Víkurfréttir - 01.07.2010, Blaðsíða 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 26. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR6
VÍKURFRÉTTIR EHF.
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prenvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011,
thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson,
steini@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
141 776
UM
HV
ERFISMERKI
PRENTGRIPUR
VÍKURFRÉTTIR
Í SÍMANN!
m.vf.is
FRÉTTAYFIRLIT VÍKURFRÉTTA
VF.IS FRÉTTIR SPORT
... síðustu 7 dagar á vf.is
Sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum
Guðbjörn Guðbjörnsson sagði sig úr Sjálfstæð-
isflokknum eftir landsfund flokksins um helgina.
Ástæðan er afgreiðsla fundarins á tillögu um ESB
umsóknina. Guðbjörn hefur um árabil gegnt ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í Reykjanesbæ
og Suðurkjördæmi.
Þar með hætti hann í flokksráði Sjálfstæðisflokksins, stjórn
fulltrúaráðs Reykjanesbæjar, stjórn Sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkings og kjördæmisráði flokksins í Suðurkjördæmi.
Bensínsníkir á ferð
Bensínsníkir nokkur sem fjölmiðlar
greindu frá í síðustu viku náðist á ör-
yggismyndavél Fitjatorgs í vikunni.
Þar reyndi hann að hafa fé af fólki með
sama hætti og hann hefur gert á bens-
ínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn gefur sig á tal við fólk, ber
sig aumlega og biður um pening fyrir
bensíni svo hann komist til veikrar dóttur sinnar á Akranesi.
Viðskiptavinir Fitjatorgs sáu hins vegar við honum.
Unnu 24 milljónir í Lottó
Hjón á miðjum aldri eru 25 milljón krónum ríkari eftir að
hafa keypt Lottómiða í Brautarnesti í Reykjanesbæ um þar
síðustu helgi. Það var ekki fyrr en í lok vikunnar að þau upp-
götvuðu hvers kyns var en vinningsmiðinn var í hanskahólf-
inu.
Sigurður Valur nýr bæjarstjóri í Fjallabyggð
Sigurður Valur Ásbjarnarson var ekki lengi að
finna sér aðra vinnu eftir að hann hætti sem bæj-
arstjóri í Sandgerði. Hann var í síðustu viku ráð-
inn bæjarstjóri í Fjallabyggð. Sigurður Valur var
bæjarstjóri í Sandgerði í 18 ár.
Böðvar áfram formaður
Böðvar Jónsson (D) verður áfram formaður bæj-
arráðs Reykjanesbæjar sem kom saman til fyrsta
fundar á fimmtudaginn á nýhöfnu kjörtímabili.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, setti fundinn og stakk
upp á Böðvari Jónssyni sem formanni bæjarráðs
og Gunnari Þórarinssyni til vara og voru þeir sjálfkjörnir.
Á þessum fyrsta fundi var m.a. samþykkt að Reykjanesbær
yrði stofnaðili að Fjölsmiðju í Reykjanesbæ með 10 milljóna
króna stofnfé.
Hjónin Yi Lin og Xue Wen Zhong hafa opnað
kínverskt veitingahús á Hafn-
argötu 30 í Reykjanesbæ,
unnendum austurlenskrar
matargerðarlistar til mikillar
gleði enda hefur staðurinn
fengið góðar viðtökur. Nafn
hans er Kína Panda.
Á Kína Panda verður kapp-
kostað að bjóða upp á ekta
kínverskan mat, matreiddan
samkvæmt kínverskum hefð-
um sem eiga sér langa sögu í
matarmenningu Kínverja.
Á Kína Panda er boðið upp á
margréttað kínverskt hádeg-
isverðarhlaðborð fyrir aðeins
1290 krónur á mann með
súpu og kaffi. Áhersla er lögð
á snögga þjónustu í hádeginu á
sanngjörnu verði en á kvöldin
er meiri áhersla lögð á notaleg-
heit og nostur í mat og drykk.
Kína Panda gerir tilboð fyrir
móttöku hópa og bjóða sér-
stakan sal í samstarfi við Man-
hattan við hliðina. Manhattan
selur jafnframt mat úr eldhúsi
Kína Panda, þ.e. létta rétti við
ýmis tilefni, hvort sem verið er
að horfa á boltann eða halda
starfsmannapartí.
Kína Panda er opinn frá kl.
11-22 virka daga og 16-22 um
helgar. Take-Away nætursala
verður um helgar í gegnum
lúgu og stefnt er á heimsend-
ingar næsta vetur.
Nýr kínverskur
veitingastaður
-Kína Panda í Reykjanesbæ býður upp á
ekta kínverskan mat
Yi Lin og Xue Wen Zhong
eru eigendur Pöndunnar.
Kínverskar vorrúllur og pekingönd að hætti Pöndunnar.
Hvorutveggja bragðaðist frábærlega. VFmyndir/elg.
MUN MeIRI áSóKN Í
FRÍTT SUNd
Mikil aukning hefur orðið á aðsókn grunnskólabarna í sund í Reykjanesbæ í framhaldi af því að tekin var
ákvörðun um það fyrir fjórum árum að gefa þeim frítt í
sund með það að markmiði að auka hreyfingu ungra barna
og auka samverustundir fjölskyldunnar. Ástæðan var sú
að nýlegar rannsóknir höfðu sýnt að grunnskólabörn
á Íslandi væru að þyngjast m.a. vegna hreyfingarleysis.
Reykjanesbær var fyrst sveitarfélaga til þess að taka upp
þessa nýjung og þykir hún hafa skilað miklum árangri án
þess að tekjuskerðing mannvirkja hafi verið eins mikil og
ætla mætti enda hefur gestafjöldi aukist mikið í kjölfarið.
Fjöldi barna í sundi jókst að meðaltali um 10.175 heimsóknir
á ári á árunum 2006 - 2009 og aðsókn fullorðinna jókst að
meðaltali um 8.777 heimsóknir á ári á sama tíma. Hlutfall
barna á þessum tíma sem ekki æfðu íþróttir var 45% og eru
börn á aldrinum 8 - 12 ára duglegust að mæta í sund.
Þetta kemur fram í lokaritgerð Þórunnar Magnúsdóttur
til B.s. gráðu í íþróttafræðum við Háskóla Íslands þar sem
kannað var m.a. hvort að þessi niðurfelling á gjaldi hefði
aukið hreyfingu barna og þá jafnframt þeirra sem ekki stunda
íþróttir í frístundum.