Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2006, Blaðsíða 17
DV Sport MÁNUDAGUR W.APR/L2006 17 áwbiín I Úrslitaeinvígið um íslandsmeistaratitil karla í körfubolta hófst á laugardaginn Valur sparaði Skallagrímsliðið fyrir leik tvö Njarðvíkingar eru komnir 1-0 yfir í úrslitaeinvíginu um íslands- meistaratitil karla í körfubolta eft- ir öruggan 19 stiga sigur, 89-70, á Skallagrími í Ljónagryfjunni. Njarðvikingar hafa þar með unnið þrjá leiki í röð í úrslitakeppninni og eru komnir einu skrefi nær þvi að vinna þrettánda íslandsmeistara- titil félagsins frá upphafi. Brenton Birmingham (14 stig, 6 fráköst, 6 stoðsendingar, 5 stoln- ir) og Friðrik Stefánsson eru báðir að spila gríðarlega vel þessa dag- ana en það er þó einkum liðsheild- in sem er að skila þessum góðum sigrum enda eru margir leikmenn liðsins að skila sínu í vörn sem sókn. Sjö leikmenn skoruðu 9 stig eða meira í þessum leik og það er óhætt að segja að liðið sé að vaxa og eflast með hverjum leiknum. Líkt og í þriðja leiknum gegn Keflavík var eins og Valur Ingi- mundarson, þjálfari Skallagríms, hefði ákveðið að gefa frá sér leik- inn og spara liðið sitt fyrir heima- leikinn á mánudaginn sem verð- ur þá þriðji leikur liðsins á aðeins fimm dögum. Byrjunarliðið spil- aði til dæmis í aðeins 97 mínútur í þessum leik og ungu strákarnir í liðinu fengu að spreyta sig á stór- um köflum. Skallagrímur tapaði umrædd- um þriðja leik undanúrslitanna gegn Keflavík með 50 stigum en vann síðan næstu tvo og tryggði sér sæti í lokaúrslitunum. Nú er að sjá hvort taktík Vals gangi upp en hann og Borgnesingar hafa oíurtrú á heimavelli sínum þar sem liðið hefur unnið alla þrjá leiki sína í úr- slitakeppninni í ár með 13,7 stigum að meðaltali. Hvað gerist í Borgarnesi? Annar leikur úrslitaeinvígis Iceland Express-deildar karla hefst í Borgarnesi klukkan 20 í kvöld og það er ljóst að menn þurfa að mæta mjög snemma til að komast inn í húsið sem verð- ur örugglega orðið troðfullt langt fyrir leik. Njarðvíkingar bjóða upp á sætaferðir á leikinn og það hefur ekki þurft að segja Borgnes- ingum það tvisvar að mæta á körfuboltaleiki í vetur. ^ Þetta er þinn bikar alveg eins og minn Megan Mahoney fór beint tii Helenu Sverrisdóttur meö bikarinn fyrir besta leikmann úrslitanna. DV-mynd Vilhelm Haukar eru íslandsmeistarar kvenna í körfubolta og unnu þar með þrjá af fjórum stærstu titlum vetrarins. Elsti leikmaður Hauk- anna er bandaríski leikmaðurinn Megan Mahoney (23 ára) en enginn íslensku stelpnanna í liðinu eru eldri en 22 ára og margar undir tvítugu. Það er því óhætt að spá fyrir um bjarta framtíð í kvennaköfunni hjá Haukunum. Sannur sigurkarakter Fjórða árið í röð kláraðist úrslita- einvígið í þremur leikjum en efth ör- uggan Haukasigur í fyrsta leiknum unnust tveir leikir eftir æsispennandi lokamínútur. Keflavík náði mest átta stiga forskoti í þriðja leiknum og var komið með 14 stiga forskot í 2. leikn- um en í bæði skiptin sýndi Hauka- liðið sannan sigurkarakter og tryggði sér sigurinn með skynsömum og markvissum leik í lokin. Mahoney valin best Megan Mahoney var vahn besti leikmaður úrslitanna en hún var með 32 stig, 14,7 ffáköst, 6 stolna bolta og 5,3 stoðsendingar að með- altali í leikjunum þremur. Mahoney reyndist Haukaliðinu mikill happa- fengur þegar Ke-Ke Trady stakk af til Þýskalands um áramóhn. Þrátt fyr- ir þessa frábæru frammistöðu var allt annað en auðvelt að gera upp á milli hennar og Helenu Sverrisdótt- ur sem var aðeins tveimur stoðsend- ingum frá því að vera með þrefalda tvennu að meðaltali í úrslitunum. Helena var með 18 stig, 13 fráköst og 9,3 stoðsendingar að meðaltali auk þess að nýta vítin sín 90% (18 af 20). Það var einmitt á vítalínunni sem Helena gulltryggði Haukunum tit- ilinn. Haukaliðið vann þrjá af fjórum stóru titlum hmabilsins og 27 af 32 leikjum sínum í öllum keppn- um á vegum KKÍ í vetur og upp- skera timabilsins er sú allra glæsi- legasta í sögu félagsins. Þegar litið verður til baka verður kannski tal- að um að það hafi orðið h'mamót í kvennakörfunni vorið 2006. ooj@dv.is Fyrsti fslandsmeistarabikarinn á loft Fyrirliðarnir Helena Sverrisdóttir og Pálína Gunniaugsdóttir lyfta hér fslandsbikarnum fyrstar Haukakvenna. DV-mynd Vilhelm ■ * ■■■. f Haukar höfðu ekki eignast ís- landsmeistara ffá því karlalið félags- ins vann í fyrsta ogeina skiphð vorið 1988. Það eru líka liðin 18 ár frá því Keflavík vann sinn fyrsta íslands- meistarahtil í kvennaflokki en síð- an hefur félagið unnið 12 titla. Það hefur mikið verið skrafað og skrifað um að Haukar séu að taka við krún- unni af Keflavík ogþó að það sé lang- ur tími þar til Haukarnir jafni afreka- skrá Keflavíkurliðsins undanfarna tvo áratugi bendir margt til þess að Haukarnir geti bæh mörgum titlum við á komandi árum. Meðalaldurinn 19,4 ár Þegar Keflavíkurkonur urðu Is- landsmeistarar í fyrsta skiphð í apríl 1988 var meðalaldur liðsins 18,9 ár og fyrirliðarnir Björg Hafsteinsdótt- ir (15,1 shg í leik) og Anna María Sveinsdóttir (17,1 shg í leik) báð- ar á 19. aldursári. Mikil pressa á ungum leikmanni Helena Sverrisdóttir er nýorðin 18 ára en þegar búin að leið sitt lið upp á toppinn i íslenskri kvennakörfu. Meðalaldur Haukaliðsins er 19,4 ár og fyrirliðarnir Helena Sverrisdótt- ir (18 ára) og Pálína Gunnlaugsdótt- ir (19 ára) eru líkt og Anna María og Björg fyrir 18 árum komnar í leið- togahlutverk áður en þær ganga upp úr unglingaflokki. Uppskera erfiðsins Það var mikið fjör þegar Islandsmeistaratitlinn kom í hús enda Haukastelpurnar búnar að leggja mikið ásigi vetur. DV-mynd Vilhelm Brenton spilar vel Líkt og oft áöur hefur Brenton Birmingham spilað vel með Niarðvik í úrslitakeppninm. DV-mynd Vilhelm Haukastelpur urðu íslandsmeistarar í fyrsta skipti í sögu félags- ins þegar þær unnu þriðja úrslitaleikinn við Keflavík 81-77 á Ás- völlum á föstudagskvöldið og enduðu um leið þriggja ára veru Keflavíkurliðsins á toppnum. ara byrjunin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.