Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011
PÉTER: -Er aðallega að vinna við bakreikninga og vinn þá í málum sem þarf að skoða sérstaklega, en starfið hér er unnið á landsvísu.
Fiskistofa - Péter Szklenár til
Starfar sem
rannsókna-
starfa við útibúið í Vestmannaeyjum:
sérfræðingur á
og brotadeild
Fiskistofa hefur ráðið Péter
Szklenár til starfa við útibúið í
Vestmannaeyjum. Péter er við-
skiptafræðingur og starfar sem sér-
fræðingur á rannsókna- og brota-
deild Fiskistofu. Kona hans er
Aðalheiður Rán Þrastardóttir og
þau eiga eina dóttur. Péter kom til
starfa í byrjun nóvember en mæðg-
umar eru nýkomnar og em að
koma sér fyrir.
„Bara vel,“ sagði Péter þegar
hann spurður hvernig hann kunni
við á sig á nýjum staðnum. „Það
hefur verið tekið mjög vel á móti
mér á Fiskistofu, bæði hér og í
Reykjavík. Jóna Sigríður Guð-
mundsdóttir og Ingólfur Ingólfsson
eiga þakkir skilið fyrir góðar mót-
tökur. Starfið leggst vel í mig og
tengist því sem ég hef lært og mínu
áhugasviði. Eg er með B.Sc gráðu í
viðskiptafræði og kláraði meistara-
nám í endurskoðun og reiknishaldi
síðasta vor.
Fólk í Reykjavík er kannski ekki
mikið fyrir að flytjast út á lands-
byggðina en Bandríkjamenn hika
ekki við flytja þúsundir kílómetra
ef gott starf er í boði. Það lítur út
fyrir að allt gangi vel í Vestmanna-
eyjum og mikill uppgangur," sagði
Péter og þegar hann var spurður
nánar út í starfið sagði hann það
vera mjög spennandi.
„Ég er sérfræðingur á rannsókna-
og brotadeild. Er aðallega að vinna
við bakreikninga og vinn þá í mál-
um sem þarf að skoða sérstaklega,
en starfið hér er unnið á landsvísu."
Péter segir Aðalheiði Rán ætla að
hefja framhaldsnám eftir áramótin
en hún er með BS í sálfræði.
„Námið er lotutengt og hún ætti að
hafa möguleika á að stunda það
héðan. Tara dóttir okkar er tveggja
ára, síðan í maí, og hún kemst á
Sóla eftir áramót. Við erum búin að
fá húsnæði og erum að koma okkur
fyrir, bæði Jóna og Ingólfur voru
mjög hjálpsöm og allt gert til að
við gætum náð fótfestu sem fyrst.
Þegar Péter er spurður út í
upprunann kemur í Ijós að hann
kom fyrst til íslands með foreldr-
um sínum og systur frá Ungverja-
landi árið 1990 og fluttu þau til
Hólmavíkur. Þá var hann aðeins
fjögurra ára gamall. „Foreldar
mínir eru tónlistarmenn og sáu
fyrst um tónlistarkennslu og kór-
stjóm í Hólmavík. Þau em miklir
tónlistarmenn en þremur ámm
seinna fluttum við til Ungveija-
lands og svo aftur til Íslands 1998.
Ég og systir mín vomm þá alveg
búin að týna niður tungumálinu en
foreldrar mínir vom í sambandi við
íslendinga allan tímann. Nú er
mamma kórstjóri og organisti í
Árbæjarkirkju og pabbi er tónlistar-
kennari í Grafarvogi."
Varstu þú ekki í tónlistamámi?
„Að sjálfsögðu var ég í tónlistar-
námi og kominn með nokkur stig á
franskt horn og líka á píanó. í
fyrstu fórum við alltaf til Ungverja-
lands á sumrin en við fluttum til
Revkjavíkur þegar ég byrjaði í
framhaldsskóla og þá urðu ferð-
irnar færri. En við höldum alltaf
góðum tengslum við fjölskylduna
úti. Ég var fjögur ár í Verslunar-
skólanum og fimm í Háskóla
Islands og nú liggur leiðin hingað.
Okkur líst mjög vel á okkur en
ákváðum að vera með fjölskyldum
okkar í Reykjavík um jól og
áramót," sagði Péter.
Þrír ættliðir
í sömu
hljómsveit
Það gerist ekki oft að þrír ættliðir
hafi spilað saman á lúðrasveita-
tónleikum.
Litla Lú var með tónleika fyrir
jólin þar sem Lúðrasveit Vest-
mannaeyja var með í nokkrum
lögum. Þegar sveitimar slógu
saman léku á saxafóna, Ólafur
Jónsson, Guðlaugur sonur hans og
loks Ólafur Ágúst sonur Guðlaugs.
ÖFLUGIR BLÁSARAR, Ólafur,
Guðlaugur og Ólafur Ágúst.
Hjálparstarf aðventista:
Þökkum
aðstoðina
I desember heimsótti fulltrúi
Hjálparstarfs aðventista - ADRA
bæjarbúa til að taka við fram-
lögum til þróunar- og líknarstarfs
líkt og undanfarin ár.
Söfnunarféð í þetta sinn rennur
til að spoma gegn mansali í Kam-
bódíu. Margir landsmenn muna
eftir heimildarmyndinni „Böm til
sölu“ sem var gerð af starfsfólki
RÚV (Maríu Sigrúnu Hilmars-
dóttur og Guðmundi Bergkvist
Jónssyni) í samstarfi við starfs-
fólk ÁDRA á íslandi og í Noregi
og sýnd var í sjónvarpinu fyrir
einum tveim ámm. Sú mynd lýsir
einmitt því verkefni sem fjár-
magnað er með söfnuninni í ár.
Innilegustu þakkir nú í ár sem
áður með ósk um gleðileg jól og
farsæld og blessun Guðs á nýju
ári.
Fyrir hönd Hjálparstarfs að-
ventista - ADRA, Eric
Cuðmundsson.
Vitjaði vinningsins:
Ekki vitað
hver hann er
Fréttir fengu ábendingu um fjöl-
skyldu sem átti að hafa unnið
þann stóra, rúmar 27 milljónir í
Lottóinu sem kom á miða sem
seldur var á Kletti.
Húsbóndinn sagði þetta ekki rétt
en hann kannaðist við söguna.
„Það var vinur minn sem kom
þessu af stað. Því miður er þetta
ekki rétt en ef ég hefði fengið
stóran Lottóvinning léti ég engan
vita af því,“ bætti hann við og
hló.
Magnús Sveinsson á Kletti sagði
að miðinn hefði verið seldur þann
10. desember og væri eigandi
hans búinn að gefa sig fram.
„Hann gerði það í Reykjavík. Ég
veit ekki hver hann er og langar
ekki að vita það,“ sagði Magnús.
Hressó:
Gamlárshlaup
og gangaí
fjórða sinn
Á gamlársdag verður Gamlárs-
hlaup og -ganga haldin í ljórða
sinnið.
Mæting er við Stórhöfða og
Steinsstaði klukkan 10.45 og
verður endað við Vinaminni þar
sem verður boðið upp á heita
súpu og brauð.
Þátttökugjald er 1500 krónur og
rennur hann óskiptur til Krabba-
vamar í Vestmannaeyjum. Hefur
upphæðin verið í kringum ein
milljón.
Læti í veðrinu
Mikið óveður gekk yfir landið á
aðfangadag. Um hádegi var
meðalvindhraði á Stórhöfða 32
metrar og fór í mestu hviðum upp
í 44 metra.
Björgunarfélag Vestmannaeyja
var kallað út þegar þakplötur
losnuðu á Rauðagerði. Líka var
félagið kallað að Hraunbúðum
þar sem eitthvað hafði losnað.
Étgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson.
Bladamenn: Guðbjörg Sigurgeirsdóttir og Július Ingason. Ábyrgðarmetm: ÓmarGarðars-
son & Gísli Valtýsson.
Prentrinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaoyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47.
Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstnr. frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: http/Avww.eyjafrettir.is
FRÉTTER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i fuskrift og einnig i lausasölu ú Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flugbafnarversluninni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarböfn.. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉITIR eru aðilar að Samtökum biejar- og hémðsfréttablaðiu Eftirprentun, liljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.