faxi“ Olsson, Magnus Wislander og Stef- an Lövgren. Þrír Svíar leika með liði Kiel í dag en það eru þeir Mar- cus Ahlm, Henrik Lundström og Kim Andersson. Ekberg er 22 ára gamall. Hann er á mála hjá danska liðinu AG Köbenhavn en samn- ingur hans við félagið rennur út í sumar.    Borðtenn-ismenn í Hollandi ráða ekkert við Ís- landsmeistarann Guðmund E. Stephensen. Guðmundur leik- ur á fyrsta borði hjá hollensku meisturunum Zoetermeer og vann tvo örugga 3:0 sigra í viðureign gegn Paypro DTK á sunnudaginn. Zoetermeer sigraði Paypro 6:1. Guðmundur mætti fyrst Kamil Tomaszuk og sigraði 11:5, 11:9 og 11:9. Í síðari viðureigninni mætti Guðmundur Pepijn Leppers og sigraði 11:6, 11:7 og 11:5. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.