Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.2011, Blaðsíða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 29. desember 2011 Eyjamaður vikunnar: Er grídarlega sáttur með hvernig til tókst Eyjamaður vikunnar er Óskar Sigurðsson. Úr bloggheimum: Karl Gauti Hjaltason bloggar: Jóla - Sólsleikja Orðið Sólsleikja er nafn úr stjömu- fræðinni, sem hefur verið haft yfir halastjömur sem fara mjög nálægt sólunni á langri braut sinni langt utan úr sólkerfmu framhjá sólunni. Þessar halastjömur fara svo nálægt sólu að ótrúlegt er að þær skuli yfirleitt lifa af heimsóknina, því þið getið rétt ímyndað ykkur hitann sem þær lenda í. Hinn 2. desember s.l. fann stjömu- áhugamaðurinn og ástralinn Terry Lovejoy halastjömu sem reyndist vera af þessari tegund og var hún auðvitað skírð eftir honum. Þessi halastjama fer um sólu á 314 ámm og heimsækir því sólina aftur árið 2325 eftir óralangt ferðalag sitt alla leið úr Oortskýinu sem er langt utan við braut Plútó. Fyrirfram bentu útreikningar stjör- nufræðinga til þess að allt eins væri líklegt að Lovejoy myndi enda æfi sína í brennheitum faðmi sólarinn- ar. Á miðnætti milli 15. og 16. desember fór hún næst sólu í u.þ.b. 120 þús. km fjarlægð, sem er tæplega helmingurinn af vega- lengdinni til Tunglsins. Hún bók- staflega sleikti því yfirborð sólar- innar á gífurlegum hraða og fór töluvert innfyrir sólkórónuna. Mörgum að óvömm lifði hún af og sést nú með bemm augum á suðurhveli jarðar, en hún hefur nokkurra milljón kílómetra langan hala. Eftir því sem hún fjarlægist sólu minnkar hali hennar, sem gerður er úr ryki og gastegundum. Vísindamenn telja að Lovejoy sé yfir 500 metrar í þvermál sem er þá 5 til 10 sinnum stærri en algeng- ustu sólsleikjur, ella hefði hún ekki lifað af þessa hættulegu för sína í faðm sólar. Það verður spennandi að sjá hvort hún lifi af næstu heim- sókn sína! Sólsleikjumar hafa mjög ílangar sporbrautir og ná mestum hraða næst sólu. 1996 fannst ein sem fór á yfir 1000 km hraða á sekúndu, en til samanburðar fer hin fræga halastjama Halley (sást síðast 1986) á 50 km hraða á sekúndu. Sólsleikjur geta fræðilega farið á allt að 1600 km hraða á sekúndu ef þær ferðast eins nálægt sólu og unnt er að komast. Á þeim hraða væri hægt að fara frá Reykjavík til London á rúmri sekúndu! Sólsleikjumar lifa hratt og deyja ungar því sólin gleypir þær allar að lokum. Hér að neðan er mynd af hala Lovejoy, tekin af ljósmynd- aranum Colin Legg frá Ástralíu. http.V/eyjapeyji. blog. is Gísli Hjartarson bloggar: King Kenny, king Kenny Nú skal allt dregið fram. Nú hefur rauði herinn það á tilfmningunni að allir séu á móti sér og það eigi að stíga illilega á þá!!!! Er lífið svona ein- falt? ...það er stundumsagt á ensku: You write your own luck. ...er það ekki bara akkúrat það sem á við í þessu tilfelli, hvort heldur maður er að tala um Liverpool eða Bellamy!! http.V/fosterinn. blog. is Afar vel heppnaðir jólatónleikar, Heima um jólin, vom haldnir í Höllinni síðastliðinn fimmtudag. Nánar er sagt frá tónleikunum annarsstaðar í blaðinu en fyrir þeim stóðu hjónin Óskar Sigurðsson og Gunnlaug Sigurðardóttir. Óskar er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Nafn: Óskar Sigurðsson. Fæðingardagur: 23/07/1971. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Eiginkonan er Gunnlaug Rósalind Sigurðardóttir og bömin em Benjamín Elí, Sigurbjörg Líf og Sigurður Dan. Draumabfllinn: Dodge Ram 1500 Pick-up. Uppáhaldsmatur: Fiskur. Versti matur: Súr þorramatur. Uppáhalds vefsíða: Blue Letter Bible.org Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Söngurinn um Jesú. Aðaláhugamál: Að lesa og nema Heilaga Ritningu. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Son Guðs, Jesú Krist. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Guðsríkið. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Cristiano Ronaldo og Manchester United. Ertu hjátrúarfullur: Nei. Stundar þú einhverja hreyfíngu: Fjallgöngur. Uppáhaldssjónvarpsefni: Enski boltinn. Ertu ánægður með hvernig til tókst á tónleikunum: Gríðarlega sáttur. Hvað stóð upp úr að þínu mati: Matgazðingur vikunnar: Ég þakka Gulla nágranna og ofurskipstjóra kœrlega fyrir að tilnefna mig sem matgœðing vik- unnar. Þar finnst mér maður tjá sig sem hefur takmarkaða reynslu af eldhúsverkum, vonandi eru skip- stjórnarhœfileikarnir meiri. Einnig vil ég þakka þeim fjölmörgu sem hafa komið að máli við mig og haft samband við mig í síma eða sms til að bjóða fram aðstoð. Greini ég þar ákveðna vantrú í minn garð í eldamennsku. Ég œtla að bjóða lesendum upp á rétt sem Gulli gœti hugsanlega eldað. drabískar kótilettur Hráefni: Kótilettur, kartöflur, laukur, Ora grænar baunir, tómat- sósa. Kótilettur (fer eftir fjölda matar- gesta, ca. 300 gr. á mann) þurrsteikt á pönnu kryddað með pipar og salti. Lauknum skellt á pönnu og mýktur. Kartöflur skrallaðar hráar, ef þær em stórar, skerið þær í tvennt. Hafa nóg af kartöflum. Takið stóran pott, setið örlítið af vatni í botninn en setið svo hluta af kartöflunum í pottinn. Takið heildós af Ora grænum baunum, hellið hluta af þeim í pottinn með vökvanum og dreifið hluta af laukunum þar ofan á. Setjið væna gusu af tómatsósu þar ofan á. Allt þetta frábæra fólk sem kom að verkefninu og góð viðbrögð gesta. Er stefnan sett á að endurtaka leikinn að ári: Já. Nú voru tónleikarnir teknir upp. Ætlar þú að gefa þá út: Til þess var leikurinn gerður en það á eftir Raðið síðan kótilettum. Endurtakið þar til allt hráefnið er komið í pott- inn og sjóðið við vægan hita í einn og hálfan tíma. Að suðu lokinni, tínið kjötið úr pottinum og setjið á fat. Hellið kartöflunum, baununum og restinni úr pottinum í skál og berið fram. Eftirréttur: Það væri gott að hafa gamla góða sveskjugrautinn eða ávaxtagrautinn með rjóma. að fara yfir bæði upptökur á bæði mynd og hljóði. Hvað voru margir sem komu að tónleikunum: Á þriðja tug. Eitthvað að lokum: Guðs blessað nýtt ár. Ég vil endilega mœlast til að Friðrik Már Sigurðsson dósent verði matgœðingur nœstu viku, ef ég erfœr í eldamennsku er hann er algjör snillingur eða svo segja sögur. P.s. Már þú mátt alytg taka Hermann Kristjánsson ofurkokk og jarðeplarœktanda með þér til trausts og halds. Saman getið þið kannski kveikt á eldavélinni. Rénur sem Gulli gæti hugsanlega eldað Matgœðingur vikunnar er Halldór Bjamason. Kirkjur bozjarins: Landakirkja Fimmtudagur 29. desember Kl. 11-12. Viðtalstímar presta fim- tudag og föstudag. Kl. 20:00 Æfing hjá Kór Landakirkju. Gamlársdagur 31. desember Kl. 18:00 Aftansöngur með hátíðarsöngvum. Kór Landakirkju. Organisti Elínborg Sigurgeirsdóttir. Sr. Guðmundur Öm Jónsson. Nýársdagur 1. janúar 2012 Kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta með hátíðarsöngvum. Kór Landakirkju. Organisti Elínborg Sigurgeirsdóttir. Sr. Kristján Bjömsson. Mánudagur 2. janúar Kl. 11-12. Viðtalstímar presta alla virka daga. Bakvaktarsími presta 488 1508. Miðvikudagur 3. janúar Kl. 11:00 Helgistund á Hraunbúðum. Hvítasunnu- kirkjan Gamlársdagur 31. desember Kl. 14:00 Vitnisburðar og þakkarsamkoma. Nýársdagur 1. janúar Kl. 14:00 Hátíðarsamkoma. Verið hjartanlega velkomin. Aðventkirkjan Laugardaginn 31. desember Kl. 11:00 Samkoman hefst með Biblíufræðslu fyrir böm og full- orðna. Efnið er aðgengilegt öllum á vef kirkjunnar á www.adventistar.is Kl. 12:00 Jólahugvekja. Bein útsending frá aðventkirkjunni í Reykjavík. Manfred Lemke prédikar þar. Allir hjartanlega velkomnir. Sími hjá safnaðarpresti er 8662800, netfang thora@adventistar.is.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.